Í sumar ætlum við að kynnast nokkrum af þeim fjölda spennandi golfvalla sem hægt er að finna víða um land og gaman væri að prófa í sumarfríinu en hægt er að leika golf á yfir 60 völlum hér á landi. Háagerðisvöllur er golfvöllur vikunnar á Vísi.

Klettar og mishæðótt landslag frá náttúrunnar hendi gera brautirnar krefjandi og fjölbreyttar. Á góðum degi er frábært útsýni út á Húnaflóa og yfir á Strandir.

Í bók sinni Golfhringir á Íslandi, sem kom út árið 2002, segir Edwin Roald Rögnvaldsson m.a. að Háagerðisvöllur sé líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga á Íslandi
Hann tekur sem dæmi fimmtu braut, sem er par 5, og er að hans mati besta golfbrautin á Skagaströnd. „Til að komast inn á flöt í öðru höggi þarf tvö fullkomin högg. Þær eru fáar, par 5-holurnar, sem falla jafnvel í landslagið, alveg frá teig til flatar. Landslagið í brautinni sjálfri er frá náttúrunnar hendi – öldótt og óreglulegt – sem er allt of fátítt á golfvöllum sem byggðir hafa verið í seinni tíð.“
Við teigana á hverri braut eru skilti með upplýsingum um brautina og annar fróðleikur.

Á Skagaströnd er ýmis þjónusta í boði. Má þar nefna Harbour restaurant, Salthús gistiheimili, notalega sundlaug, leigu á kajökum og Spákonuhof þar sem hægt er að fræðst um Þórdísi spákonu og fá framtíðarspá. Einnig er gott tjaldsvæði á staðnum og skemmtilegar gönguleiðir á svæðinu, m.a. upp á Spákonufell sem er 640 m hátt.
