Innlent

Þjóðarhöll sleppur við mat á um­hverfis­á­hrifum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hér má sjá staðsetningu verðandi Þjóðarhallar ofan við Laugardalshöll við Suðurlandsbrautina.
Hér má sjá staðsetningu verðandi Þjóðarhallar ofan við Laugardalshöll við Suðurlandsbrautina.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Þjóðarhöll í Laugardal skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Skipulagsstofnunar. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 30. september næstkomandi.

Hér má finna ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim.

Ráðherra íþróttamála sagði í viðtali við fréttastofu í janúar að stefnt væri að því að höllin risi árið 2027. Ísland er á meðal gestgjafa á HM í handbolta árið 2031 ásamt Danmörku og Noregi.

Forval fyrir samkeppnisútboð vegna Þjóðarhallar var auglýst í mars. 

„Nú er auglýst þetta forval og svo er gert ráð fyrir því að í sumar séu valin teymin sem munu taka þátt í því að skila inn tillögu um hönnun þessa mannvirkis og gera tilboð í það. Í byrjun nýs árs verði valinn og gengið frá samningum við aðila um þetta. Þá geti framkvæmd hafist á því ári. Þetta eru mikil tímamót,“ segir Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×