Innlent

Þúsundir lítrar af kjöt­súpu á Hvols­velli

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Aðalheiður Ásgeirsdóttir, bóndi á Stóru Mörk III undir Eyjafjöllum að hræra í pottinum í gærkvöldi.
Aðalheiður Ásgeirsdóttir, bóndi á Stóru Mörk III undir Eyjafjöllum að hræra í pottinum í gærkvöldi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Íbúar á Hvolsvelli og í sveitunum þar í kring, ásamt gestum munu torga í sig einhverjum þúsundum lítrum af kjötsúpu um helgina á sérstakri Kjötsúpuhátíð. Bændur undir Eyjafjöllum tóku reyndar forskot á sæluna í gærkvöldi og buðu upp á gómsæta súpu.

Fjölmenni mætti á bæinn Stóru Mörk III til að þiggja kjötsúpu og reyndar gúllassúpu líka hjá bændunum á bænum í gærkvöldi, en þau hlutu íslenska landbúnaðarverðlaun í ár, enda búið á Stóru Mörk einstaklega glæsilegt og kýrnar þar mjólka vel og nautin gefa mikið af kjöti af sér.

„Það er nóg af kjöti í súpunni, svo sannarlega, allt frá „Beint frá býli”, lamb og naut. Þetta er kjöt frá okkur, þetta er allt frá okkur nema hvítlaukurinn og laukurinn,” segir Aðalheiður Ásgeirsdóttir, bóndi á Stóru Mörk III.

Og það verður mikið um að vera á Hvolsvelli og nágrenni um helgina því þá fer fram Kjötsúpuhátíð. Þetta verður til dæmis á föstudaginn.

„Þá ætla fyrirtæki á svæðinu að bjóða upp á drykk og mat, grillkynningar og vínsmökkun og það verður sumarkjólahlaup. Svo á laugardeginum verður aðaldagskráin okkar en þá verður fjölskylduskemmtun og verðlaunaafhendingar og ýmislegt fleira. Það eru allir velkomnir, allt frítt og um kvöldið verður ball hjá okkur með Stuðlabandinu,” segir Sigmundur Páll Jónsson, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra.

Sigmundur Páll Jónsson, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra, sem býður alla velkomna á Kjötsúpuhátíðina um helgina.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Sigmundur segir að það verði örugglega einhverjir þúsundir lítra af kjötsúpu sem heimamenn og gestir munu njóta á Kjötsúpuhátíðinni en sérstakt kjötsúpurölt verður á laugardagskvöldið.

Af hverju heitir þetta Kjötsúpuhátíð ?

„Við erum náttúrulega hér í landbúnaðarhéraðinu og fögnum kjötsúpunni svona á hausti og til ná inn smá orku fyrir veturinn,” segir Sigmundur.

Tveir ánægðir með kjötsúpuna í gærkvöldi, Elvar Eyvindsson, bóndi á Skíðbakka í Landeyjum (til vinstri) og Anton Karl Kárason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, ásamt syni sínum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heyskapur gekk vel á Stóru Mörk í sumar enda þriðja slætti ný lokið. En hvað urðu heyrúllurnar margar?

„Ég held að þetta hafi farið í eitt þúsund og átta hundruð rúllur,” segir Eyvindur Ágústsson, bóndi á Stóru Mörk III sposkur á svip.

Fjölmargir mættu í súpuna á Stóru Mörk III.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Facebooksíða hátíðarinnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×