Þar kemur jafnframt fram að konan hafi í kirkjugarðinum farið í símann og í lottóappið. Þar hafi hún valið sjálf talnaröðina sem byggði á tengslum við hinn látna og hugsað hlýtt til viðkomandi um leið.
Þá segir einnig að það hafi komið sérfræðingum Íslenskrar getspár raunar á óvart að vinningurinn skyldi ganga út því talnarunan á laugardaginn virtist við fyrstu sýn harla ólíkleg til að skila fyrsta vinningi vegna sérkennilegrar dreifingar á tölunum. Tölurnar voru 1, 25, 27, 35 og 36.
„Það voru því kærkomin gleðitár sem féllu þegar konan fékk símtalið góða frá Íslenskri getspá í byrjun vikunnar og markar vonandi komu fleiri gleðistunda hjá fjölskyldunni eftir erfiða tíma að undanförnu,“ segir í tilkynningunni.
Líkurnar litlar sem engar
Líkurnar á því að vinna í Eurojackpot eða öðrum svipuðum getraunaleikjum eru litlar sem engar en það þýðir ekki að einn og einn vinni ekki stóra vinninga. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi mælir eindregið gegn því að fólk kaupi lottómiða í von um að verða ríkari.
„Ef markmiðið er fjárhagslegur ávinningur þá er happdrætti og lottó og fjárhættuspil og allt slíkt með því vitlausasta sem þú gerir,“ segir Björn Berg á dögunum. Sjónarmiðið að styrkja gott málefni og skemmta sér sé þó allt annað.