Sport

Þurfti að hætta í fót­bolta vegna fötlunar sinnar

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ingeborg Eide Garðarsdóttir er sú eina sem keppir fyrir hönd Íslands í frjálsum íþróttum á Paralympics.
Ingeborg Eide Garðarsdóttir er sú eina sem keppir fyrir hönd Íslands í frjálsum íþróttum á Paralympics. Mynd/Laurent Bagnis

Ingeborg Eide Garðarsdóttir keppir síðar í dag fyrir hönd Íslands á Ólympíumóti fatlaðra í fyrsta sinn. Hún neyddist til að hætta í fótbolta á unga aldri vegna fötlunar sinnar en fann sína fjöl í frjálsum íþróttum.

Ingeborg glímir við CP helftarhömlun sem lýsir sér í lömun í hægri hendi og fæti. Hún lék fótbolta með Haukum sem stelpa en eftir því sem leið á kom í ljós að hún þurfti að gefa það upp á bátinn.

„Það fóru að vera hamlanir þar út af minni fötlun. Þar fóru þjálfararnir svolítið að setja mig meira og meira á bekkinn og mamma rakst á auglýsingu þar sem verið að auglýsa frjálsar,“ segir Ingeborg í Sportpakkanum á Stöð 2.

Frjálsu íþróttirnar tóku við og reyndi hún við sig í hinum ýmsu greinum áður en kúluvarpið tók yfir.

„Það er svolítið mikið það sem ég geri. Ég geri voða lítið annað en að æfa, hvíla fyrir íþróttina og allt sem fylgir því,“

„Ég ákvað um áramótin að einbeita mér alveg að íþróttinni. Ég hætti vinnu og fór að vinna við þetta. Það er hluti af því sem er að skila mér þessum árangri núna,“ segir Ingeborg.

Ingeborg keppir í flokki F37 hreyfihamlaðra seinni partinn í dag og kemur á mikilli siglingu inn á leikana. Hún sló til að mynda eigið Íslandsmet á alþjóðlegu móti í apríl.

„Ég er mjög spennt og þakklát fyrir að fá að keppa fyrir hönd Íslands,“ segir Ingeborg. En hver eru markmiðin?

„Fyrst og fremst að hafa gaman og gera mitt allra besta. Allt annað er eiginlega svolítill plús.“

Ingeborg keppir í kúluvarpi á Ólympíumóti fatlaðra í París seinni partinn. Áætlað er að hún taki fyrsta kast um klukkan 17:15. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×