Fótbolti

Hákon dregur sig út úr landsliðshópnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson á ferðinni með boltann í sigurleiknum á Englendingum á Wembley í júní.
Hákon Arnar Haraldsson á ferðinni með boltann í sigurleiknum á Englendingum á Wembley í júní. Getty/Robin Jones

Hákon Arnar Haraldsson verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í fyrstu leikjum liðsins í nýrri Þjóðadeild UEFA.

Hákon glímir við meiðsli og hefur þeirra vegna þurft að draga sig út úr landsliðshópnum.

Hann snýr því aftur til franska félagsins Lille. Þetta er mikill missir fyrir íslenska liðið enda Hákon búinn að vinna sér fast sæti í byrjunarliðinu í síðustu leikjum.

KSÍ segir frá þessu á miðlum sínum en þar kemur líka fram að ekki verði kallaður inn annar leikmaður að svo stöddu.

Ísland mætir Svartfjallalandi á Laugardalsvellinum á föstudaginn og spilar svo útileik við Tyrkland eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×