Innlent

Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað sam­fé­lagið

Heimir Már Pétursson skrifar
Fyrirhugað er að reisa 26 vildmyllur í Búrfellslundi sem gefi 120 megavött. Landsvirkjun segir mikla þörf á aukinni orku í samfélaginu og hefur verið með Búrfellslund í undirbúningi í rúman áratug.
Fyrirhugað er að reisa 26 vildmyllur í Búrfellslundi sem gefi 120 megavött. Landsvirkjun segir mikla þörf á aukinni orku í samfélaginu og hefur verið með Búrfellslund í undirbúningi í rúman áratug. Landsvirkjun

Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda. 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti í gær að kæra virkjunarleyfi sem Orkustofnun gaf nýlega út fyrir Búrfellslund vindorkugarðinn til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Vindorkugarðurinn á ekki að rísa í landi sveitarfélagsins en meirihluti sveitarstjórnar telur hann hafa áhrif á framtíðar skipulagsmöguleika þess.

Sveitarstjórnin vísar til tillagna sem Bjarni Benediktsson þáverandi fjármálaráðherra greindi frá í febrúar á þessu ári, sem gætu tryggt efnahagslegan ávinning nærumhverfis sveitarfélaga af orkuvinnslu, sem ekki hafi gengið eftir. Áður en ný lög hefðu verið samþykkt væri ekki hægt að halda lengra.

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir Skeiða- og Gnúpverjahrepp ekkert hafa með framkvæmdaleyfi Búrfellslundar að gera, en vilji fá hlutdeild í fasteignagjöldum virkjunarinnar.Stöð 2/Egill

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir að samkvæmt gildandi lögum þurfi ekki að sækja um framkvæmdaleyfi til Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Enda ætti Búrfellslundur að rísa á framkvæmdasvæði Landsvirkjunar á milli Búrfellsvirkjunar Sultartangavirkjunar í Rangárþingi ytra.

„Við höfum nú í rúman áratug verið að undirbúa þessa virkjun. Í flóknu samráðsferli, í gegnum rammaáætlun, umhverfismat, skipulagsvinnu og síðan í gegnum endanlegt virkjanaleyfi og framkvæmdaleyfi. Svo erum við að fá á lokastigum ný viðhorf frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem okkur finnst sérstakt,“ segir Hörður.

Sveitarfélagið hafi ítrekað fengið tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri en ekki nýtt þau fyrr en nú á lookametrunum í lögu undirbúningsferli. Samkvæmt gildandi lögum fari fasteignagjöldin af væntanlegri virkjun til Rangárþings ytra og hann telji allar líkur á að þar verði samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi.

„Þannig að þetta snýst að mínu mati fyrst og fremst um að Skeiða- og Gnúpverjahreppur telur að þeir eigi að fá hlut af fasteignagjöldunum. Það er bara ekki hluti af veitingu framkvæmdaleyfis,“ segir forstjóri Landsvirkjunar. Fyrirtækið uppfylli allar forsendur fyrir framkvæmdaleyfi.

Búrfellslundur væri nauðsynleg viðbót við orkuframleiðslu í landinu enda skortur á orku miðað við þarfir samfélagsins. Landsvikjun áformi að hefja undirbúningsframkvæmdir í vetur þannig að vindorkuverið komist í gagnið í lok árs 2026.

„Ef við náum ekki undirbúningsframkvæmdunum núna í vetur mun verkefnið að minnsta kosti frestast um ár. Jafnvel um tvö ár. Það mun hafa mjög neikvæð áhrif á samfélagið,“ segir Hörður Arnarson.

Könnun Maskínu sem birt var í dag.Maskína

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem birt var í morgun finnst 65 prósentum Íslendinga skipta miklu máli að afla aukinnar orku á Íslandi. Þá eru 50 prósent hlynnt fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi. Í sömu könnun kemur einnig fram að 76 prósent Íslendinga finnist það skipta miklu máli að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila.


Tengdar fréttir

Meiri­hluti vill að hið opin­bera nýti vindinn

Mikill meirihluti þjóðarinnar telur mikilvægt að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Helmingur þjóðarinnra er hlynntur fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×