Enski boltinn

Romeo Beck­ham leggur skóna á hilluna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Romeo í leik með Brentford.
Romeo í leik með Brentford. Vísir/Getty Images

Romeo James Beckham, sonur David og Victoriu Beckham, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna aðeins 22 ára að aldri.

Romeo lék með yngri liðum Arsenal á sínum yngri árum áður en hann færði sig til Inter Miami árið 2021 þar sem faðir hans er einn þriggja eiganda liðsins. Lék hann með varaliði félagsins á meðan hann var samningsbundinn Inter.

Á síðasta ári samdi hann við Brentford, sem leikur einnig í Lundúnum líkt og Arsenal, og lék með B-liði félagsins á síðustu leiktíð. Hann hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna til að geta einbeitt sér að ferli sínum sem fyrirsæta en Romeo samdi nýverið við módelskrifstofu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×