Fótbolti

Fór af velli á þrettándu mínútu í síðasta leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alex Morgan kvaddi í gær. Með henni var dóttir hennar Charlie sem er að vera stóra systir.
Alex Morgan kvaddi í gær. Með henni var dóttir hennar Charlie sem er að vera stóra systir. Getty/ Kaelin Mendez

Bandaríska knattspyrnukonan Alex Morgan lék sinn síðasta leik á ferlinum í nótt en hún tilkynnti fyrir leikinn að fótboltaskórnir væru að fara upp á hillu.

Morgan hafði einnig sagt frá því að hún væri ólétt af sínu öðru barni. Hún endaði ferilinn sem leikmaður San Diego Wave.

Síðasti leikurinn var ekki langur hjá Morgan því hún fór af velli á þrettándu mínútu.

Morgan spilar í treyju númer þrettán og þetta var því mjög táknræn skipting.

@justwomenssports

Kvöldið hefði getað orðið aðeins betra fyrir þessa goðsögn því hún fór illa með upplagt tækifæri til að skora í lokaleiknum.

Morgan tók vítaspyrnu á tíundu mínútu en lét verja frá sér. Morgan brosti kaldhæðnislega á eftir en hún fékk því ekki alveg draumaendinn sinn.

San Diego Wave lenti undir í upphafi leiks en jafnaði metin áður en Morgan yfirgaf völlinn. Liðið varð hins vegar að sætta sig við 4-1 tap í leiknum.

Morgan tók af sér fótboltaskóna á miðjum vellinum og sendi fingurkossa til áhorfenda sem sungu nafn hennar. Leikmenn úr báðum liðum komu til hennar og fögnuðu endalokunum með henni.

Hún er ein farsælasta knattspyrnukona sögunnar og endar sem fimmti markahæsti leikmaður bandaríska landsliðsins með 123 mörk í 224 leikjum. Hún sem leiðtogi liðsins var einnig í fararbroddi í baráttu liðsins fyrir jafnrétti og sömu kjörum og karlarnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×