Fótbolti

Šeško með þrennu og Haaland hetja Noregs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tryggði Noregi sigur í kvöld.
Tryggði Noregi sigur í kvöld. Mateusz Slodkowski/Getty Images

Í B-deild Þjóðadeildar karla í knattspyrnu var af nægu að taka í kvöld. Wales skoraði tvö á þremur mínútum í Svartfjallalandi, Slóveninn Benjamin Šeško skoraði þrennu og Noregur vann leik.

Í riðli okkar Íslendinga mætti Wales til Svartfjallalands og byrjaði af gríðarlegum krafti. Eftir aðeins þriggja mínútna leik var staðan orðin 2-0 gestunum í vil. Kieffer Moore skoraði fyrra markið eftir undirbúning Harry Wilson sem skoraði svo sjálfur annað markið eftir undirbúning Neco Williams.

Driton Camaj minnkaði muninn fyrir heimamenn í síðari hálfleik en það dugði ekki til og lokatölur 1-2. Það þýðir að staðan í riðli 4 er þannig að Svartfjallaland er án stiga, Ísland með þrjú stig eftir tap í Tyrklandi í kvöld. Tyrkland og Wales eru svo á toppnum með fjögur stig.

Í riðli 3 var Austurríki í heimsókn hjá Noregi. Heimamönnum hefur gengið illa undanfarið en Felix Myhre kom Norðmönnum yfir snemma leiks en Marcel Sabitzer svaraði fyrir gestina áður en fyrri hálfleik lauk, staðan 1-1 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.

Markamaskínan Erling Haaland tryggði Noregi nokkuð óvæntan sigur þegar tíu mínútur lifðu leiks, lokatölur 2-1 Noreig í vil. Þá vann Slóvenía sannfærandi sigur á Kasakstan í sama riðli. Staðan var 2-0 í hálfleik eftir tvennu Benjamin Šeško. Hann var svo aftur á ferðinni í síðari hálfleik og fullkomnaði þrennu sína.

Staðan í riðli 3 er þannig að Noregur og Slóvenía eru með fjögur stig. Á sama tíma eru Austurríki og Kasakstan með eitt stig hvort.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×