Viðskipti innlent

Play bætir við á­fanga­stað í Króatíu

Atli Ísleifsson skrifar
Í Pula er meðal annars að finna sögufrægt hringleikahús.
Í Pula er meðal annars að finna sögufrægt hringleikahús. Getty

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til borgarinnar Pula í Króatíu. Um er að ræða annan áfangastað félagsins til Króatíu en boðið hefur verið upp á ferðir til Split.

Í tilkynningu frá Play segir að fyrsta flugið til Pula verði laugardaginn 31. maí 2025 og verður flogið einu sinni í viku fram til 16. ágúst.

Fram kemur að Play hafi flogið einu sinni í viku til Split í ár við góðar undirtektir og muni áætlunin standa út október í ár. 

„Á næsta ári verður ferðum til Split fjölgað í tvisvar sinnum í viku þegar mest lætur yfir áætlunina sem stendur frá 14. apríl og fram til loka október.

Borgin Pula er við Adríahafsströndina en hún einkennist af fallegum ströndum, líflegri menningu og mögnuðum fornminjum. Pula hentar því jafnt þeim sem sækjast eftir slökun og endurheimt og þeim sem vilja ævintýralegar gönguferðir og líflegt næturlíf.

Split býður einnig upp á möguleikann á ljúfri strandarferð við Adríahafið og í rétt undan ströndum beggja borga er að finna skemmtilegar eyjar með fjölbreyttu lífríki.

Þá mun Play einnig bjóða upp á þrjár ferðir til Zagreb í Króatíu í janúar. Ferðirnar þrjár eru allar á dagskrá í tengslum við leiki íslenska karlalandsliðsins í handbolta í riðlakeppni Heimsmeistaramótsins,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Sæta­nýtingin aldrei verið betri

Flugfélagið Play flutti 187.960 farþega í ágúst 2024, sem er 1,8 prósenta aukning frá ágúst í fyrra þegar félagið flutti 184.926 farþega. Sætanýtingin í nýliðnum ágústmánuði var 91,6 prósent, sem er met í einum mánuði hjá félaginu en um er að ræða 2,7 prósenta aukningu frá ágúst í fyrra þegar sætanýtingin var 88,9 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×