Viðskipti innlent

Kveður ostasnakkið fyrir Wolt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhann Már Helgason er mættur til starfa hjá Wolt.
Jóhann Már Helgason er mættur til starfa hjá Wolt. Wolt

Jóhann Már Helgason hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá heimsendingaþjónustunni Wolt á Íslandi. Hann hefur undanfarin fimm ár starfað sem fjármálastjóri Lava cheese.

Jóhann Már greinir frá vistaskiptunum á Facebook. Lava Cheese er ostasnakk með ólíkum bragðtegundum.

„Við upphaf þessa mánaðar hóf ég störf hjá Wolt sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs. Það var afskaplega erfið ákvörðun að segja skilið við Lava Cheese eftir að hafa verið þar í fimm ár og fylgt því verkefni í gegnum erfiða Covid tíma og í kjölfarið náð góðum árangri sem m.a. skiluðu sér í dreifingarsamningum í bæði Þýskalandi og Bretlandi,“ segir Jóhann Már í færslu á Facebook.

„Að lokum ákvað ég að taka stökkið því mér fannst tækifærið það stórt og fyrirtækið afar spennandi. Wolt er með starfsemi í 27 löndum og hefur vaxið á ógnarhraða hér á Íslandi svo það eru skemmtilegir tímar framundan.“

Wolt hóf störf á Íslandi í fyrra og hefur stækkað umsvif sín hratt síðan þá.

Jóhann Már er mikill knattspyrnuáhugamaður og starfaði á sínum tíma sem framkvæmdastjóri Vals. Þá hefur hann verið kallaður til sem sérfræðingur í hlaðvarpsþáttunum Dr. Football.


Tengdar fréttir

Wolt tekur hlutverk sitt á Íslandi alvarlega

Í aðsendri grein á Vísi og aftur á Stöð 2 fjölluðu Halldór Oddsson og Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ um alvarlegar ásakanir sem beint er að Wolt. Þessum ásökunum getum við ekki látið ósvarað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×