Enski boltinn

For­tíðar­þrá tröll­ríður öllu á X: Gamlar hetjur fá nýtt líf

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn frá Norðurlöndunum gerðu það lengi vel gott í ensku úrvalsdeildinni. Á listanum hér að neðan má finna Íslending, Finna og Norðmann.
Leikmenn frá Norðurlöndunum gerðu það lengi vel gott í ensku úrvalsdeildinni. Á listanum hér að neðan má finna Íslending, Finna og Norðmann. EPA

Segja má að fortíðarþrá herji á öll þau sem voru djúpt sokkin í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu frá árunum 2005 til 2017. Ástæðan er ákveðin tíska eða trend svokallað sem tröllríður öllu nú á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter.

Þar birtist nú haugur myndbanda undir myllumerkinu #Barclaysmen. Um er að ræða myndbönd af fyrrum hetjum ensku úrvalsdeildarinnar. Það er á reiki af hverju myllumerkið ber þetta nafn þar sem Barclays var opinber styrktaraðili deildarinnar frá 2007 til 2017 en mörg myndbandanna eru af mönnum sem voru upp á sitt besta fyrir þann tíma. 

Sem dæmi má nefna hinn norska Morten Gamst Pedersen. Sá lagði skóna aðeins á hilluna fyrr á þessu ári, þá 43 ára gamall en hann er hvað frægastur fyrir veru sína hjá Blackburn Rovers frá 2004 til 2013. Var hvað þekktastur fyrir ljósar strípur og frábæran vinstri fót sem þýðir að hann er fullkomið #Barclaysmen dæmi.

Stoke City var á sínum tíma heldur áhugavert lið og þá var Rory Delap mjög svo einstakur leikmaður þar sem hann var þekktari fyrir löngu innköstin sín heldur hæfileika með boltann. Það var því gefið að einhver myndi henda í létta samantekt af hreint út sagt ótrúlegum innköstum hans. 

David Moyes stýrði West Ham United á síðustu leiktíð og náði almennt fínum árangri með liðið. Það minnti á að áður en hann tók við Manchester United gerði hann frábæra hluti með Everton. Segja má að liðið hafi spilað heiðarlegan fótbolta en ákveðnir leikmenn fengu þó að leika listir sínar. Einn af þeim var Steven Pienaar, frábært dæmi um #Barclaysmen.

Hinn 37 ára gamli Luis Nani er vissulega enn að spila en það gleymist oft að hann gaf 53 stoðsendingar og skoraði 26 mörk í 147 deildarleikjum fyrir Manchester United frá 2007 - 2015. Þá varð hann enskur meistari fjórum sinnum. Ofan á það var hann skemmtikraftur.

Fulham ákvað að gera ekki upp á milli leikmanna sinna og birti myndband með haug af skemmtilegum leikmönnum sem hafa klæðst treyju félagsins.

Takmarkaðir enskir framherjar hafa einnig fengið mikla ást, einn þeirra er Charlie Austin. Hann fór mikinn  með Queens Park Rangers á sínum tíma. Í dag spilar hann með AFC Totton. Annar er Grant Holt, goðsögn hjá Norwich City.

Jussi Jääskeläinen er á sinn hátt einn frægasti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar án þess þó að hafa spilað fyrir stórlið eða unnið titla. Hann var ef til vill upp á sitt besta örlítið fyrir 2007 og sést það á gæðum myndefnisins en kemur þó ekki að sök annars.

Jussi spilaði þegar lið voru ekki mikið að spila út frá marki svo það óvíst hvort hann myndi passa inn í deildina eins og hún er í dag en þegar það kom að því að verja tuðruna voru fáir betri.

Hermann Hreiðarsson fékk að vera með, að því leytinu til að honum brá fyrir í myndbandi sem Portsmouth birti af eftirminnilegustu atvikum sínum er liðið var enn í úrvalsdeildinni.

Síðast en ekki síst er það Eiður Smári Guðjohnsen, sigursælasti Íslendingurinn til að hafa spilað á Englandi.

Myndböndin hér að ofan eru aðeins brot af þeim myndböndum sem finna má undir myllumerkinu á X, áður Twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×