Erlent

Gætu leyft Úkraínu að nota lang­dræg flug­skeyti gegn Rúss­landi

Kjartan Kjartansson skrifar
Antony Blinken (í forgrunni) og David Lammy (lengst til hægri) við komuna til Kænugarðs í dag.
Antony Blinken (í forgrunni) og David Lammy (lengst til hægri) við komuna til Kænugarðs í dag. AP/Leon Neal

Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina.

Úkraínsk stjórnvöld hafa þrýst á bandaríska bandamenn sína að aflétta banni við að þeir skjóti bandarískum langdrægum flugskeytum inn í Rússland. Bandaríkjastjórn hefur verið treg til að heimila það af ótta við að átökin stigmagnist. Vladímír Pútín Rússlands hefur ítrekað haft í hótunum við vestræna bandamenn Úkraínu um að þeir skipti sér ekki af stríðinu.

Sérstaklega vilja Úkraínumenn geta notað langdræg flugskeyti til þess að ráðast á flugvelli sem Rússar nota til þess að senda af stað svonefndar svifsprengjur sem er varpað úr flugvélum og hafa valdið miklum usla í Úkraínu.

„Ef við fengjum að granda hernaðarskotmörkum eða vopnum sem óvinurinn undirbýr fyrir árásir á Úkraínu þá hjálpaði það okkur sannarlega að auka öryggi óbreyttra borgara, þjóðarinnar og barnanna okkar,“ sagði Denys Sjmjal, forsætisráðherra Úkraínu, í gær.

Antony Blinken, utanríkisráðherra, er nú staddur til skraf og ráðagerða með Vlodýmýr Selenskíj Úkraínuforseta í Kænugarði. Með honum í för er David Lammy, breski utanríkisráðherrann. Blinken sagði að eitt af markmiðum ferðarinnar væri að heyra beint frá Úkraínumönnum hvert þeir stefndu og hvað Bandaríkin gætu gert til þess að styðja þá.

Þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti var spurður af því hvort að hann ætlaði að aflétta takmörkunum á beitingu bandarískra langdrægra flugskeyta í gær svaraði hann því til að ríkisstjórn ynni nú að því, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Á sama tíma sakar Bandaríkjastjórn klerkastjórnina í Íran um að sjá Rússum fyrir Fath-360, skammdrægum flugskeytum, sem þeir gætu tekið í notkun á allra næstu vikum. Lammy tók undir að það væri hættuleg stigmögnun átakanna. Íranir hafa ítrekað neitað því að þeir útvegi Rússum vopn til stríðsreksturs þeirra í Úkraínu.

Rússar hafa beitt flugskeytum til þess að rústa orkuinnviðum Úkraínu. Þær árásir hafa færst í aukana á undanförnum vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×