Viðskipti innlent

Hafa veitt virkjunar­leyfi fyrir Hvamms­virkjun

Atli Ísleifsson skrifar
Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun, stíflunni í ánni, lóninu sem myndast ofan við hana og stöðvarhúsinu á austurbakka Þjórsár.
Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun, stíflunni í ánni, lóninu sem myndast ofan við hana og stöðvarhúsinu á austurbakka Þjórsár. Landsvirkjun

Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þar kemur ennfremur fram að Orkustofnun hafi jafnframt gefið út leyfi til stækkunar Sigölduvirkjunar úr 150 MW í 215 MW með því að bæta fjórðu vélinni við. Þar sæki Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi til Ásahrepps og Rangárþings ytra.

„Stækkun Sigölduvirkjunar eykur afl og sveigjanleika í raforkukerfinu. Með aflaukningunni eykst orkuvinnslugeta stöðvarinnar aðeins lítillega, nema til komi meira rennsli með aukinni bráðnun jökla eða aukinni úrkomu. Áætlað er að stækkun verði lokið í lok árs 2027.

Hvammsvirkjun er fyrirhuguð í Þjórsá. Hún verður 740 GWst, 95 MW að stærð, sem þýðir að hún getur unnið svipaða orku og jarðvarmavirkjunin Þeistareykir á Norðurlandi gerir nú.

Orkustofnun gaf áður út virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar í desember 2022. Það var kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Öllum álitamálum nema einu var vísað frá, en nefndin féllst hins vegar á að ekki hefði verið tryggt að útgáfa virkjunarleyfisins væri í samræmi við vatnaáætlun, sem gefin hafði verið út í fyrsta skipti í apríl 2022. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var því sú að fella virkjunarleyfið úr gildi. Umhverfisstofnun hefur síðan veitt heimild til breytinga á vatnshloti,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdir hefjist sem fyrst

Ennfremur segir að vegna þeirra tafa sem hafi orðið í leyfisveitingaferlinu þurfi framkvæmdir að hefjast sem allra fyrst, eigi það takmark að nást að stöðin skili orku í árslok 2028. 

„Vegagerðin er langt komin með endurbætur á Hvammsvegi og undirbýr lagningu nýs Búðafossvegar og brúar yfir Þjórsá. Landsvirkjun mun hefjast handa við gerð aðkomuvegar í framhaldi af Hvammsvegi og gröft frárennslisskurðar, þaðan sem efni fæst í Búðafossveg, fljótlega eftir að framkvæmdaleyfi sveitarfélaganna liggja fyrir. Einnig verður lagður grunnur að vinnubúðum og lagt veitukerfi fyrir þær og framkvæmdasvæðið allt,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×