Skoðun

Trú­verðug­leiki til sölu!

Jakob Frímann Magnússon skrifar

Niðurstaða hagfræðinga:

Veiðigjald veikir sjávarútveg!!

Marga rak í rogastans nú í vikubyrjun er ofangreind fyrirsögn um veiðigjöld blasti við okkur í Morgunblaðinu í kjölfar birtingar nýrrar skýrslu virtra hagfræðinga.

Nú hafa kjör og afkoma heillar þjóðar verið í höndum hagfræðinga um langt árabil. Tæpast hefur traust á hagfræðingum beinlínis vaxið samhliða þeim háu vöxtum sem hér hafa verið lagðir á landsmenn undir því yfirskini að slík spennitreyja sé hagkerfinu og okkur öllum fyrir bestu.

„Þetta er eina meðalið gegn verðbólgunni“ segja þeir ítrekað. En meðalið virðist bara ekki virka.

Þegar fyrirsögn á borð við þá hér að ofan er slengt framan í þjóðina í eina eftirlifandi dagblaði landsmanna er trúverðugleika hagfræðinga enn á ný verulega ógnað og ekki víst að þar sé miku á bætandi. Nú vitum við öll að fólkið sem fær að moka aflanum úr auðlindinni okkar sameiginlegu allra berst með kjafti og klóm gegn því að þurfa að greiða sanngjarna rentu af auðlindinni. Fólkið sem hefur auðgast stórum á sameiginlegri eign allra telur sig hafið yfir samfélagslegt réttlæti.

Útgerðarfólk gerir m.a. út Morgunblaðið sem lykilmálsvara sinn, sóma, sverð og skjöld. En að etja virðulegum hagfræðingum á foraðið við að setja frá sér þvælu af þessum toga er beinlínis skaðlegt, ekki bara orðspori og virðingu umræddra hagfræðinga, heldur almennri tiltrú samfélagsins á stétt hagfræðinga. „Eru þetta bullfræði“ tekur venjulegt fólk að hugsa, sem fyrir löngu hefur fengið meira en nóg.

Mörgum er minnistæð stórgóð sannsöguleg kvikmynd, THE BIG SHORT, sem lýsir tilurð alþjóðlega bankahrunsins 2008.

Á fundi áreiðanleikavottunarfyrirtækisins Moody´s sem selur þjóðum og stórfyrirtækjum einkunnir í bókstöfum ( A AA AAA o.s.frv. ) er krefjandi spurningum Wall Street - bankamanns (túlkuðum af Steve Carrell) svarað snúðugt af forstjóra Moody´s: „ Hví skyldum við ekki gefa þessari fjármálastofnun (Barings) ágætiseinkunnina AAA? Ef við gerðum það ekki myndu þeir bara fara yfir götuna og kaupa sér sömu vottun hjá vottunarfyrirtækjunum FITCH eða REUTERS og við yrðum þá af öllum stórviðskiptunum við þá!“

Þetta sannsögulega atriði opnaði sannarlega augu margra, enn og aftur, fyrir því að í henni Ameríku er jú allt til sölu – m.a.s. fölsuð áreiðanleikavottorð.

Skyldu fleiri en sá sem þetta ritar hafa hugsað með sér eftir lestur umræddrar fyrirsagnar:

Er bara ekki allt til sölu á Íslandi líka?

Og hver skyldi nú hafa keypt sér hið óvænta og stórundarlega hagfræðiálit sem hér um ræðir?

Varla þó Samtök fyirtækja í sjávarútvegi?

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.




Skoðun

Sjá meira


×