Erlent

Leið­togi Hezbollah allur

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Hassan Nasrallah hafði verið leiðtogi Hezbollah-samtakanna í 32 ár.
Hassan Nasrallah hafði verið leiðtogi Hezbollah-samtakanna í 32 ár. getty

Ísraelski herinn greinir frá því í tilkynningu á samfélagsmiðlum, að Sayyed Hassan Nasrallah leiðtogi Hezbollah-samtakanna hafi fallið í árásum hersins í Beirút í Líbanon. 

Í færlsu frá hernum á X segir að Hassan Nasrallah muni ekki lengur halda heiminum í heljargreipum.

Heimildarmaður AFP-fréttaveitunnar tengdur Hezbollah staðfestir sömuleiðis að ekki hafi heyrst frá leiðtoganum frá því í gær.

Árásir Ísraela hafa staðið yfir í Beirút síðustu daga og hafa beinst að vopnabúrum Hezbollah-samtakanna undir íbúðarblokkum.

Íbúar í nágrenni við þrjár byggingar í úthverfi suður af Beirút fengu skilaboð frá Ísraelsher um að koma sér að minnsta kosti fimm hundruð metra frá þeim í kvöld. Fjöldi fólks hefur þurft að flýja heimili sín vegna árásanna. 

Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir að fleiri en sjö hundruð manns hafa fallið í loftárásum Ísraela á Líbanon í vikunni. Áfram sé leitað í rústum húsa í Dahieh. Ísraelar segjast ætla að halda árásunum áfram þar til þeir vinna fullnaðarsigur á Hezbollah sem hefur staðið fyrir flugskeytaárásum á Ísrael.

„Ekki það síðasta í verkfærakassanum“

Herzi Halevi yfirmaður innan ísraelska hersins segir árásina hafa verið þaulskipulagða og „komið á réttum tíma og mjög snarpt“.

„Hver sem ógnar Ísraelsríki, við munum kunna að komast að honum: í norðri, í suðri og víðar,“ er haft eftir Halevi í ísraleskum miðlum.

„Þetta er ekki síðasta verkfærið, það eru fleiri verkfæri sem bíða,“ bætti Halevi við.

Með undanförnum árásum á hæstu yfirmenn innan Hezbollah má segja að átökin milli Ísralelshers og samtakanna hafi stigmagnast. Fyrstu mánuði þessa stríðs var talið að Ísraelar myndu ekki ráðast gegn æðstu ráðamönnum Hezbollah en nú hefur Ísraelsher fellt fjölda yfirmanna innan samtakanna. Herinn birti yfirlitsmynd í dag af þeim yfirmönnum sem felldir hafa verið. 

Yfirlitsmynd ísraelska hersins yfir yfirmenn innana Hezbollah sem hafa fallið.

Nýjustu vendingar teygja anga sína víðar um Mið-Austurlönd. Æðsti leiðtogi Írans Ayatollah Ali Khamenei gaf til að mynda frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann stappar stálinu í Hezbollah-samtökin og íbúa í Líbanon. Greint var frá því fyrr í dag að leiðtoginn hefði verið færður á öruggan stað vegna árásanna.

Í yfirlýsingunni kallar hann eftir því að „standa þétt við bakið á fólkinu í Líbanon og Hezbollah samtökunum og styðja með hvað hætti sem fólki er kleift“.

„Örlög álfunnar ráðast af krafti andstöðunnar, með Hezbollah í fremstu víglínu,“ er haft eftir Ali Khamenei í tilkynningu. 


Tengdar fréttir

Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að hann hefði aðeins mætt á það til þess að svara lygum og rógburði annarra þjóðarleiðtoga þar. Hann hét því að halda stríðinu gegn Hamas og Hezbollah áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×