Leikurinn við Wales er föstudagskvöldið 11. október og Tyrkir mæta svo þremur dögum síðar.
Ísland er með þrjú stig í sínum riðli eftir sigur gegn Svartfellingum á Laugardalsvelli, en tap gegn Tyrkjum ytra. Tyrkir og Wales eru með fjögur stig hvort en Svartfellingar neðstir, án stiga.
Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, sagði á blaðamannafundi í dag að búið væri að selja 3.400 miða á leik Íslands við Wales. Þar af hefðu hins vegar heilir 1.000 miðar farið til Walesverja sem ætla greinilega að fjölmenna til Reykjavíkur.
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vonast til þess að Íslendingar láti vel í sér heyra.
„Stuðningur þeirra sem mættu á leikinn við Svartfjallaland var mjög góður. En ég vona að við fáum enn fleiri stuðningsmenn á heimaleikina við Wales og Tyrkland. Það er svo mikilvægt fyrir okkur og leikmennina að hafa stuðninginn á heimavelli,“ sagði Hareide og bætti við:
„Wales hefur tilkynnt að það komi 1.000 stuðningsmenn en við eigum að geta yfirgnæft þá í stúkunni og vonandi gerum við það innan vallar líka. Það myndi hjálpa mikið að hafa stuðningsmennina með okkur.“