„Við bjóðum upp á hráa íslenska náttúruupplifun með fyrsta flokks þjónustu í aðeins 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík,“ segir Hilmar Þór Bergmann, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur. „Frá upphafi höfum við verið meðvituð um að varðveita náttúruna og hafa hana í forgrunni. Ásamt sjóböðunum í fjöruborðinu og gufubaðinu má finna lítinn veitingastað, funda- og veislusal og gistingu.“

Gestir sjóbaðanna geta einnig nýtt sér reglulega tíma í Wim Hof aðferðinni og sjósundstíma, sér að kostnaðarlausu. „Þá geta gestir farið á Paddle bretti í fjörðinn eða gengið út í Hvammshöfða og upp að Steðja þegar Hvammsvík er heimsótt.“
Hilmar segir aðsóknina hafa verið mjög góða frá upphafi og farið stigvaxandi með hverjum mánuðinum. „Við leggjum mikla áherslu á upplifun gesta og leggjum því áherslu á að taka ekki við of mörgum ofan í laugarnar í einu. Því takmörkum við miðaframboð á hverjum tíma. Það er því mikilvægt að fólk bóki sér tíma fyrir fram á vefnum okkar."

Hver heimsókn er í raun einstök
Nokkur baðlón hafa opnað hér á landi á síðustu árum. Það sem aðgreinir Hvammsvík frá öðrum að sögn Hilmars er þessi hráa upplifun sem stjórnast af samspili dýralífs, sjávarfalla og dagsbirtu. „Hvalfjörðurinn er alveg einstök náttúruperla og hver heimsókn er í rauninni einstök. Þú getur farið úr því að lygna aftur augunum og heyra úið í æðarkollunni á sumrin yfir í að horfa á Norðurljósin og hlusta á niðinn í vetrarþögninni.“

Og svo er auðvitað stutt í Atlantshafið en það er mjög hressandi að stinga sér í sjóinn og hlýja sér svo eftir á í böðunum. „Stundum synda forvitnir selir alveg upp að laugunum til að skoða mannfólkið. Heita vatnið kemur úr borholu rétt hjá laugunum og það er kælt niður með söltum sjónum. Við fáum síðan kalda drykkjarvatnið úr Reynivallahálsi, fjallinu fyrir ofan okkar, þannig að við erum sjálfbær með alla okkar vatnsnotkun.“

Sjávarréttasúpan löngu orðin vel þekkt
Veitingastaðurinn Stormur Bistro býður upp á ljúffengar veitingar sem gott er að gæða sér á eftir frískandi ferð í sjóböðin. „Stormur Bistro býður upp á léttan og einfaldan matseðil sem inniheldur meðal annars opnar samlokur og súpur. Við leggjum mikla áherslu á að nýta íslenskt hráefni og breytum matseðlinum eftir árstíðum. Sjávarréttasúpan okkar er löngu orðin vel þekkt og er mjög vinsæl enda einstaklega bragðgóð, matarmikil og borin fram með fersku súrdeigsbrauði og smjöri. Það er ekkert leyndarmál að við seldum fleiri lítra af henni en bjór í fyrra.“

Hlaðan er vinsæl hjá fyrirtækjahópum
Fyrir þau sem vilja ganga alla leið og gista er boðið upp á einkaleigu í uppgerðum húsum sem áður voru bóndabæir, golfskáli og samskiptamiðstöð hersins í seinni heimsstyrjöldinni. „Húsin taka allt frá fjórum og upp í níu gesti í gistingu hvert og henta því vel fyrir allskyns tilefni.“
Á svæðinu er einnig uppgerð hlaða þar sem er nú fundar- og veislusalur þar sem hægt er að taka á móti allt að 60 manna hópum í ýmiskonar viðburði. „Það er til að mynda mjög vinsælt hjá fyrirtækjahópum að vera með vinnudag í Hvammsvík sem endar í sjóböðunum og með þriggja rétta mat í hlöðunni en við höfum einnig verið með töluvert af heilsutengdum viðburðum svo sem jóga námskeið og vinnustofur rithöfunda. Einnig er vert að minnast á jólahlaðborðið okkar í hlöðunni sem er í boði fyrir hópa annað árið í röð og komust færri að í fyrra en vildu.“
Allar nánari upplýsingar á vef Hvammsvíkur.
