Erlent

Mætti á Fox í gær og á í við­ræðum um við­tal við Rogan

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Harris er dugleg við að mæta í viðtöl þessa dagana enda afar mjótt á munum samkvæmt skoðanakönnunum og mikið í húfi.
Harris er dugleg við að mæta í viðtöl þessa dagana enda afar mjótt á munum samkvæmt skoðanakönnunum og mikið í húfi. Getty

Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, var til viðtals á Fox News í gær og sitt sýnist hverjum um hvernig hún stóð sig.

Það var Bret Baier, sem fer fyrir pólitískri umfjöllun hjá fréttastofu Fox, sem tók viðtalið. Baier þykir heldur hófsamari en kollegar sínir hjá Fox en gekk engu að síður hart fram í viðtalinu, spurði Harris óvæginna spurninga og greip ítrekað fram í fyrir henni.

Fyrir viðtalið hélt Harris kosningafund með hópi Repúblikana en hún freistar þess nú að ná til sem flestra fyrir kjördag. Samtalið við Baier gaf varaforsetanum tækifæri á að tala beint til áhorfendahóps sem er almennt íhaldssamur, í þeirri von um að í honum séu einnig einstaklingar sem vantar ástæðu til að kjósa ekki Trump.

Harris var þráspurð um ólöglega innflytjendur, trans fólk og önnur baráttumál Trump. Hún vék sér stundum undan því að svara en var mjög afdráttarlaus þegar hún sagði að valdatíð hennar yrði ekki framhald af forsetatíð Joe Biden.

Það má segja að viðbrögð við viðtalinu endurspegli nokkuð vel umræðuna í kosningabaráttunni vestanhafs en á meðan stuðningsmenn Harris hafa meðal annars gagnrýnt Baier fyrir að tala ítrekað yfir viðmælanda sinn, hafa stuðningsmenn Trump sagt Harris hafa sýnt frekju og yfirgang þegar hún vildi fá orðið aftur.

Fyrirsjáanlega þótti stuðningsmönnum Harris hún standa sig með prýði en stuðningsmenn Trump illa.

Harris hefur verið dugleg við að koma fram í fjölmiðlum síðustu daga og vikur og er nú sögð eiga í viðræum við Joe Rogan um að mæta í gríðarlega vinsælt hlaðvarp hans. Trump ku einnig ætla að ræða við Rogan en hann hefur neitað að mæta Harris aftur í kappræðum og hætti við viðtal við 60 Minutes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×