Skoðun

Þau eru við, við erum þau

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Ódæðið á Gaza heldur áfram, dag eftir dag, og aldrei hefur verið jafn auðvelt að sjá og greina nákvæmlega það sem í gangi er. Ég – eins og fleiri (en ekki nógu margir) – fylgist með í gegnum nokkra Instagram-reikninga og allt blasir þetta við. Morðin, óskapnaðurinn, bjargarleysið, eyðileggingin. Rúmlega 40.000 manns í valnum, 100.000 særðir. Setið er um Norður-Gaza þegar þetta er skrifað þar sem húsnæði eru teppasprengd og fólk myrt í unnvörpum. Fólk er rekið af svæðinu, fjölskyldum sundrað. Sjúkrahús eru sérstök skotmörk, einnig sjúkra- og slökkviliðsbílar. Heilbrigðis- sem fréttafólki er meinaður aðgangur að svæðinu. Fólk í leit að mat er skotið á færi. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossins eru myrtir blygðunarlaust. Hjálpargögn eru stöðvuð á landamærunum. Allar ályktanir alþjóðastofnanna eru hunsaðar. Mannréttindi eru þver- og mölbrotin, hægri vinstri. Ég er ekki bara að lýsa yfirstandandi atburðarás í Norður-Gaza, svona er þetta búið að vera síðasta árið og lengur reyndar.

Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, sagðist í gær (27. október) vera í áfalli yfir því „hástigi hörmunga“ sem einkennir nú Norður-Gaza. Þessi grimmilega uppræting á heillri þjóð sem býr yfir afar takmörkuðum bjargráðum til að verja sig, uppræting sem er studd með ráðum og dáð af öflugasta herveldi heims. Um 17.000 börn hafa verið drepin í Gaza síðasta árið. Hærri tala hefur ekki komið fram á heimsvísu í meira en tuttugu ár.

Það er merkilegt hvernig þessar aðgerðir eru síðan klæddar upp sem eitthvað annað en þær eru, bæði af Ísrael og Bandaríkjunum. Nauðvörn? Segðu mér annan! Þjóðarmorð er þetta og þjóðarmorð skal þetta heita því að það sem fer fram þarna tikkar í öll box lagalegrar skilgreiningar S.Þ. frá 1948. Um leið fyllir það mann hreinlega skelfingu að S.Þ. er sem lamað í þessu tiltekna máli. Bandaríkin eru sem ofbeldisfullur heimilisfaðir, með heiminn í heljargreipum, og fara fram eins og þeim hentar. Og skilgreinir eins og þeim hentar.

Þetta er ógeðslegt, allt saman. Stundum hef ég reynt að ímynda mér að fólkið á Gaza hljóti bara að vera aðeins öðruvísi en við. Það þoli aðeins meira en við. Þetta er „langt í burtu“ og þess vegna hlýtur þetta bara að vera aðeins öðruvísi. Er það ekki? Þetta bara „verður“ að vera öðruvísi en hér. Því að það getur ekki verið að þessi börn sem þarna eru drepin séu alveg eins og mínar dætur. Það hreinlega má ekki vera þannig, því að hugsunin um slíkt er mér/okkur hreinlega um megn.

Svo horfir maður á myndböndin og sér myndirnar. Þetta eru sömu svipirnir, sami óttinn, sama úrræðaleysið. Sama holdið og sama blóðið. Angistin í augum feðranna og mæðranna er nákvæmlega sú sama og sé í fólkinu mínu. Þau eru við. Við erum þau.

Höfundur er félags- og tónlistarfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×