Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Artasan 4. nóvember 2024 12:54 Magic Magnesíum línan frá New Nordic býður upp á þrjár mismunandi tegundir af magnesíum þar sem hver tegund hefur sína sérstöku virkni á líkamann.
Í umræðunni um heilsu og næringu er mikilvægt að muna eftir magnesíum. Magnesíum er fjórða algengasta efnið í líkamanum og spilar mikilvægt hlutverk í að viðhalda almennu heilbrigði og efla okkur andlega sem og líkamlega. Þetta steinefni tekur þátt í yfir 300 lífefna- og lífeðlisfræðilegum ferlum í líkama okkar og stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, vöðvastarfsemi og próteinmyndun, auk viðhaldi beina og tanna. Magnesíum er jafnframt nauðsynlegt steinefni fyrir hjarta- og æðakerfi, alla orkuvinnslu í líkamanum og blóðsykursjafnvægi. Magnesíum getur haft mikil áhrif á almenna heilsu og vellíðan Margir hverjir hafa aukna þörf á magnesíum nú til dags og er það að hluta til vegna nútíma mataræðis. Vaxandi neysla á unnum matvælum, sem eru oft næringarsnauð, gerir það að verkum að fólk fær ekki nægilegt magn af magnesíum úr fæðunni. Jafnframt hefur jarðvegseyðing leitt til þess að minna magnesíum er að finna í ávöxtum og grænmeti en áður. Þegar að við fáum ekki nóg magnesíum getur vöntunin sýnt sig í ýmsum kvillum svo sem óeðlilegum hjartslætti, skjálfta og krampa. Önnur merki geta einnig komið fram í gegnum miðtaugakerfið, þar sem það tengist meðal annars svefnleysi eða eirðarleysi. Magnesíum tekur þátt í mörgum mikilvægum ferlum líkamsstarfseminnar og því getur langvarandi vöntun haft víðtæk áhrif á almenna heilsu og vellíðan. Magnesíum stuðlar m.a. að andlegri og líkamlegri slökun Þegar magnesíum er í hæfilegu magni í líkamanum getur það meðal annars hjálpað til við að létta á spennu, bæta svefn og stuðlað að betri andlegri vellíðan. Magnesíum hefur róandi áhrif á taugakerfið, sem getur dregið úr streitu og stuðlað að slökun. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir svefninn en með því að hjálpa líkamanum með slökun getur magnesíum bætt gæði svefns og dregið úr svefntruflunum. Magnesíum hefur einnig mikilvæg áhrif á vöðvaslökun, sem getur minnkað líkur á vöðvakrömpum og fótapirring. Magnesíum er ekki bara magnesíum Magnesíum hefur fjölþætt áhrif á líkamsstarfsemina en magnesíum er ekki bara magnesíum heldur er það til í ýmsum formum, sem hvert og eitt hefur sína eiginleika og virkni. Magic Magnesíum línan frá New Nordic inniheldur þrjár mismunandi tegundir af magnesíum. Hver tegund hefur sína sérstöku virkni, sem tryggir að allir geti fundið það form af magnesíum sem hentar þeirra þörfum best. Magnesíum Citrate fyrir meltingu Magnesíum Citrate hentar sérlega vel fyrir þau sem fá sinadrætti og fótapirring vegna róandi og slakandi áhrifa. Það styður einnig við heilbrigða meltingu með því að hafa losandi áhrif á ristilinn og getur því reynst þeim vel sem þurfa að koma á hreyfingu í þarmana. Magnesíum Glycinate fyrir slökun Magnesíum Glycinate er sérlega gagnlegt til að styðja við heilbrigt svefnmynstur og stuðla að betri svefni vegna amínósýrunnar glýsín sem er þekkt fyrir róandi áhrif. Glycinate hefur einnig slakandi áhrif á taugakerfið og getur stuðlað að léttu skapi og betri andlegri heilsu. Þessi tegund af magnesíum hentar öllum sem eiga erfitt með að ná slökun eða eru að undir miklu álagi og streitu. Glycinate nýtist mjög vel í líkamanum og er milt fyrir magann. Magnesíum Malate fyrir orku Magnesíum Malate hentar öllum sem finna fyrir mikilli þreytu og orkuleysi en það spilar mikilvægt hlutverk í orkuvinnslu líkamans. Malate er einnig þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á vöðvaþreytu og að styðja við heilbrigði beina. Magnesíum Malate stuðlar sérstaklega að því að draga úr þreytu og lúa og bæta almennt orkuna.
Heilsa Mest lesið Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Lífið Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Lífið „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Lífið „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Lífið Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Lífið Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Lífið Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Lífið „Eins og staðan er núna styttist í endamarkið“ Lífið Fleiri fréttir Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Hátindar Öræfajökuls að vori Áttatíu ára sögu Múmínálfanna fagnað með nýrri línu Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs Geðveikt fjör á Bessastöðum „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Gerum betur og setjum heilsuna í forgang „Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Sannkölluð rokkveisla hjá SIGN í Gamla bíói Aldrei of mikið af G-vítamíni Bóndadagsleikur á Vísi - taktu þátt Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Læra og njóta í endurmenntunarferðum KVAN Einstakur bíll sem erfitt gæti verið að toppa Hugræn endurforritun er toppurinn á tindinum Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Sjá meira