Heimildin birti í gær umfjöllun sem byggir á leynilegri upptöku huldumanns við Gunnar Bergmann Jónsson, fasteignasala og fyrrverandi framkvæmdastjóra Félags hrefnuveiðimanna. Hann er sonur Jóns Gunnarssonar. Fram hefur komið að Gunnar átti vikum saman í samskiptum við erlendan karlmann sem þóttist ætla að fjárfesta í fasteignum hér á landi fyrir milljarða króna. Karlmaðurinn, sem kynnti sig sem svissneskan fjárfesti, tók samtöl sín við Gunnar leynilega upp.
Í samtali Gunnars við huldumanninn kom fram að Jón hefði sett fram kröfu á Bjarna Benediktsson forsætisráðherra að fá stöðu í matvælaráðuneytinu gegn því að hann tæki aftur sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Í Heimildinni kom fram að með nýju stöðunni gæti Jón afgreitt vinargreiða, sem væri fólginn í grænu ljósi á hvalveiðar.
Jón Gunnarsson og Kristján Loftsson, einn eiganda og aðalforsprakki Hvals hf., eru góðir vinir. Hvalur hf. er meðal fjögurra fyrirtækja sem hafa lagt inn umsókn um leyfi til hvalveiða fyrir næsta veiðitímabil árið 2025. Jón er yfirlýstur stuðningsmaður hvalveiða.
Eitt viðtal farið fram
Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Gunnar Bergmann hafi verið boðaður í viðtal hjá lögreglunni í gær. Fréttastofa sendi fyrirspurn til ríkislögreglustjóra vegna málsins í dag til að óska eftir upplýsingum um hvort málið hefði verið kært eða hvort ríkislögreglustjóri hyggist hefja frumkvæðisrannsókn í málinu.
Í svari embættisins kemur fram að greiningardeild embættis ríkislögreglustjóra rannsaki brot er varða landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum eins og þau séu skilgreind í X. og XI. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Brot gegn XXV. kafla hegningarlaga séu rannsökuð af lögreglu í því umdæmi sem brot eiga sér stað.
Embættið er ekki með umrætt mál til rannsóknar en mun kanna málsatvik er varða meinta háttsemi erlends fyrirtækis.