Bíó og sjónvarp

Halda til Spánar að smakka messu­vín fyrir þjóð­kirkjuna

Boði Logason skrifar
Guðaveigar verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á annan í jólum.
Guðaveigar verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á annan í jólum. Skjáskot

Gamanmyndin Guðaveigar eftir þá Markelsbræður, Örn Marinó Arnarson og Þorkel S. Harðarson, verður frumsýnd um jólin. Þetta er sjötta gamanmyndin sem þeir framleiða en þeir eru hvað þekktastir fyrir myndir á borð við Síðustu veiðiferðina og Allra síðustu veiðiferðina.

Nýjasta myndin fjallar um fjóra presta sem halda til Rioja á Spáni til að finna messuvín í betri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið að þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá.

Upptökur fóru fram á Spáni og Íslandi í maí og júní síðastliðnum en myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 26. desember næstkomandi. 

Með helstu hlutverk fara, Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson, Sverrir Þór Sverrisson, Vivian Ólafsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×