Innlent

Skemmti­legustu kapp­ræður kosninga­bar­áttunnar í kvöld

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þessir tíu frambjóðendur mætast í Kappleikunum á Stöð 2 í kvöld.
Þessir tíu frambjóðendur mætast í Kappleikunum á Stöð 2 í kvöld.

Kappleikarnir, öðruvísi og skemmtilegur kosningaþáttur, verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 18:55 í kvöld. Frambjóðendur tíu flokka mætast í myndveri og svara spurningum um þau mál sem helst brenna á ungu fólki.

Kristín Ólafsdóttir og Bjarki Sigurðsson stýra þættinum og gestir verða Jón Gnarr, Snorri Másson, Davíð Þór Jónsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Lenya Rún Taha Karim, Ragna Sigurðardóttir, Sindri Geir Óskarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson og Ívar Orri Ómarsson.

Kristín Ólafsdóttir og Bjarki Sigurðsson fréttamenn á Stöð 2 stýra Kappleikunum í kvöld.

Hvernig ætla flokkarnir að gera ungu fólki kleift að flytja að heiman? Mætti strætó ekki virka betur? Hvar standa frambjóðendur gagnvart áfengiskaupaaldri og veðmálasíðum? Við krefjum þau um skýr svör og látum líka reyna á kunnáttu þeirra. Hversu vel þekkja þau veruleika ungs fólks á Íslandi í dag?

Við lofum góðri skemmtun, miklu stuði og áleitnum spurningum. Það er beinlínis bannað að vera leiðinlegur í kvöld! Hægt verður að horfa á Kappleikana í beinni útsendingu þegar nær dregur í spilara hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×