Elías fór af velli eftir að hafa fundið mikla verki og nú hefur Midtjylland gefið það út að þessi 24 ára markvörður handarbrotnaði í leiknum. Það gerðist þegar Samu Aghehowa, framherji Porto, var í kapphlaupi um boltann en Elías náði að kasta sér fram og slá boltann í burtu, áður en Aghehowa sparkaði óvart í hönd hans.
Allt bendir til þess að Elías þurfi að fara í aðgerð af þessum sökum, samkvæmt tilkynningu Midtjylland, og er búist við því að hann verði frá keppni næstu mánuðina.

Midtjylland tapaði leiknum í gær 2-0 og er í 23. sæti Evrópudeildarinnar, með sjö stig eftir sex leiki af átta. Liðið er í harðri baráttu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar, jafnt FC Kaupmannahöfn að stigum í 1.-2. sæti eftir sautján umferðir.
Elías sneri aftur til Midtjylland í sumar eftir lánsdvöl í Portúgal og hefur fest sig í sessi sem aðalmarkvörður danska liðsins á nýjan leik.