Innlent

Telja Seyðis­fjörð þola tíu þúsund tonn af eldis­laxi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
MAST hefur gefið út tillögu að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Myndin er úr safni.
MAST hefur gefið út tillögu að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis Kaldvíkur hf. með allt að 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi. Hámark lífmassa af frjóum laxi má vera allt að 6.500 tonn. Tillagan byggir á matsskýrslu frá árinu 2020 um 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef MAST, en þar segir að um sé að ræða ný rekstrarleyfi sem heimili annars vegar eldi á 6.500 tonnum af frjóum laxi og hins vegar 3.500 tonnum af ófrjóum laxi í firðinum.

Meira en helmingur verði frjór lax

„Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar fyrir Seyðisfjörð gerir ráð fyrir að hægt sé að vera með allt að 10.000 tonna lífmassa í eldi í firðinum. Áhættumat erfðablöndunar Hafrannsóknastofnunar gerir hins vegar eingöngu ráð fyrir að hægt sé að vera með 6.500 tonn af frjóum laxi í firðinum og því eru tvö leyfi auglýst,“ segir í tilkynningunni. 

Frestur til þess að skila inn athugasemdum við tillöguna er til 20. janúar næstkomandi, en þær skulu sendar á mast@mast.is, merktar 18081324.

Umdeilt mál

Áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði eru nokkuð umdeild, en í síðasta mánuði var greint frá því að samkvæmt könnun sem Gallup gerði væri mikill meirihluti andvígur framkvæmdinni, þar sem 61,1 prósent lýsti neikvæðri afstöðu til hennar.

Í byrjun árs 2023 var samkvæmt tölfræðilega marktækri skoðanakönnun sem Múlaþing lét gera 75 prósent íbúa andvígur þessum áformum sem er mikill meirihluti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×