Enski boltinn

Segist ekkert hafa rætt við Man. City

Sindri Sverrisson skrifar
Pep Guardiola og Ruben Amorim leiða saman hesta sína í Manchester í dag. Amorim segir aldrei hafa staðið til að hann tæki við af Guardiola hjá Manchester City.
Pep Guardiola og Ruben Amorim leiða saman hesta sína í Manchester í dag. Amorim segir aldrei hafa staðið til að hann tæki við af Guardiola hjá Manchester City. Getty/Gareth Copley

Portúgalski stjórinn Ruben Amorim tekur þátt í sínum fyrsta Manchester-slag í dag þegar Manchester United mætir Manchester City á Etihad-leikvanginum. Liðin hafa oft verið í meira stuði en síðustu vikur.

Amorim tók við United fyrir mánuði síðan, eftir að Erik ten Hag var rekinn. Portúgalinn hafði áður verið nefndur sem mögulegur arftaki Pep Guardiola hjá City en fullyrðir að það hafi aldrei verið inni í myndinni.

„Aldrei. Ég átti aldrei [í viðræðum við City]. Þetta var eini kosturinn hjá mér,“ sagði Amorim á blaðamannafundi á föstudaginn.

„Þegar Manchester United hafði samband við mig þá var ég ekki í vafa, því ég var þá þegar með í huga að þetta gæti verið möguleiki,“ sagði Amorim.

Samningur Peps Guardiola við City átti að renna út næsta sumar en hann skrifaði undir eins árs framlengingu eins og tilkynnt var um í síðasta mánuði.

Amorim hefur ekki átt neina draumabyrjun í starfi hjá United, en að sama skapi hefur allt gengið á afturfótunum hjá City. Liðin ætti því svo sannarlega að hungra í sigur í dag.

Amorim hefur stýrt United í fjórum deildarleikjum og er uppskeran aðeins fjögur stig, en auk þess hefur liðið unnið tvo leiki í Evrópudeildinni. Sé horft til síðustu tíu leikja City, í öllum keppnum, er eini sigur liðsins 3-0 sigurinn gegn Nottingham Forest fyrir tíu dögum. Um síðustu helgi gerði liðið 2-2 jafntefli við Crystal Palace og tapaði svo 2-0 gegn Juventus í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Segir City-menn á betri stað í dag

„Ég hugsa aldrei um þessa hluti. Við spilum við frábært lið og ég er meira að hugsa um okkar vandræði, því við glímum við margt sjálfir,“ sagði Amorim spurður út í slæmt gengi City.

„Ég einbeiti mér bara að því sem við þurfum til að vinna á sunnudaginn, og er mjög einbeittur á mitt lið,“ bætti hann við.

Rétt áður en Amorim hætti með Sporting Lissabon stýrði hann liðinu til 4-1 sigurs gegn City í Meistaradeildinni. Það veitir honum þó enga hugarró núna.

„Bestu liðin geta svarað fyrir sig hvenær sem er, og ég held að þeir séu á betri stað en við varðandi sinn skilning á leiknum, hvernig eigi að spila og varðandi sjálfstraust. Jafnvel eftir það sem á undan er gengið,“ sagði Amorim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×