Fótbolti

Saka yfir­gaf Sel­hurst Park á hækjum

Siggeir Ævarsson skrifar
Bukayo Saka gæti orðið lengi frá
Bukayo Saka gæti orðið lengi frá vísir/Getty

Arsenal menn urðu fyrir áfalli í dag þegar Bukayo Saka fór meiddur af velli þegar liðið sótti Crystal Palace heim. Eftir leik sást Saka yfirgefa völlinn á hækjum.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var spurður út í meiðslin eftir leik. Saka meiddist aftan í læri og þó það liggi ekki fyrir á þessari stundu hversu alvarleg meiðslin eru sagði Arteta að þetta væru „ekki góðar fréttir“.

Það er nokkuð þétt dagskrá framundan hjá Arsenal yfir hátíðarnar en liðið á leik 27. desember á heimavelli gegn Ipswich og svo útileik á nýársdag gegn Brentford. Eftir það á liðið leik nánast á þriggja eða fjögurra daga fresti í janúar svo að það er ljóst að mikið álag verður á leikmannahóp liðsins næstu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×