Þorsteinn skoraði fimm mörk úr fimm skotum í leiknum sem Íslendingar unnu, 40-19. Ísland er komið í milliriðil og með sigri á Slóveníu annað kvöld tekur liðið með sér tvö stig þangað.
„Svo sér maður þessi skot og það fer bara fiðringur um mann. Þetta lítur svo vel út og eru svo miklar neglur. Það er gaman að sjá þetta og þetta er skemmtilegur handbolti þegar þetta virkar,“ sagði Ásgeir Örn í Besta sætinu.
„Það veit bara á gott. Hann spilaði líka einhverja vörn í gær og mér fannst það bara nokkuð gott,“ bætti Ásgeir Örn við en Þorsteinn var með flestar löglegar stöðvanir allra leikmanna Íslands í leiknum gegn Kúbu, eða sjö.
Hann á bara að taka pláss
Rúnar segir að Þorsteinn geti nýst íslenska liðinu í vörn, ekki síður en í sókn.
„Hann er mjög góður leikmaður. Svo líka að vera allt í einu kominn með 205 cm og 115 kg inn í vörnina og þurfa ekki að sækja allt lengst út á völl. Það er gæi sem getur bara staðið og kjötað menn,“ sagði Rúnar sem nefndi svo eitt atriði sem Þorsteinn þarf að laga.
„Við sáum það aðeins gegn Svíum að hann þarf að vera aðeins fljótari að taka í gikkinn. Hann þarf stundum aðeins of langan tíma. Þegar það er komið er hann orðinn heimsklassa skytta. Hann er með element sem enginn annar í liðinu hefur. Hann á að vera miklu óhræddari við að skjóta. Það var nokkrum sinnum í seinni bylgjunni sem hann ætlaði ekki að taka of mikið pláss. Hann á bara að taka pláss.“
Í samtali við Vísi eftir leikinn í gær kvaðst Þorsteinn vera nokkuð sáttur með sína frammistöðu.
„Þetta var fínt í dag og við sjáum til hvernig þetta heldur áfram. Þetta er búið að vera fínt [hjá liðinu]. Við höfum spilað fínan handbolta og þurfum að halda því áfram. Slóvenar eru auðvitað töluvert betri en þessir andstæðingar og við þurfum að vera vel klárir og negla á þetta,“ sagði Þorsteinn.
Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan sem og hér fyrir neðan. Nálgast má þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum.