Innlent

Um­hverfis- og tækni­svið uppsveita á Laugar­vatni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Nanna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita og Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, sem eru bæði alsæl með nýja húsið á Laugarvatni.
Nanna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita og Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, sem eru bæði alsæl með nýja húsið á Laugarvatni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sex sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu, sem reka sameiginlegt umhverfis- og tæknisvið uppsveita hafa komið sér vel fyrir í nýju húsnæði á Laugarvatni þar sem er meira en nóg að gera við að gefa út allskonar leyfi fyrir sveitarfélögin.

Það var flaggað við nýja húsið á Laugarvatni á föstudaginn en þá var opið hús fyrir gesti og gangandi. Húsið stendur fyrir neðan Héraðsskólann og þykir einstaklega vel heppnað. 10 starfsmenn vinna í húsinu en Bláskógabyggð lét byggja húsið en hin sveitarfélögin borga þá leigu til Bláskógabyggðar. 

Sveitarfélögin, sem eru í byggðasamlaginu eru auk Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur og Ásahreppur.

„Hér er mikið um að vera og þetta er gríðarlega mikilvæg starfsemi. Hún skiptir miklu máli á þessu þéttbýla svæði þar sem er mikill fjöldi fasteigna og mikill fjöldi sumarhúsa og ýmis þjónusta tengt því sem þarf að sinna,” segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Umhverfis- og tæknisvið uppsveita Árnessýslu hefur flutt starfsemi sína inn í þetta glæsilega hús á Laugarvatni. Selásbyggingar ehf., var aðalverktaki hússins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og það eru heilmiklar framkvæmdir í gangi í öllum þessum sveitarfélögum eða hvað?

„Já það er mikið um að vera alls staðar, mikil uppbygging. Það er verið að byggja í öllum þéttbýliskjörnum. Það er verið að byggja sumarhús og hús út um allar sveitir þannig að það er mikið um að vera. Á þessu svæði eru til dæmis um sex þúsund sumarbústaðir,” segir Ásta.

Talsvert af gestum mætti á opna húsið til að skoða nýju bygginguna og fræðast um starfsemina þar innandyra.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og eitt í viðbót með nýja húsið á Laugarvatni, sem Ásta vill koma á framfæri.

„Það er auðvitað byggt í sama stíl og gamla smíðahúsið á Laugarvatni, sem var gufubaðið þannig að það er verið að halda í gamlar hefðir hérna en það er þó ekkert gufubað,” segir Ásta hlæjandi.

Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×