Innlent

Bein út­sending: Veður og veitur – á­skoranir fráveitna vegna lofts­lags­breytinga

Atli Ísleifsson skrifar
Finnur Beck er framkvæmdastjóri Samorku.
Finnur Beck er framkvæmdastjóri Samorku. Samorka

Veður og veitur – áskoranir fráveitna vegna loftslagsbreytinga er yfirskrift fundar Samorku um áhrif loftslagsbreytinga á veituinnviði sem haldinn verður í dag.

Fundurinn fer fram á Grand hótel Reykjavík milli klukkan 9 og 10:30. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi.

Í tilkynningu segir að veituinnviðir og þá sérstaklega fráveituinnviðir séu viðkvæmir fyrir flóðum, aukinni rigningu og öðrum loftslagsbreytingum.

„Á fundinum munum við fræðast um þær áskoranir sem veitur um allt land standa frammi fyrir og þær aðgerðir sem verið er að ráðast í til að aðlagast eða draga úr áhrifum loftslagsbreytinga,“ segir í tilkynningunni.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.

Fram koma:

  • Hildigunnur Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar
  • Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafi í fráveitumálum
  • Pétur Krogh Ólafsson, forstöðumaður Sjálfbærni og viðskiptaþróunar hjá Veitum
  • Ágúst Þór Bragason, deildarstjóri þjónustumiðstöðvar hjá Árborg
  • Aðalsteinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri HEF Veitna



Fleiri fréttir

Sjá meira


×