Fótbolti

Betlaði einu sinni mat á götunni en er nú hetja Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raphinha nýtur lífsins hjá Barcelona en þar er hann kominn í risastórt hlutverk og er Brassinn að eiga frábært tímabil í vetur.
Raphinha nýtur lífsins hjá Barcelona en þar er hann kominn í risastórt hlutverk og er Brassinn að eiga frábært tímabil í vetur. Getty/Yasser Bakhsh

Brasilíumaðurinn Raphinha fer nú á kostum með Barcelona og skoraði nú síðast mikilvægt sigurmark liðsins í Meistaradeildarleik í vikunni.

Saga Raphinha er efni í eitt gott ævintýri eða eina dramatíska upplífgandi kvikmynd enda fæddist hann í einu af fátækustu hverfunum í Brasilíu.

Raphinha bjó í einu herbergi með foreldrum sínum, systkinum og gæludýrum fjölskyldunnar. Hætturnar lágu víða og margur vinahópurinn leiddist út í glæpi og miður skemmtilega hluti.

Hann hafði styrk og þor til að veðja á fótboltann sem sína leið til betri framtíðar.

Raphinha hefur sagt frá því að hann hafi þurft að betla mat á götunum hjá ókunnugum til að fá eitthvað að borða eftir æfingar.

Fótboltaiðkun hans var heldur ekki hættulaus og hann fékk stundum líflátshótanir fyrir leiki. Fótboltinn var engu að síður hans brú úr hryllilegum aðstæðum í favellunni og núna er hann orðinn stórstjarna í fótboltanum

Hann þurfti að sýna hörku og baráttu til að lífa af í þessum erfiðum aðstæðum og ná að nýta þau fáu tækifæri sem buðust. Úr varð líka þessi mikli keppnismaður og baráttumaður sem hann er inn á fótboltavellinum í dag.

Frammistaða Raphinha hefur verið það góð á þessu tímabili að sumir eru farnir að orða hann við Gullknöttinn, Ballon D´or.

Hann byrjaði ekki allt of vel hjá Barcelona en enn á ný sýndi hann styrk og þolinmæði. Í dag er hann ekki aðeins fastamaður heldur stundum fyrirliði og einn af leiðtogum liðsins. Hann er líka algjör lykilamður í sóknarleik þess.

Á tímabilinu er hinn 28 ára gamli Raphinha kominn með 22 mörk og 11 stoðsendingar í 30 leikjum þar af átta mörk í sjö leikjum í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×