Handbolti

Mynda­syrpa frá svekkelsinu í Zagreb

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mynd sem er kannski lýsandi fyrir leikinn í gær. Þessi stuðningsmaður Íslands gat ekki leynt vonbrigðum sínum með gang mála.
Mynd sem er kannski lýsandi fyrir leikinn í gær. Þessi stuðningsmaður Íslands gat ekki leynt vonbrigðum sínum með gang mála. vísir/vilhelm

Ísland tapaði fyrir heimaliði Króatíu, 32-26, í öðrum leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í gær. Fyrir vikið eru möguleikar Íslendinga á að komast í átta liða úrslit orðnir ansi litlir.

Sigur í leiknum í gær hefði tryggt íslenska liðinu efsta sætið í milliriðli 4 en nú er staðan sú að Ísland þarf að vinna Argentínu á sunnudaginn og treysta á að Slóvenía taki stig af Króatíu. Eða Grænhöfðaeyjar taki stig af Egyptalandi sem er afar ólíklegt.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var í Arena Zagreb í gær og náði myndunum sem má sjá í fréttinni. Þær fanga svekkelsi Íslendinga og sælu Króata.

Aron Pálmarsson reyndi og reyndi og skoraði fjögur mörk.vísir/vilhelm
Menn á íslenska bekknum voru ekki beint upplitsdjarfir.vísir/vilhelm
Stuðningsmenn íslenska liðsins voru vitaskuld svekktir. Á myndinni má meðal annars sjá gömlu varnarhetjuna Sverre Jakobsson.vísir/vilhelm
Stuðningsmennirnir klappa fyrir íslenska liðinu.vísir/vilhelm
Júlíus Jónasson og Sverre fylgjast með gangi mála.vísir/vilhelm
Viktor Gísli Hallgrímsson með skemmtileg svipbrigði. Hann varði vel í seinni hálfleik.vísir/vilhelm
Allir vinir. Króatískur stuðningsmaður innan um íslenska stuðningsmenn.vísir/vilhelm
Íslensku leikmennirnir voru að vonum svekktir í leikslok.vísir/vilhelm
Króatísku varnarmennirnir tóku fast á Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.vísir/vilhelm
Aron hughreystir Viktor Gísla.vísir/vilhelm
Litadýrð í stúkunni.vísir/vilhelm
Íslensku stuðningsmennirnir hafa oft verið broshýrri en í gær.vísir/vilhelm
Íslendingar komust ekkert áleiðis í gær eins og þessi mynd sýnir.vísir/vilhelm
Aron gat ekki leynt vonbrigðum sínum.vísir/vilhelm
Króatíska vörnin var gríðarlega sterk.vísir/vilhelm
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson reynir að klappa sína menn í gang.vísir/vilhelm
Svekkelsið leynir sér ekki hjá Janusi Daða Smárasyni.vísir/vilhelm


Tengdar fréttir

Hvernig kemst Ísland áfram?

Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta á að komast í átta liða úrslit á HM er ansi veik eftir slæmt tap fyrir Króatíu í kvöld, 32-26. En hvað þarf að gerast til að Ísland komist upp úr milliriðli 4 og í átta liða úrslit?

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun

Eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á HM á íslenska karlalandsliðið í handbolta allt í einu litla möguleika á að komast í átta liða úrslit eftir stórt tap fyrir Króatíu, 32-26, í Arena Zagreb í kvöld.

„Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“

„Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum.

„Ég held að þeim hafi bara liðið vel allan tímann“

„Erfiður dagur. Við vorum bara ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir sex marka tap gegn Króatíu. Hann segir liðið ekki hafa náð sama takti varnarlega og í síðustu tveimur leikjum, tapið muni síðan líklega kosta sæti í átta liða úrslitum.

„Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“

„Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi.

„Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“

„Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld.

Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik

Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×