Innlent

„Við hörmum þetta at­vik og erum miður okkar”

Lovísa Arnardóttir skrifar
Um 140 gestir af 450 veiktust í kjölfar þorrablótanna. Árni Bergþór segir starfsmenn veisluþjónustunnar miður sín. Rannsókn á orsök er enn í gangi.
Um 140 gestir af 450 veiktust í kjölfar þorrablótanna. Árni Bergþór segir starfsmenn veisluþjónustunnar miður sín. Rannsókn á orsök er enn í gangi. Samsett

Árni Bergþór Hafdal Bjarnason veitingamaður og eigandi Veisluþjónustu Suðurlands segir miður að fjöldi gesta hafi veikst á þorrablótum í Ölfusi og Borg í Grímsnesi þar sem hann sá um veitingar.

„Við hörmum þetta atvik og erum miður okkar vegna þess,“ segir Árni Bergþór í samtali við fréttastofu.

MAST og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafa rannsakað veikindin. Alls veiktust um 140 manns á þorrablótunum sem haldin voru í Borg á Grímsnesi og Ölfusi um mánaðamótin. Veisluþjónusta Suðurlands sá um veitingarnar á báðum blótum. 

Niðurstaða rannsóknar MAST og heilbrigðiseftirlitsins leiddi í ljós að veisluþjónustan var ekki með starfsleyfi, aðstaða til handþvottar var ekki fullnægjandi, að kælikeðja matvælanna rofnaði á þorrablótunum og maturinn hafði staðið í töluverðan tíma án kælingar.

Sjá einnig: Svekktar og reiðar yfir við­brögðum veitingamannsins

Fram kom í viðtali við Sigrúnu Guðmundsdóttur hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í gær að rannsókn stýrihóps heilbrigðiseftirlits og MAST stæði enn yfir. Fyrr hefur verið greint frá því að E. coli og Baccillus cereus bakteríur hafi fundist í sviða- og svínasultu sem var í boði á þorrablótunum en Sigrún taldi líklegra að veikindin mætti rekja til Bacillus Cereus.

Hún sagði óvíst hvernig bakterían komst í matinn en fyrir liggur að aðstaða til handþvottar var ekki fullnægjandi og að maturinn stóð á borðum í langan tíma. Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær sagði hún þess vegna líklegt að bakterían hefði komist í matinn af óþvegnum höndum. Hún sagði hlaðborð „áhættubusiness“ þar sem margir noti sömu áhöldin og stundi ekki sóttvarnir.

Þá hefur verið greint frá því að veisluþjónustan var ekki með starfsleyfi en Árni Bergþór staðfestir að það sé í ferli.


Tengdar fréttir

Vel brýndir hnífar skipta öllu máli í eldhúsinu

„Hnífur er ekki sama og hnífur“, segir hnífabrýnslumaður í Þorlákshöfn, sem leggur áherslu á vel brýnda hnífa því hnífar, sem bíti illa séu miklu hættulegri en vel brýndir hnífar. Leðurbelti spilar stórt hlutverki við brýningu hnífa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×