Meirihlutaviðræður vinstri flokka í Reykjavíkurborg héldu áfram í morgun á fimmta degi formlegra viðræðna. Fram hefur komið að húsnæðis- og skólamál hafi verið áberandi.
Eðlilegt að taka upp mál og ræða upp á nýtt
Borgarstjórnarfundur verður haldinn í ráðhúsinu klukkan tólf morgun en vinstri flokkarnir hafa óskað eftir því að hann verði svokallaður bjöllufundur. Í því felst að hringt er inn til fundar, lagt til að málum á dagskrá verði frestað og atkvæðagreiðsla fer fram um það.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram átján tillögur fyrir fundinn á morgun og Framsóknarflokkurinn eina. Meðal tillagna eru að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi til 2040, selja Ljósleiðarann ehf, bílastæðahús og fækka upplýsingafulltrúum.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar og oddviti viðreisnar segir fólk byrjað að setja sig í stellingar fyrir framhaldið.
„Ég held að það sé bara hugur í þeim flokkum. Ég sé það líka á dagskránni í dag. Ég sé að Sjálfstæðisflokkurinn vill fá umræðu um gamalkunnug mál. Nú er breyttur meirihluti í borginni, ef þær ná að semja um nýtt samkomulag og þá er eðlilegt að taka upp mál sem hafa áður verið afgreidd og ræða upp á nýtt. Það getur vel verið að einhver afstaða hafi breyst,“ segir Þórdís.
Getum ekki lengi búið við þessa óvissu
Einu málin sem verða afgreidd séu fundargerðir og lausnarbeiðni Kolbrúnar Baldursdóttur oddvita Flokks fólksins sem hefur tekið sæti á þingi. Þórdís segir brýnt að niðurstaða í meirihlutaviðræðunum náist sem fyrst .
„Það er mjög mikilvægt að það skýrist í þessari viku. Við getum ekki búið við þessa óvissu mjög lengi en það er þó ekkert óeðlilegt að það taki nokkra daga að semja. Þarna eru tveir flokkar sem hafa aldrei verið í meirihluta áður. Þetta verður að skýrast í þessari viku. Ég geri fastlega ráð fyrir að við verðum með aukaborgarstjórnarfund í þessari eða næstu viku,“ segir Þórdís.