Innlent

Búr­fells­lundur verður Vaðöldu­ver

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá vegaframkvæmdum fyrir það sem hefur nú fengið heitið Vaðölduver í haust.
Frá vegaframkvæmdum fyrir það sem hefur nú fengið heitið Vaðölduver í haust. Vísir/Vilhelm

Landsvirkjun hefur ákveðið að gefa fyrsta vindorkuveri landsins sem nú er að rísa heitið Vaðölduver. Hingað til hefur það gengið undir vinnuheitinu Búrfellslundur en þar eiga að rísa 28 vindmyllur á næstu tveimur árum.

Í rökstuðningi sínum fyrir ákvörðuninni um nafnabreytinguna segir Landsvirkjun að eftir að staðsetningu versins var breytt og umfang þess minnkað sé ekki talið rétt að kenna það við fjallið Búrfell enda sé það töluvert sunnar en vindorkuverið.

Þess í stað verði verið kennt við fellið Vaðöldu sunnan Sultartangastíflu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Til hafi staðið að breyta nafninu um hríð en ákveðið hafi verið að hrófla ekki við því í leyfisveitingaferlinu sem verið var í.

Fyrstu fjórtán vindmyllurnar eiga að rísa vorið og sumarið 2026 og þær gangsettar þá um haustið. Verið á að vera að fullu tilbúið og komið í rekstur fyrir lok ársins 2027. Vegaframkvæmdir hafa staðið yfir við Vaðöldu frá því haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×