Innlent

Ekki sam­mála því að mikið hafi gengið á í ríkis­stjórninni

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Vísir/Anton Brink

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir það ekki hafa verið af gleðilegu tilefni sem hún væri mætt á ríkisráðsfund. Hún kveðst ekki sammála því að mikið hafi gengið á í ríkisstjórninni undanfarna mánuði.

„Ásthildur Lóa kemur bara sterk út úr þessu,“ sagði Hanna Katrín í stuttu samtali við fréttamenn á leið út af Bessastöðum.

Hún segir það ekki bitna á málaflokknum að verið sé að skipta fólki út í ráðuneytinu.

Er hún var spurð hvort það hefðu verið mistök að fara í ríkisstjórn með Flokki fólksins, í ljósi alls sem gengið hefur á undanfarna mánuði, kvaðst hún ekki sammála því að mikið hefði gengið á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×