Bifreið á leið norður Reykjanesbraut var ekið á manninn, sem var fótgangandi. Hann var fluttur á slysadeild og úrskurðaður látinn eftir komuna þangað.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Karlmaður lést eftir umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Reykjavík, norðan megin brúarinnar Breiðholtsbraut að Nýbýlavegi á þriðja tímanum eftir hádegi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Bifreið á leið norður Reykjanesbraut var ekið á manninn, sem var fótgangandi. Hann var fluttur á slysadeild og úrskurðaður látinn eftir komuna þangað.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Alvarlegt umferðarslys varð við Reykjanesbraut við brúna milli Nýbýlavegs og Breiðholtsbrautar. Ekið var á gangandi vegfaranda.