Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. apríl 2025 18:33 Declan Rice smellir boltanum upp í hornið hægra megin. EPA-EFE/TOLGA AKMEN Arsenal gerði sér lítið fyrir og lagði Evrópumeistara Real Madríd 3-0 þökk sé glæsilegri aukaspyrnu tvennu Declan Rice og marki frá Mikel Merino. Fyrri hálfleikurinn í Lundúnum var ekki mikið fyrir augað og ljóst að hvorugt lið ætlaði að gefa óþarfa færi á sér, staðan því markalaus í hálfleik. Jurrien Timber og Jude Bellingham.EPA-EFE/TOLGA AKMEN Gestirnir hafa verið nokkuð brothættir að undanförnu og hvað sem Carlo Ancelotti sagði í hálfleikshléinu þá virkaði það engan veginn. Á sama tíma virðist Mikel Arteta hafa sagt alla réttu hlutina. Brotið var á Bukayo Saka þegar tæp klukkustund var liðin. Declan Rice, sem hafði aldrei skorað úr aukaspyrnu á ferlinum, stillti boltanum upp og sveigði hann utan við varnarmúr gestanna og í netið. Auðvelt væri að setja spurningamerki við Thibaut Courtois í marki gestanna en slík var sveigjan á boltanum að það er ekki hægt að svo stöddu. Eftir þetta tóku heimamenn öll völd á vellinum og varði Courtois nokkrum sinnum meistaralega sem og varnarmenn Real björguðu á línu. Rice fagnar með liðsfélögum sínum.EPA-EFE/TOLGA AKMEN Það kom þó enginn vörnum við þegar Arsenal fékk aðra aukaspyrnu á 70. mínútu. Aftur stillti Rice boltanum upp og að þessu sinni þrumaði hann honum upp í samskeytin. Algjörlega óverjandi. Mikel Merino gerði svo út um leikinn og mögulega einvígið nokkrum mínútum síðar. Til að bæta gráu ofan á svart lét Eduardo Camavinga senda sig í sturtu í uppbótartíma þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Hann var hins vegar alltaf að fara missa af síðari leik liðanna eftir að fá gult fyrr í leiknum. Lokatölur 3-0 í Lundúnum og ljóst að Evrópumeistararnir þurfa kraftaverk ætli þeir sér að verja titilinn. Kylian Mbappé hefur ekki átt góðu gengi að fagna í Meistaradeildinni á undnaförnum árum.EPA-EFE/TOLGA AKMEN Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti
Leik lokið: Fram - Breiðablik 4-2 | Skoruðu fjögur mörk á minna en tíu mínútum til að tryggja sigur Íslenski boltinn
Leik lokið: Fram - Breiðablik 4-2 | Skoruðu fjögur mörk á minna en tíu mínútum til að tryggja sigur Íslenski boltinn