Fótbolti

Martraðardvöl Bjarka hjá Brann: Valinn verstu kaup tíma­bilsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Verdens Gang reiknaði út hversu mikið Bjarki Gunnlaugsson kostaði Brann, fyrir hvern leik.
Verdens Gang reiknaði út hversu mikið Bjarki Gunnlaugsson kostaði Brann, fyrir hvern leik. stöð 2 sport

Bjarki Gunnlaugsson átti ekki sjö dagana sæla þegar hann lék með Brann í Noregi. Hann var harðlega gagnrýndur og kallaður verstu kaup í sögu Brann.

Eftir gott gengi hjá Molde gekk Bjarki í raðir Brann sumarið 1998. Þar gekk allt á afturfótunum hjá honum eins og hann ræddi um í öðrum þætti A&B, þáttaraðar um tvíburana Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni.

„Ég byrjaði á því að meiðast í æfingaleik og svo var ég að ströggla allt tímabilið. Lærmeiðslin tóku sig aftur upp og það gengur ekkert sérstaklega vel,“ sagði Bjarki í A&B.

„Fjölmiðlar í Bergen voru ekkert sérlega ánægðir með mig, eða í Noregi yfirhöfuð. Ég var með stæla gagnvart þeim og öllum. Einn þeirra, Verdens Gang, hafði reiknað út og sett á forsíðu hvað ég hafði kostað Brann mikið í hverjum leik.“

Klippa: A&B - Martraðardvöl Bjarka hjá Brann

Brann átti ágætu gengi að fagna í Evrópukeppni á tíma Bjarka hjá félaginu og mætti meðal annars Werder Bremen frá Þýskalandi. Bjarki missti af fyrri leik liðanna vegna meiðsla en kom inn á sem varamaður í seinni leiknum. Þegar Brann fékk víti tók Bjarki boltann, fór á punktinn en skaut hátt yfir. Hann var ekki vítaskytta Brann á þessum tíma.

„Eftir leikinn varð allt vitlaust; hvað varstu að spá að taka boltann og ég ríf bara kjaft á móti. Þetta var einhvern veginn vonlaust hjá mér,“ sagði Bjarki.

„Auðvitað var klúbburinn ekkert ánægður með mig. Ég var mjög dýr leikmaður, launalega séð, og auðvitað ætluðust þeir til að ég væri að gera mitt sem ég var ekki að gera og enginn var pirraðri heldur en ég. Þetta var hjónaband sem var dauðadæmt frá byrjun.“

Kaup Brann á Bjarka voru valin verstu kaup tímabilsins og talað var um að félagið hefði keypt köttinn í sekknum.

„Það var réttmætt. Ég var katta i sekken eins og Norðmaðurinn segir. Þetta var hægur dauðdagi; hvað segir maður, lestarslys.“

Innslagið úr öðrum þætti A&B má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Þættirnir A&B verða sýndir á sunnudagskvöldum á Stöð 2 og Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Snéru heim eins og rokk­stjörnur og komust á súluna á Astró

„Þeir koma til baka þarna ‘95 eins og einhverjar rokkstjörnur.“ Þetta segir Rósant Birgisson um æskuvini sína, tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, þegar ævintýraleg endurkoma þeirra í íslenska boltann og ekki síður kraftmikil endurkoma í íslenska dægurmenningu, árið 1995, var rifjuð upp í fyrsta þætti af A&B.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×