Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 12. október 2026 13:52 Umhverfisráðherra tók á móti undirskriftum í dag. vísir/anton „Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. „
Hann var góður, eða að minnsta kosti ekki slæmur,“ sagði Katrín Oddsdóttir lögmaður um fund sem náttúruverndarsinnar sátu með Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra. Þar tók ráðherra á móti undirskriftarlista um verndun Seyðisfjarðar. Þau hafi fengið þá tilfinningu að stjórnvöld séu að kynna sér málið. „Og það séu einhverjar vonir til þess að þau ætli að reyna að koma einhvers konar faglegum böndum á stöðuna sem málið er í. Við hljótum að vona að það sé algjört forgangsmál hjá stjórnvöldum að koma í veg fyrir að þetta sjókvíaeldi verði að veruleika og koma til móts við allar þær stóru brotalamir sem eru á þessum leyfisveitingaferlum.“ Byggingarleyfi hafi ekki verið gefið út í málinu. „Til þess að það geti verið gefið út þarf að rannsaka með hlutlausum hætti hættuna á slysasleppingum sem geta orðið vegna ofanflóða. Þetta er eitt af því stóra sem hefur ekki verið gert. Og ég vona að þau séu að fara að gyrða sig í brók og gera eitthvað í þessu,“ sagði Katrín. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður VÁ - verndun fjarðar, segir að ekkert hafi beinlínis verið sagt á fundinum sem gefi þeim von. Farið hafi verið vítt og breitt um sviðið. Beri að taka tillit til íbúa Aðspurður hvort meirihluti Seyðfirðinga sé á móti eldinu segir Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður í félaginu Vá, að skoðanakannanir sem framkvæmdar hafi verið staðfesti að meirihluti Seyðfirðinga sé á móti framkvæmdinni. „Og við lögðum áherslu á að í lögum um umhverfismat þá beri leyfisveitingum að taka tillit til íbúa og hugsana þeirra.“ „Við fórum vel yfir þær þversagnir og það ranga vinnulag sem hefur verið viðhaft í ofanflóðamötum og ekki síst hvernig takmörkuð ofanflóðamöt sem hafa verið gerð eru notuð á rangan hátt til að ná því í gegn að þetta sjókvíaeldi geti staðist í Seyðisfirði, það er bara byggt á fölskum forsendum,“ sagði Magnús. Sundrandi fyrir samfélagið Benedikta segir að skiptar skoðanir séu á málinu á Seyðisfirði. „Það er mjög erfitt að hafa svona mál yfir samfélaginu í svona langan tíma, það er sundrandi. Og það er mikilvægt fyrir stjórnmálamenn og ríkisstjórnina að stuðla að sátt og við hefðum fyrir löngu þurft að fá sátt í þetta mál.“ Varðandi atvinnu á svæðinu segir Katrín Oddsdóttir að hægt sé að breyta lögum um fiskeldi þannig að Seyðisfjörður sé settur með tilteknum verndarsvæðum þar. „Þau eru komin á aðra vegferð eftir því sem ég best skil, að reyna að búa til græn og sjálfbær störf og halda bænum í því formi sem hann er, sem er bær sem tekur ekki á móti mengandi stóriðju í einhverri örvæntingu til að skapa örfá störf.“ Umhverfisráðherra segir fundinn hafa verið góðan. „Ég hef áður hitt þennan hóp og farið yfir þessi mál. Það er auðvitað sjálfsagt mál að taka við þessum undirskriftum. Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Fer með undirskriftirnar fyrir ríkisstjórn Hann mun fara með undirskriftirnar á ríkisstjórnarfund á morgun og ræða málin þar í stærra samhengi. Aðspurður hvort einhverjar lausnir hafi verið lagðar á borðið segir Jóhann að ýmsir angar þessa máls hafi verið ræddir. „Einn angi sem heyrir undir mig sem ráðherra er ofanflóðaþátturinn, hættumat vegna ofanflóða þegar kemur að atvinnustarfsemi og þá meðal annars sjókvíaeldi. Ég fór með þeim yfir ákveðna vinnu sem við settum af stað í apríl í fyrra vegna ábendinga sem höfðu borist frá Skipulagsstofnun í tíð síðustu ríkisstjórnar en ekkert hafði verið gert með.“ Áttu von á að af þessu eldi verði? „Ég skal ekki segja. Nú er búið að gefa út þessi leyfi. Þau eru gefin út samkvæmt gildandi lögum og reglum. Ég hef engar lagaheimildir til að afturkalla þau eða neitt slíkt en ég geri ráð fyrir að þetta fari sína leið. Mér finnst nú ekki ósennilegt að þessi leyfi verði kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.“ „Ég ber bara virðingu fyrir baráttu fólks og almennt tel ég heppilegast þegar verið er að fara í stórframkvæmdir af einhverju tagi að það sé sátt um þær í nærsamfélaginu. Og það hefur verið rauður þráður í mínum störfum, t.d. þegar kemur að vindorku- og virkjanaframkvæmdum, að það sé ekki verið að æða áfram í einhverjum æðibunugangi í blóra við vilja íbúa og sveitarfélaga á viðkomandi svæði. Það gildir um sjókvíaeldi líkt og annað að við viljum hafa það þar sem er sátt um það.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjókvíaeldi Umhverfismál Múlaþing Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira