Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Jakob Bjarnar skrifar 13. október 2026 14:32 Logi Már Einarsson ráðherra málaflokksins segist eiga í góðum samskiptum við Sýn, það sagði hann nú rétt áðan á þingi í kjölfar fyrirspurnar Bryndísar Haraldsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins í Óundirbúnum fyrirspurnum, um "fílinn í stofunni". En samkvæmt umsögn Sýnar um drög að frumvarpi um Ríkisútvarpið er enn talsvert í land. vísir Samráði vegna frumvarps menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um Ríkisútvarpið er lokið. Fjórar umsagnir birtust og má þar finna harða gagnrýni á frumvarpsdrögin. Ekki er talið að þar sé nóg að gert til að stemma stigu við fyrirferð Ríkisútvarpsins á markaði og lagt er til að Ríkisútvarpið verði tekið alfarið af auglýsingamarkaði.
Bæði í umsögn Sýnar og Árvakurs segir að opinberir styrkir til einkarekinna fjölmiðla geti ekki talist ákjósanlegt fyrirkomulag. Og í umsögn Viðskiptaráðs, sem Ragnar Sigurður Kristjánsson undirritar, er áréttað að opinbert styrkjakerfi „samræmist illa lýðræðissjónarmiðum þar sem frjálsir fjölmiðlar gegna mikilvægu aðhaldshlutverki gagnvart stjórnvöldum. Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðinur Viðskiptaráðs skrifar undir harorða umsögn ráðsins.ví Það að gera þá verulega fjárhagslega háða hinu opinbera veikir aðhaldshlutverkið og dregur úr óhæði þeirra gagnvart ríkjandi stjórnvöldum.“ Þar er jafnframt bent á að sé horft til Norðurlanda, sem við berum okkur jafnan saman við, þá komi í ljós að staða Ríkisútvarpsins er einsdæmi. Stofnunin þiggur bæði opinber framlög og hefur heimild til auglýsingasölu. Hér getur að líta mynd sem Viðskiptaráð lét fylgja sinni umsögn. Myndin sýnir að hvergi er hlutdeild Ríkisútvarpsins í auglýsingamarkaði eins mikil og hér á landi.ví Þetta þýðir að hvergi á Norðurlöndunum er markaðshlutdeild ríkismiðilsins jafn mikil og á Íslandi en þar er hlutdeild Ríkisútvarpsins í heildartekjum á fjölmiðlamarkaði 27 prósent, samanborið við 10 prósent að meðaltali á Norðurlöndunum. Ein sjónvarpsstöð og ein útvarpsstöð kappnóg Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að felldar verði niður kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land. „Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum.“ Haraldur Johannessen ritstjóri Morgunblaðsins skrifar, ásamt Sigurbirni Magnússyni stjórnarformanni Árvakurs, undir umsögn um drög að frumvarpi um Ríkisútvarpið. Þeir eru ekki hrifnir.vísir/vilhelm Í umsögn Árvakurs, sem þeir Haraldur Johannessen og Sigurbjörn Magnússon undirrita, er þessu fagnað en talið að ekki sé nógu langt gengið. Betra væri ef kveðið yrði á um að Ríkisútvarpið ræki eina útvarpsstöð og eina sjónvarpsstöð. Þeir Haraldur og Sigurbjörn gera einnig að umtalsefni sókn Ríkisútvarpsins inn á samfélagsmiðla, sem þeim þykir skjóta skökku við. Þeir gera ráð fyrir því að þetta ákvæði laga sé ástæðan fyrir því að Ríkisútvarpið hafi sótt þar hart fram, á þeim sömu miðlum og sótt hafa mikið og vaxandi auglýsingafé á íslenska auglýsingamarkaðinn. „Gerviþak“ En það er punkturinn um breytingar á lögum er varða tekjustofna Ríkisútvarpsins sem vekur mesta athygli. Lagt er til að tekjur RÚV af útvarpsgjaldi verði skertar um fjárhæð sem nemur 10 prósentum af auglýsingatekjum RÚV á ári hverju. „Hlutfallið reiknist af fjárhæð sem svarar til meðaltekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum næstu fjögur heilu reikningsár á undan. Jafnframt verði kveðið á um hámark („þak“) tekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum.“ Samkvæmt frumvarpsdrögum er gert ráð fyrir 2,8 milljarða tekjuþaki Ríkisútvarpsins. Gert er ráð fyrir því að það sem út af stendur renni til sjálfstæðra fjölmiðla en eins og Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur farið yfir í ræðupúlti Alþingis virðist hér um málamyndagerning að ræða. „Þetta er því í raun gerviþak,“ sagði Tómas. Hann taldi það breyta afar litlu um það sem hann kallaði „ryksugu RÚV á íslenskum auglýsingamarkaði“. Tólf prósent breytast í tíu Í umsögn Árvakurs, sem reyndar varar við þessum fyrirætlunum, er vakin athygli á því að ef þetta þak ætti að skipta einkarekna miðla einhverju, hvað varð þá um 12 prósentin sem gert var ráð fyrir í Aðgerðaráætlun í málefnum fjölmiðla, sem Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti í desember síðastliðnum? Hvernig breyttust þessi 12 prósent í 10 og skipta þar af leiðandi engu máli? Páll Ásgrímsson lögmaður Sýnar skrifar undir grjótharða umsögn um frumvarpsdrög um Ríkisútvarpið.vísir/sýn Harðasta gagnrýnin kemur þó fram í umsögn Sýnar sem Páll Ásgrímsson lögmaður skrifar undir. Þar eru ýmsir fyrirvarar slegnir og því lýst að best væri ef Ríkisútvarpið hyrfi alfarið af auglýsingamarkaði en líklega sé ekki pólitískur vilji til þess. Og ef það eigi að vera með tekjuþak á hlutfall auglýsingatekna þurfi að hækka það upp í 15 prósent í stað krónutöluþaks. Reyndar er fullyrt í umsögninni að ef draga eigi úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og jafna samkeppnisstöðu á íslenskum fjölmiðlamarkaði þá nái frumvarpið ekki þeim markmiðum. Notar tækifærið og gagnrýnir Fjölmiðlanefnd Í ítarlegri umsögninni leggur Páll lykkju á leið sína og vekur sérstaka athygli á einkennilegri stöðu Fjölmiðlanefndar, sem ekki hafi sinnt lögbundnu frumkvæðiseftirliti á lengd viðskiptaboða Ríkisútvarpsins, að stofnunin færi að settum lögum. Sýn framkvæmdi sjálfstæða gagnaöflun og úrvinnslu úr gagnagrunninum Instar Analytics frá Gallup. „Sótt voru gögn yfir öll „auglýsingahólf“ RÚV niður á klukkustund á besta útsendingartíma (frá kl. 19:00 til 24:00) alla daga frá upphafi árs 2020 til 27. september 2026. Gögnin sýna óyggjandi að RÚV hefur í 133 tilvikum farið yfir hið lögmælta 8 mínútna hámark á viðskiptaboðum innan klukkustundar á þessu tímabili.“ Í umsögninni er þetta sagt sláandi jafngilda að meðaltali 22 hlutlægum lögbrotum á hverju einasta ári. „Ljóst er að RÚV fylgir ekki skýrum lagareglum um umfang sitt á auglýsingamarkaði og hagnýtir sér eftirlitsleysi Fjölmiðlanefndar til að afla ólögmætra tekna.“ Þá fer Páll þess á leit að hinar röngu og villandi forsendur sem bornar eru á borð í frumvarpinu verði leiðréttar. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Alþingi Stjórnsýsla Sýn Rekstur hins opinbera Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið. 5. október 2026 21:01 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira
Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið. 5. október 2026 21:01