Fleiri fréttir

Gamlárshlaup ÍR fer fram í 35. skipti

Árlegt Gamlárshlaup ÍR hefst á gamlársdag klukkan tólf á hádegi. Ræst verður á gatnamótum Hólavallagötu og Túngötu í miðbæ Reykjavíkur.

Nokkur hundruð kíló af hveiti út um allt

Nokkur hundruð kíló af hveiti þyrlaðist út um allar götur við Lyngháls í Reykjavik þar sem Ömmubakstur er. Þar var flutningabíll að flytja hveiti og rörafesting í bílnum gaf sig með fyrrgreindum afleiðingum. Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastóri fyrirtækisins, segir að tjónið hlaupi ef til vill á hundruðum þúsunda. Hins vegar sé mest um vert að enginn hafi slasast þegar óhappið átti sér stað. Unnið er að því að hreinsa hveitið upp.

Tryggingastofnun greiðir út bætur 31. desember

Tryggingastofnun hefur ákveðið að greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út þann 31. desember en nokkurra óánægju hefur gætt þar sem til stóð að greiða bæturnar út þann 1. janúar.

Lögreglan rannsakar Herra Hafnarfjörð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort herrafataverslunin Herra Hafnarfjörður hafi gerst brotleg við lög með því að bjóða viðskiptavinum ókeypis áfengi með hverjum seldum jakkafötum.

Vefmiðlar með um helming frétta

Í samanburði við síðustu ár má sjá að netmiðlar eru að koma mjög sterkt inn og mælast nú með um 48% af öllu innlendu efni samkvæmt fjölmiðlaúttekt Creditinfo.

Oftast fjallað um og rætt við Steingrím

Það var oftast fjallað um Steingrím J. Sigfússon og rætt við hann í fjölmiðlum samkvæmt ráðherrapúlsi Cretidinfo sem tók saman fréttir og umfjöllunarefni þeirra að hluta til árið 2010.

Sorglegar uppsagnir á Austurlandi

Heilbrigðisstofnun Austurlands segir upp tíu manns um þessi mánaðamót. Þá munu tíu hætta til viðbótar og starfshlutfall verður skert hjá öðrum tíu. Hagræðingaraðgerðirnar snerta því alls um þrjátíu starfsmenn stofnunarinnar.

Óskuðu vinum gleðilegra jóla á auglýsingaskilti

„Við vorum að vona að einhverjir hefðu gaman af þessu, og það tókst heldur betur,“ segir Stefán Þór Helgason, háskólanemi og einn þeirra sem birtu jólakveðju á auglýsingaskilti í Reykjavík nú rétt fyrir jólin. Hann segir hugmyndina hafa kviknað fyrir jólin í fyrra en þá hafi einfaldlega ekki gefist tími fyrir kveðjuna.

Mótmælendur reknir frá sendiráði Bandaríkjanna - þeir neita að fara

„Lögreglan er hérna og vill að við förum,“ segir Lárus Páll Birgisson, sem ásamt um tíu mótmælendum, hafa tekið sér stöðu fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna til þess að mótmæla hernaði og stríðsrekstri auk þess sem Lárus vill benda á aðrar og friðsamari lausnir í heimsstjórnmálum.

Borgarbúar þurfa að henda jólatrjánum sjálfir

Borgarbúar geta farið sjálfir með jólatrén sín endurgjaldslaust á endurvinnslustöð eða keypt þjónustuna hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum. Sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré fremur en 2010. Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu.

Kettirnir sluppu úr reykfylltri íbúðinni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í Skeiðarvog í Vogahverfinu um eittleytið í dag. Mikill reykur kom úr íbúð húss í götunni, sem reyndist koma út frá potti sem gleymst hafði á hellu.

Frábær viðbrögð við fylgishruni

Borgarfulltrúi Besta flokksins segir viðbrögð sín við fylgishruni flokksins frábær. Hann segir flokkinn hafa verið óhræddan við að taka óvinsælar ákvarðanir og það taki lengri tíma en sex mánuði að breyta hlutunum í borginni.

Getur skapað fordæmi fyrir aðra en kjörna fulltrúa

Lagastofnun Háskóla Íslands telur að fordæmi geti skapast fyrir aðra en kjörna fulltrúa að fá lögfræðikostnað sinn greiddan úr bæjarsjóði, nái tillaga meirihluta Kópavogsbæjar þess efnis fram að ganga. Það gæti skapað umtalsverðan kostnað fyrir Kópavogsbæ.

Spara um 300 milljónir með sameiningu ráðuneyta

Guðbjartur Hannessons, nýr velferðarráðhera, segir sameiningu þriggja ráðuneyta fela í sér í betri nýtingu á mannauði þvert á málaflokka. Engir starfsmenn, hvorki í velferðar- né innanríkisráðuneyti missa vinnuna við sameininguna.

Ástþór Magnússon boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglu

„Ef lögreglan vill handtaka mig þá er það ekkert mál. Ég er ekkert að fela mig. Ég lét lögregluna vita að ég yrði á Íslandi yfir jólin,“ segir Ástþór Magnússon. Hann kveðst hafa verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu klukkan eitt í dag.

Helmingurinn af flugeldunum selst á morgun

„Þetta gengur bara mjög vel, við erum á pari við árið í fyrra," segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann hvetur fólk til að koma í dag og klára flugeldakaupin.

Sameiningu Landlæknis og Lýðheilsustöðvar frestað

Sameiningu Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar hefur verið frestað um tvo mánuði að minnsta kosti. Til stóð að sameina stofnanirnar 1. janúar næstkomandi og hafa starfsmenn stofnanna tveggja unnið að undirbúningi sameiningar.

Ekki alvarlega slasaður

Maðurinn sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í gær eftir umferðarslys á Holtavörðuheiði er ekki með alvarlega áverka. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans verður maðurinn að öllum líkindum útskrifaður af spítala í dag. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll og flutningabíll rákust saman og það var maður úr fólksbílnum sem fluttur var til Reykjavíkur.

Fjölskylda borgarfulltrúa færði Palestínumönnum gervifætur

Fjölskylda Bjarkar Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, dvaldi í Egyptalandi og Palestínu yfir jólin og færði heimamönnum á Gazaströndinni efni í 36 gervifætur fyrir hönd samtakanna Ísland-Palestína. Það er til viðbótar þeim sem smíðaðir voru í maí á síðasta ári og í nóvember síðastliðinum af liðsmönnum Össurar Kristinssonar og fyrirtækis hans OK Prosthetics.

N1 situr uppi með tíu þúsund eintök

„Þetta var góður skóli. Við munum auðvitað læra af þessu og horfa í aðferðafræðina. Við ætlum að endurtaka leikinn, vera þá með fleiri titla,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri olíufélagsins N1.

Geðlæknar gagnrýna heilbrigðisráðuneytið

Geðlæknafélag Íslands gagnrýnir skýrslu vinnuhóps heilbrigðisráðuneytis til að skipuleggja aðgerðir til þess að draga úr misnotkun ofvirknislyfja, eða metýlfenídati.

Skólastjóri Hraðbrautar ver sig á Youtube

„Ef vel tekst til, að þeirra mati sem standa að aðförinni, verður skólinn lagður niður innan tíðar," segir Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, sem nú hefur birt níu myndbönd á vefnum Youtube.

Áramótadjammið kostar sitt

Áramótadjammið er ómissandi hjá mörgum skemmtanaglöðum Íslendingum. En það kostar sitt að skemmta sér á þessu síðasta kvöldi ársins og sumir eiga væntan­lega eftir að vakna timbraðir á nýju ári, töluvert blankari en þegar þeir skelltu sér út kvöldið áður. Fréttablaðið fór á stúfana og athugaði hvað áramótadjammið kostar.

Fyrrverandi forseti dæmdur fyrir nauðgun

Moshe Katsav, fyrrverandi forseti Ísraels, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga fyrrverandi samstarfskonu sinni þegar hann var ferðamálaráðherra árið 1998. Hann á yfir höfði sér sex ára fangelsisdóm.

Ekkert lát á flóðunum í Ástralíu

Ekkert lát er á flóðunum í norðausturhluta Ástralíu og enn komast þúsundir manna hvorki lönd né strönd. Stjórnvöld í hafa lýst yfir neyðarástandi í þremur bæjum. Flytja hefur þurft hundruð íbúa frá heimilum sínum í Queensland til viðbótar við þá þúsund sem fluttir voru á brott fyrr í vikunni en þá var meðal annars notast við þyrlur.

Steingrímur og Jóhanna vildu Davíð aftur í pólitík

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins og Mbl.is, segist hafa verið dreginn aftur í pólitík. Hann segist aldrei hafa lagt til að mynduð yrði þjóðstjórn haustið 2008 og þá segir hann að bloggheimar hafi haft áhrif rannsóknarnefnd Alþingis og skýrslu nefndarinnar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í sérstakri áramótaútgáfu Viðskiptablaðsins sem kom út í dag.

Flugeldum stolið úr rammgerum gámi

Brotist var inn í flugeldamarkað í Höfðahverfi í Reykjavík, en markaðurinn er í stórum rammgerum gámi. Þjófarnir beittu grjóti og líklega kúbeini til að komast inn. Í fljótu bragði virðist sem þeir hafi stolið litlu, en mikið af skoteldum er í gámnum og sprengihætta mikil. Þjófarnir komust undan og verður gæsla við gáminn væntanlega efld.

Blaðburðarmaður Fréttablaðsins fældi þjóf

Íbúi í einbýlishúsi í Garðabæ vaknaði upp við þann vonda draum í nótt að verið var að reyna að spenna upp glugga á húsinu í þeim tilgangi að brjótast þar inn. Hann hringdi þegar í lögreglu, en hafði ekki sjálfur haft afskipti af innbrotsþjófnum þegar lögregla kom á vettvang. Þá hafði þjófurinn hinsvegar látið sig hverfa út í nóttina, án þess að hafa komist inn í húsið, en sjá má ummerki eftir hann á gluggaumbúnaði. Talið er að hann hafi tekið til fótanna þegar blaðburðarmaður kom með Fréttablaðið að húsinu rétt áður en lögreglan kom.

Þúsundir enn án vatns á Norður-Írlandi

Ráðherra málefna Norður-Írlands í bresku ríkisstjórninni segir ljóst að eitthvað meiriháttar hefur brugðist á Norður-Írlandi en um 36 þúsund íbúar landsins hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Nokkur svæði hafa verið án vatns í allt að 11 daga. Af þeim sökum hafa íbúar annað hvort þurft að kaupa vatn á flöskum úr búðum eða nálgast það í neyðarvatnstönkum sem komið hefur verið upp á götuhornum. Ráðherrann segir brýnt að koma vatnsmálunum í lag og nú sé ekki rétti tíminn til að finna sökudólga. Farið verði rækilega yfir málið eftir að íbúunum hefur verið tryggt vatn.

Skíðafólk féll úr stólalyftu

Átta skíðamenn slösuðust töluvert þegar kröftugir vindar feyktu sætum í stólalyftu til með þeim afleiðingum að fólkið féll niður um 8-10 metra. Atvikið átti sér stað í gær á vinsælu skíðasvæði nærri Portland í Main í Bandaríkjunum. Lyftan var í framhaldinu stöðvuð og sátu um 150 skíðamenn fastir í henni í nokkra stund. Fólkið sem slasaðist var flutt á sjúkrahús, þar af þrír sem hlutu beinbrot. Í hópi hinna slösuðu voru bæði börn og fullorðnir.

Óttast þjóðarmorð

Nýskipaður sendiherra Fílabeinsstrandarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum óttast þjóðarmorð í landinu. Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, hefur ekki viljað viðurkenna úrslit forsetakosninganna í síðasta mánuði þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi staðfest þau og hótanir nágrannaríkja um að beita hervaldi láti hann ekki af embætti. Sendiherrann segir mannréttindi brotin víðsvegar um landið og að hátt í 200 stjórnarandstæðingar hafi nú þegar látið lífið.

Óttast um heilsuna vegna sorpbrennslu

Steingrímur Jónsson, bóndi á Efri-Engidal í Skutulsfirði, óttast að áralöng reykmengun frá sorpbrennslustöðinni Funa hafi skaðað heilsu heimilisfólksins á bænum. Hann óttast jafnframt að þurfa að bregða búi vegna eitrunar í jarðvegi og á annað hundrað ára fjölskyldusögu á jörðinni ljúki þar með.

Eldosið sem hafði áhrif um allan heim

Eldgos hófst í sprungu á norðanverðum Fimmvörðuhálsi, skammt vestan gönguleiðarinnar, 20. mars síðastliðinn. Gosið stóð í tæpan mánuð og hafði ekki teljandi áhrif, þótt ný sprunga opnaðist í lok mánaðarins og hraun rynni í Hvannárgil. Töluðu sumir um „túristagos“ en 12. apríl voru ekki frekari merki um elds­umbrot á þessum fyrstu gosstöðvum.

Byltingarleiðtogar ákærðir

Júlía Tímosjenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, var yfirheyrð í gær í tengslum við ásakanir um spillingu. Hún var fyrr í mánuðinum ákærð fyrir að hafa notað fé, sem fékkst við sölu á kolefniskvóta samkvæmt Kyoto-bókuninni, til þess að standa straum af lífeyrisgreiðslum þegar hún var forsætisráðherra. Hún neitar þeim ásökunum.

Stórhert eftirlit verður með ávísun ofvirknilyfja

Guðbjartur Hannes­son heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur vinnuhóps um stórhert eftirlit með ávísun ofvirknilyfja til að sporna við misnotkun þeirra. Lyf eins og rítalín og concerta, sem flokkast sem ávana- og fíkniefni, eru fyrst og fremst ætluð börnum en 50 prósenta aukning á notkun þeirra á síðustu fjórum árum skýrist af ávísunum til fullorðinna.

Veggjald vegur að lífsafkomu

Bæjarstjórn Hveragerðis segir fyrirhugaða vegatolla á Suðurlandsvegi algjörlega óásættanlega. Í ályktun bæjarstjórnar segir: „Hvergerðingur sem ekur hvern virkan dag til vinnu eða skóla á höfuðborgarsvæðinu þyrfti að greiða 140 þúsund krónur á ári í veggjöld.

Leiðtogar hitta Gbagbo

Laurent Gbagbo situr sem fastast á forsetastól Fílabeinsstrandarinnar þrátt fyrir að leiðtogar nokkurra ríkja í vestanverðri Afríku hafi sett honum úrslitakosti um að segja af sér eða búast við hernaðaríhlutun ella.

Kynjahlutfall veikir stöðu Jóns Bjarnasonar

Hver mun yfirgefa ríkisstjórnina í næstu sameiningu ráðuneyta? Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun í dag kynna tvö ný ráðuneyti í ríkisstjórn sinni.

Hamfarir ársins óvenju skæðar

Náttúran hefur ekki verið jarðarbúum sérlega mild árið 2010. Rétt eins og sveiflur í veðuröfgum virðist mega rekja til hlýnunar jarðar hafa breyttir lífshættir gert mannkynið viðkvæmara fyrir náttúruhamförum.

Kalt og bjart á áramótunum

Hitastig verður undir frostmarki um allt land þegar nýja árið gengur í garð á áramótunum. Veður verður þó víðast hvar bjart þannig að flugeldar ættu að sjást vel.

Engin umsókn um sjö læknastöður

Enginn heimilislæknir sótti um sjö lausar stöður sem auglýstar voru nýverið. Um tuttugu læknar hafa flutt af landinu eftir efnahagshrunið, sýnir könnun Landlæknisembættisins.

Sjá næstu 50 fréttir