Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
BUGL fær allt að 500 mál á ári Um 400 - 500 ný mál hafa borist á ári hverju inn á barna- og unglingageðdeild Landspítalans allt frá árinu 1998. 18.4.2011 09:27
Nýtt fréttasett RÚV kostaði 10 milljónir - skjáirnir 15 milljónir Útlagður kostnaður við nýtt fréttasett hjá sjónvarpsfréttastofu RÚV, nýja fréttagrafík, breytta framsetningu veðurfregna, og annað þessu tengt, var 9,8 milljónir króna. Bakgrunnsskjáirnir þrír sem notaðir eru í fréttasettinu voru keyptir fyrir rúmu ári. Þeir eru því ekki viðbótarkostnaður við nýtt fréttasett nú en hver skjár kostaði á sínum tíma tæplega 5 milljónir króna. Skjáirnir þrír kostuðu því saman alls tæpar 15 milljónir króna þegar þeir voru keyptir á síðasta ári. Skjáirnir eru hafa verið og verða áfram notaðir í leikmyndir og annað, auk þess að vera notaðir í fréttunum. Þetta kemur fram í svari Bjarna Guðmundssonar, framkvæmdastjóra RÚV, við fyrirspurn blaðamanns Vísis um kostnað við nýja fréttasettið og aðrar útlitsbreytingar. Þar segir að fréttasettið hjá RÚV var síðast endurnýjað árið 2005, og gamla settið því notað í rúmlega fimm ár. Hins vegar hefur kennimark Sjónvarpsins, sem Gísli B. Björnsson hannaði fyrir 45 árum, gengið í endurnýjun lífdaga. "Kennimörk RÚV, Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2 hafa nú í fyrsta skipti verið sameinuð undir einu sterku auðkenni, hinu góðkunna merki Sjónvarpsins í uppfærðri útgáfu. Eitt merki hefur þann kost að vera sameiningartákn allrar starfsemi fyrirtækisins og skerpa ásýnd þess en merkin voru fjögur áður. Um leið og nýtt auðkenni var tekið upp voru gerðar breytingar á ásýnd og útliti miðla RÚV og voru þær unnar samhliða merkisbreytingunni," segir í svari Bjarna. Útlagður kostnaður við almennar útlitsbreytingar hjá RÚV og miðlum þess, það er Rás 1, Rás 2, Sjónvarpsins og ruv.is nam 4 milljónum króna. Meðal þess sem er inni í þessum kostnaði er nýtt vefútlit sem er væntanlegt innan tíðar, og sviðsmynd fyrir fréttir. Þá hefur stillimynd sjónvarpsins horfið og í staðinn komnar skjámyndir með dagskrárkynningum, fréttum, myndum úr vefmyndavélum Mílu, frá útsendingum í hljóðstofu, og fleira. Heildarkostnaður við breytingarnar nú er því tæpar 14 milljónir króna, en ef skjáirnir sem keyptir voru á síðasta ári er tekinn með er kostnaðurinn orðinn tæpar 30 milljónir. 18.4.2011 08:53
Óvíst að lægra mat hafi mikil áhrif Vandalaust er að skýra stöðu Icesave-deilunnar erlendis og skilningur er ytra á þeirri afstöðu þjóðarinnar að ekki hafi verið rétt að semja um skuldbindingu á meðan hún væri óljós, að sögn Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. 18.4.2011 08:00
Nýbúar orðnir fleiri en 10% af íbúum Danmerkur Í fyrsta sinn í sögunni eru rétt rúmlega 10% af öllum íbúum Danmerkur eru nýbúar eða afkomendur þeirra. 18.4.2011 07:44
Hvirfilbylir valda neyðarástandi í Norður Karólínu Að minnsta kosti 45 fórust í suðurhluta Bandaríkjanna um helgina eftir að miklir stormar og hvirfilbylir herjuðu á íbúa þar. 18.4.2011 07:38
Framsóknarkonur lýsa vanþóknun á skopteikningu Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir algjörri vanþóknun á skopmyndateikningu, sem birt var í Morgunblaðinu á laugadag og sýnir Siv Friðleifsdóttur alþingismann, sem vændiskonu. 18.4.2011 07:28
Goodluck endurkjörinn forseti Nígeríu Flest bendir til að Goodluck Jonathan hafi verið endurkosinn forseti Nígeríu í kosningum þar um helgina. 18.4.2011 07:27
Undir áhrifum á ofsahraða Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði í nótt eftir að hafa mælt hann á 111 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar, reyndist undir áhrifum áfengis og var tekinn úr umferð. 18.4.2011 07:25
Neistaflug frá pitsustað við Laugaveg Allt slökkvilið á vakt á höfuðborgarsvæsðinu var kallað að pitsustað við Laugaveg upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi þar sem neistaflug stóð upp úr reykháfi hússins. 18.4.2011 07:23
Búið að landa 200 tonnum úr Baldvin frá Cuxhaven Búið er að landa 200 tonnum af ferskum fiski, aðallega þroski, úr togaranum Baldvin frá Cuxhaven, sem kom til Dalvíkur á laugardagskvöldið. 18.4.2011 07:21
Erlendum námsmönnum snarfækkar í Danmörku Verulega hefur dregið úr ásókn evrópskra námsmanna í danska skóla. Samkvæmt nýju yfirliti frá menntamálaráðuneyti Danmerkur sóttu um 1.000 færri námsmenn um háskólanám í Danmörku í ár en í fyrra. Þetta er samdráttur upp á um 33%. 18.4.2011 07:16
Synjunin var byggð á röngu ákvæði laganna Ástæða synjunar Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga og stjórnarformanns Íslenska lífeyrissjóðsins, eru rannsóknarhagsmunir hjá sérstökum saksóknara, er fram kemur í tilkynningu frá FME. 18.4.2011 06:30
Branson flytur lemúra milli heimsálfa Áform viðskiptajöfursins Richards Branson um að bjarga lemúrum í útrýmingarhættu með því að flytja þá milli heimsálfa hafa vakið hörð viðbrögð annarra náttúruverndarsinna. 18.4.2011 05:00
Sex til níu mánuðir í viðbót Stjórnendur kjarnorkuversins Fukushima Dai-ichi í Japan telja að það taki sex til níu mánuði að stöðva geislavirknilekann þar og að kæla niður kjarnaofnana. 18.4.2011 04:00
Ný ríkisstjórn í kortunum í Finnlandi Þingkosningar fóru fram í Finnlandi í gær. Bráðabirgðaniðurstöður í gærkvöldi bentu til þess að hægristjórn Mari Kiviniemi forsætisráðherra væri fallin. Þjóðernisflokkurinn Sannir Finnar var sigurvegari kosninganna og fimmfaldaði fylgi sitt. 18.4.2011 04:00
Slökkvilið kallað á pizzastað Slökkviliðið var kallað að Laugavegi 81 nú um ellefuleytið. Þar sáust eldglæringar í skorsteini. Eldurinn reyndist einungis vera í skorsteininum og þykir slökkviliðsmanni sem Vísir talaði við líklegast að það hafi einfaldlega komið upp of mikill eldur í pizzaofni, en í pizzastaðurinn Eldsmiðjan er þarna til húsa. 17.4.2011 22:53
Jóhanna sendi Vesturporti heillaóskaskeyti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera sendi í dag leikhópnum Vesturporti heillaóskir í tilefni af því að hópurinn veitti viðtöku evrópsku leiklistaverðlaununum. 17.4.2011 23:31
Viðhorf Hollendinga og Breta hefur breyst Vðhorf Hollendinga og Breta í garð Íslendinga hefur breyst eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur eðlilegt að Icesave málið sé leitt til lykta fyrir dómstólum. 17.4.2011 18:30
Rúmlega 500 farþegar þurftu að fara frá borði Rýma þurfti Mexíkóskt farþegaskip í gær eftir að skipið varð rafmagnslaust úti fyrir ströndum landsins. 17.4.2011 19:10
Auðveldara að setja einstaklinga og fyrirtæki í gjaldþrot Lögmaður segir að Alþingi hafi gert innheimtuaðilum mun auðveldara en áður að setja einstaklinga og fyrirtæki í gjaldþrot með lagabreytingum á síðasta ári. 17.4.2011 18:37
Líklegt að ný ríkisstjórn verði mynduð í Finnlandi Samkvæmt fyrstu tölum í þingkosningunum í Finnlandi, sem birtar voru klukkan fimm þegar kjörstöðum var lokað, hefur Samstöðuflokkurinn fengið 20,2 prósent atkvæða sem hafa verið talin. 17.4.2011 17:28
Sinubruni á Akureyri Eldur kviknaði í sinu við gömlu brúnna, á milli Borgarbrautar og Lönguhlíðar, á Akureyri um klukkan hálf fjögur í dag. 17.4.2011 16:28
Finnar kjósa til þings í dag Þingkosningar fara fram í Finnlandi í dag. Kannanir benda til þess að Samstöðuflokkurinn, flokkur Jyrki Katainen, núverandi fjármálaráðherra, fái rúmlega 21 prósenta fylgi og verði stærsti flokkurinn. 17.4.2011 14:38
Giftu sig nakin Þau fóru heldur óhefðbundna leið austurrísku hjónin sem giftu sig á dögunum. Melanie og Rene Schachner giftu sig nefnilega nakin til að gera brúðkaup sitt sem eftirminnilegast. 17.4.2011 14:08
Ekkert nema ESB er í boði Þótt stór hluti Króata sé efins um ESB-aðild hefur lítið heyrst af öðrum kostum. Dr. Samardzija segir landið annað hvort ganga inn eðasamræmast ESB utan frá. Mikilvægt fyrir Ísland að leysa Icesave. 17.4.2011 14:00
Fórnarlömb nauðgana gefi öðrum ekki blóð „Á hverju ári þurfum við að vísa um það bil tvö þúsund manns frá um lengri eða skemmri tíma vegna heilsufars, sögu um veikindi, lyfjanotkunar, aðgerða, ferðalaga, bólusetninga og fleira,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir í Blóðbankanum. 17.4.2011 13:30
Fjármálaráðherra Hollands er skrítinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að fjármálaráðherra Hollands væri skrítinn. 17.4.2011 13:14
Hafa ekki tök á að auka framlög til Sólheima Fulltrúaráð Sólheima skorar á velferðarráðherra og sveitarfélagið Árborg að vinna sameiginlega að lausn á vanda heimilisins í stað þess að vísa hvor á annan. Í tilkynningu sem ráðið sendi frá sér í gær segir að mikil óvissa ríki um með hvaða hætti rekstur heimilisins verði tryggður. 17.4.2011 13:00
Fegin að vera komin aftur heim Rithöfundurinn Marie Amelie hefur fengið atvinnuleyfi í Noregi. Marie var vísað frá Noregi eftir að hún skrifaði bók um reynslu sína sem ólöglegur innflytjandi í landinu. Hún lenti í Noregi í gærkvöldi. 17.4.2011 12:07
Versti stormur í tvo áratugi Tuttugu og fimm er látnir eftir að fárviðri gekk yfir sex fylki í Bandaríkjunum. Hvirfilbylir, haglél og flóð fylgdu veðrinu sem skyldi eftir sig slóð eyðileggingar. 17.4.2011 11:56
Vísaði ekki Icesave til þjóðarinnar til að auka vinsældir sínar Ef menn halda að ég sé að sækjast eftir því að vera í sviðljósinu, þá get ég sagt þér að ég er löngu búinn að fá nóg af því, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni, fyrir stundu. 17.4.2011 11:21
Fólskuleg árás á Idol-keppanda Sautján ára stúlka í New York varð fyrir hrottalegri árás þegar fimm ungmenni réðust að henni og börðu til óbóta. Ástæða árásarinnar var sú að stúlkan hafði tekið þátt í áheyrnarprufum fyrir American Idol þar sem rödd hennar fékk að blómstra. 17.4.2011 11:00
Földu kannabis í bílnum Lögreglan á Akranesi stöðvaði á föstudagskvöldið bifreið með þremur farþegum. Fljótt vaknaði grunur um fíkniefnamisferli og sá grunur reyndist á rökum reistur því að ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna, einn farþeginn faldi kannabisefni í bifreiðinni og farið var í húsleit heim til hins farþegans og þar fundust um 5 grömm af amfetamíni og kannabis. 17.4.2011 10:55
Gekk á milli manna á Kringlukránni og stal veskjum Nóttin var tiltölulega róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar í miðbænum og leitaði annar tjónaþolinn aðstoðar á slysadeild. 17.4.2011 10:05
Mikil óvissa um hvernig rekstur Sólheima verður tryggður Sólheimar skora á velferðarráðherra og sveitarfélagið Árborg að vinna sameiginlega að lausn á vanda heimilisins í stað þess að vísa hvor á annan. 17.4.2011 10:00
BRICS-löndin vilja meiri völd Leiðtogar upprennandi stórvelda í hinu alþjóðlega efnahagslífi, BRICS-landanna svokölluðu (Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka), kalla eftir umbótum í regluverki alþjóðaviðskiptakerfisins og segjast munu styðja aðgerðir til að auka stöðugleika í alþjóðlegu efnahagslífi. Auk þess horfa þau til þess að minnka vægi Bandaríkjadalsins sem aðalgjaldmiðils heimsins. 17.4.2011 10:00
Lögreglumenn hlupu fálka uppi Einn var sviptur ökuréttindum á Akureyri í nótt, en það var ökumaður um tvítugt sem var tekinn á hundrað og tólf kílómetra hraða á Drottingarbraut þar sem hámarkshraði er fimmtíu. 17.4.2011 09:58
Melóna sprakk á Ísafirði Helgin var róleg hjá lögreglunni á Ísafirði, ef frá er talin heldur óvenjuleg sprengja sem sprakk í miðbænum í fyrrakvöld. Þá hafði einhver óprúttinn stungið flugeld eða blysi í melónu og skilið hana eftir við hús í bænum. 17.4.2011 09:52
Sex til níu mánuði að ná völdum á ástandinu í Fukushima Forsvarsmenn Kjarnorkuversins í Fukushima segja að það taki sex til níu mánuði að ná völdum ástandinu þar en bilað kælikerfi kjarnorkuversins hefur verið til vandræða síðan jarðskjálftInn mikli reið yfir Japan þann 11. mars. 17.4.2011 09:47
Eftirför á Suðurnesjum Ökumaður á þrítugsaldri setti sjálfan sig og vegfarendur í stórhættu á Reykjanesbraut klukkan tíu í gærkvöldi þegar hann sinnti ekki beiðni lögreglu um að stöðva bifreið sína. 17.4.2011 09:33
Heppinn Siglfirðingur vann 61 milljón Einn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld. Sá keypti miðann sinn á Olís á Siglufirði. En fyrsti vinningur var rúmlega 60 milljónir. 16.4.2011 19:35
Ökumenn í vandræðum á Steingrímsfjarðarheiði Ökumenn á fólksbílum eru farnir að lenda í vandræðum á Steingrímsfjarðarheiði og er björgunarsveitin Dagrenning á leið upp á heiði til aðstoðar ökumönnum. Farið er að draga í skafla og skyggni lélegt. 16.4.2011 19:15
Fjárdráttur á annan tug milljóna Grunur leikur á að fjárdráttarmálið sem upp er komið í Norðurlandaráði snúist um á annan tug milljóna króna. Endurskoðendur í Finnlandi fara nú yfir bókhald síðustu tveggja ára en málið hefur verið kært til Efnahagsbrotadeildar. 16.4.2011 19:02
Ingólfur Margeirsson látinn Ingólfur Margeirsson blaðamaður er látinn. Hann fæddist í Reykjavík 1948 og eftir háskólanám í Svíðþjóð vann hann bæði sem blaðamaður og ritstjóri á ýmsum dagblöðum og tímaritum. Ingólfur gat sér einnig gott orð fyrir ritstörf og dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hann var 62 ára. 16.4.2011 19:38
Forsvarsmenn ASÍ reiðubúnir til að gera samning til skemmri tíma Forsvarsmenn ASÍ eru reiðubúnir til að gera samning við SA til skemmri tíma ef ákvæðið um yfirlýsinguna gagnvart ríkisstjórninni verður tekið út. Þetta segir Siguður Bessason, formaður Eflingar. 16.4.2011 19:08