Fleiri fréttir

Hringitónn með fagnaðarlátum Hrafnhildar

Fagnaðarlæti Evróvisjón-þulunnar Hrafnhildar Halldórsdóttur þegar Vinir Sjonna komust áfram í aðalkeppni Evróvisjón vöktu mikla athygli. Hrafnhildur mátti vart mæla og afsakaði sig með því að hún þyrfti að hætta að tala, því að hún væri alveg að fara að gráta.

Fjölmenningardagur í Reykjavík á morgun

Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur á morgun þegar að Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13.

Föstudagsviðtalið: Treysta ber ákvörðunum kvenna

Karen Busby er lagaprófessor við Háskólann í Manitoba. Hún hefur gert ýmsar rannsóknir og hefur nú beint sjónum sínum að staðgöngumæðrun. Hún var á Íslandi fyrr í vikunni á vegum samtakanna Tilveru, sem eru samtök um ófrjósemi, og Staðgöngu, sem er stuðningsfélag staðgöngumæðrunar á Íslandi. Þórunn Elísabet Bogadóttir spurði hana nokkurra spurninga.

Sömu sæti í rútunni annað kvöld - frábær stemning í hópnum

"Það er frábær stemning í hópnum og þetta leggst svo vel í okkur, við erum svo ánægð að vera komin í úrslitin,“ Benedikt Brynleifsson, trommari í Vinum Sjonna, en stóra stundin hjá þeim félögum er annað kvöld þegar sjálft úrslitakvöldið fer fram í Eurovision.

Dæmdur til að greiða lögmanni sínum laun

Kristján Sveinbjörnsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Álftanesi, hefur verið dæmdur til að greiða Jóni Egilssyni lögmanni 1700 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna lögfræðiaðstoðar sem lögmannnstofa Jóns veitti Kristjáni.

Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt"

"Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald

Gæsluvarðhaldskrafa yfir manninum sem játað hefur að hafa orðið barnsmóður sinni að bana í gær var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjaness nú rétt fyrir tvö. Dómari féllst á kröfuna og hefur maðurinn verið úrskurðaður í varðhald til 27. maí næstkomandi. Yfirheyrslur fóru fram yfir manninum í gærkvöldi og stóðu þær fram eftir nóttu.

Var með barnið í bílnum

Maðurinn sem játaði í gær að hafa orðið barnsmóður sinni að bana var, eftir því sem næst verður komist, með barn þeirra í bílnum þegar hann framdi voðaverkið. Heimildir fréttastofu herma að áður en hann fór með lík konunnar á Landspítala í Fossvogi í gærkvöldi, hafi hann farið með barnið heim til foreldra sinna.

Telja sig hafa fundið Monu Lisu

Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið gröf konunnar sem sögð er vera Mona Lisa á málverki Leonardo da Vinci.

Viðbrögð Vina Sjonna þegar Ísland komst áfram

Þvílík gleði braust út þegar að Ísland komst áfram úr fyrri undanúrslitariðli Eurovision síðastliðið þriðjudagskvöld. Í meðfylgjandi myndbandi sést hvernig Vinir Sjonna gjörsamlega farast úr gleði þegar að Íslenski fáninn birtist á skjánum.

Innbyrðis deilur í Black Pistons

Tveir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir eftir frelsissviptingu og ítrekaðar líkamsárásir á karlmann á þrítugsaldri. Allir mennirnir tengjast Black Pistons afbrotagenginu samkvæmt heimildum fréttastofu. Eftir að hafa verið haldið nauðugum í rúmlega hálfan sólarhring, komst þolandinn út úr bíl árásarmannanna, þegar þeir voru að flytja hann milli staða í fyrradag, og bjargaði sér á hlaupum.

Strætóbílstjóri talaði í símann undir stýri

Forsvarsmenn Strætó bs. hafa veitt vagnstjóra hjá fyrirtækinu tiltal vegna farsímanotkunar við akstur eftir að ljósmynd barst af bílstjóranum þar sem hann sást tala í símann á sama tíma og hann ók strætisvagni. Ljósmyndin barst til fréttastofu sem síðan kom henni áleiðis til Strætó bs. Upplýsingar frá ljósmyndara um tíma og staðsetningu vagns þegar myndin var tekin leiddi til þess að starfsfólk Strætó bs. gat haft uppi á vagnstjóranum. Gert er ráð fyrir að vagnstjórum verði sent tilkynning á allra næstu dögum þar sem ítrekaðar eru upplýsingar um starfsreglur, þar á meðal að ólöglegt sé að tala í síma við akstur. "Lögbrot og brot á starfsreglum vagnstjóra eru litin alvarlegum augum hjá Strætó bs. og farsímanotkun í akstri án handfrjálss búnaðar er ekki einungis lögbrot heldur er það einnig brot á starfsreglum vagnstjóra að tala í síma í akstri - með eða án handfrjáls búnaðar," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Brot á lögum og starfsreglum fara eftir ákveðnum ferlum innan fyrirtækisins og kunna að leiða til áminningar og ef til vill síðar til brottreksturs ef svo ber undir. "Þetta er allt skráð," segir Reynir. Hann leggur áherslu á að fyrirtækið reyni eftir fremsta megni að vinna með sínu starfsfólki og aðstoða það við að bæta ráð sitt þegar þörf krefur, frekar en að segja upp góði fólki sem verður á að gera mistök í starfi. Ef um endurtekin brot sé að ræða er þó engin þolinmæði fyrir því. "Flestir taka ábendingum vel og brjóta ekki af sér aftur," segir Reynir. Þó hann geti ekki gefið upplýsingar um einstaka starfsmenn segir Reynir aðspurður að sá sem á myndinni sést tala í símann við akstur er ekki þekktur hjá fyrirtækinu nema af góðu einu. Reynir bindur því vonir við að eitt tiltal sé allt sem til þurfi. Reynir segir ekki algengt að ábendingar berist vegna þess að vagnstjórar tali í síma á meðan á akstri stendur, en það komi þó fyrir. Hann beinir því til viðskiptavina Strætó bs. að hafa sjálfir samband við fyrirtækið ef þeir vilja koma með athugasemdir, og segir þar fullum trúnaði heitið.

Transfólk fordæmir orðaval þulu í Eurovision

"Bleiki hnefinn fordæmir niðrandi ummæli Hrafnhildar Halldórsdóttur Eurovision-þulu og krefst þess að hún, ásamt Ásgrími Angantýssyni málfarsráðunaut RÚV og Páli Magnússyni útvarpsstjóra, biðjist afsökunar vegna fordómafullra ummæla Hrafnhildar frá því í gær um keppanda Eurovision sem farið hefur í aðgerð til leiðréttingar á kyni." Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bleika hnefanum, aðgerðahópi róttækra kynvillinga. Áður en ísraelska söngkonan Dana International steig á svið í fyundankeppninni á þriðjudag, sagði Hrafnhildur: "Dana heitir í raun Yaron Cohen og er tæplega fertugur karlmaður. Eftir kynskiptingu heitir hún Sharon Cohen, þetta vita auðvitað allir því Dana sigraði Eurovision keppnina árið 1998 í Birmingham," Krafa Bleika hnefans er að Hrafnhildur biðji almenning, sérstaklega transfólk, afsökunar á ummælunum í beinni útsendingu frá Eurovision-söngvakeppninni á morgun 14. maí. Jafnframt skorar hópurinn á Pál og Ásgrím að biðjast afsökunar skriflega. Dana International er ekki karlmaður - hún er kona sem fæddist í karlmannslíkama og fór í aðgerð til leiðréttingar á kyni. Hún heitir ekki Yaron Cohen heldur Sharon Cohen, hið rétta er að hún hét Yaron. "Ummæli Hrafnhildar bæði einkennast af og ýta undir skilningsleysi og fáfræði gagnvart transfólki. Það er sérlega alvarlegt í ljósi þess að leitandi er að öðrum hópi í íslensku samfélagi sem verður fyrir álíka miklum fordómum. Félagsleg og lagaleg réttindi hópsins eru í óvissu og andlegt álag mikið. Það er því mjög alvarlegt þegar sjónvarp allra landsmanna ýtir undir fordóma með þeim hætti sem gert var í beinni útsendingu frá Eurovision á fimmtudaginn sl.,“ segir í tilkynningunni.

Norðmenn í leynilegum flóttamannaflutningum

Norðmenn hafa leynilega í tvö ár hjálpað stjórnarandstæðingum að komast frá Sri Lanka og veitt þeim pólitískt hæli í Noregi. Tvö ár eru liðin frá því blóðugu borgarastríði lauk í landinu.

Sletta úr klaufunum í Eyjafjarðarsveit

Ábúendur á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit bjóða gestum og gangandi að fylgjast með þegar kúnum á bænum verður hleypt út eftir vetrarinnistöðu, á komandi sunnudag klukkan tólf á hádegi. "Kýrnar fagna því vel og innilega þegar þeim er hleypt úr fjósi og má fastlega búast við að hraustlega verði slett úr klaufum," segir á vef Landssambands kúabænda um viðburðinn. Ytri-Tjarnir eru við Eyjafjarðarbraut eystri, 13 kílómetra sunnan Akureyrar. Þar er rekið kúabú með 50

Vill bregðast við hugsanlegri mengun við Íslandsstrendur

Þörf er á auknu eftirliti með skipaumferð og viðbúnaði við hugsanlegri mengun vegna aukinna umsvifa og siglinga á Norðurslóðum, að mati umhverfisráðuneytisins. Ráðherra kynnti á dögunum tillögur að auknu samstarfi stofnana og ráðuneyta vegna þessa fyrir ríkisstjórninni.

Breytt flugáætlun Icelandair vegna vinnudeilu

Tilkynning ISAVIA þess efnis að aðeins verði heimilað neyðarflug um Keflavíkurflugvöll frá kl. 20.00 í dag, föstudag, til kl. 07.00 á morgun, laugardag, vegna aðgerða flugumferðarstjóra mun hafa töluverð áhrif á áætlunarflug Icelandair næsta sólarhringinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair þar sem einnig má finna upplýsingar um breytingar á áætlunarflugi vegna þessa næstu daga. Þar segir að flugi FI-212 frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar í dag verður flýtt um 30 mínútur og verður brottför kl. 12.45. Þá verður flugi FI-213 frá Kaupmannahöfn í kvöld flýtt um 45 mínútur og verður brottför kl. 19.00 að staðartíma og mun sú vél lenda á Keflavíkurflugvelli kl. 20.00. Flug FI-455 frá London í kvöld mun lenda á Akureyrarflugvelli kl. 22.50 og verða farþegar fluttir til Reykjavíkur með rútum. Þá má búast við því að eins til tveggja klukkustunda seinkun verði á öllu flugi Icelandair í fyrramálið vegna áðurnefndra takmarkana. Viðskiptavinir Icelandair eru hvattir til þess að fylgjast vel með upplýsingum um komu- og brottfarartíma því breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara. "Vinnudeila ISAVIA og flugumferðastjóra er Icelandair óviðkomandi, en hún veldur okkur og viðskiptavinum okkar óþægindum og fjárhagstjóni. Við óttumst að þetta sé aðeins upphafið að frekari aðgerðum og skorum á deiluaðila að leysa úr ágreiningi sínum svo ekki komi til alvarlegra afleiðinga fyrir ferðaþjónustuna nú í upphafi sumars", segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring

Tveir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að þeir voru handteknir í Hafnarfirði á miðvikudag vegna líkamsárásar á karlmann á þrítugsaldri.

Cameron beitir sér í máli Madeleine

Lundúnalögreglan ætlar nú að beita sérþekkingu sinni við að rannsaka hvarfið á Madeleine McCann. Á dögunum voru átta ár liðin frá fæðingu stúlkunnar en hún hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007 þá þriggja ára gömul.

Skemmtanastjóri á eigin heimili - stofnaði viðburðavef

"Það má segja að ég hafi verið skemmtanastjóri á eigin heimili. Við hjónin höfum samtals haft sex börn með lögheimili hjá okkur í gegn um árin," Sif Sigfúsdóttir sem heldur úti síðunni Gerumeitthvad.is, viðburðavef fyrir alla fjölskylduna, sem hún opnaði í lok mars. "Mér fannst sárvanta síðu sem ég gat opnað á laugardagsmorgni og fundið út allt það helsta sem væri að gerast þann daginn. Í stað þess að opna margar netsíður fyrirtækja og stofnana er hægt að finna þetta allt á einum stað," segir Sif hefur gengið með hugmyndina að síðunni í maganum í tvö ár. Meðal þess sem nú ber hæst á viðburðavefnum Gerumeitthvad.is er Barnavagnavika Ferðafélags Íslands, útskriftartónleikar úr Listaháskóla íslands, fjöruganga við Bessastaðakirkju og nytjamarkaður í Súðavogi í Reykjavík þar sem allur ágóðinn rennur til ABC barnahjálpar. Vefsíðan er nýsköpunarverkefni Sifjar á námskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,Brautargengi, sem er sérsniðið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Hún hafði gengið með hugmyndina í maganum í tvö ár þegar hún loksins varð að veruleika. Sif sér alfarið sjálf um síðuna, og notar til þess lausan tíma á kvöldin og um helgar. Þá vinnur hún aðsendar myndir af á þarf að halda og skrifar texta. "Ég sé um að setja inn auglýsingar og er með góða aðila af öllu landinu sem hafa sýnt síðunni áhuga og senda á mig viðburði. Þetta er auðvitað vinna en á móti kemur að þetta er mín ástríða og mér finnst þetta gaman," segir Sif. Hún hefur alltaf verið virki í öllu félagsstarfi og hefur margvíslega reynslu að baki. Hún sat í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur árin 2008 til 2010, er með meistaragráðu úr viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og með kennsluréttindi fyrir grunn- og menntaskóla. "Ég ákvað að vinna síðuna út frá fræðum markaðsfræðingsins og frumkvöðulsins Guy Kawasaki en hans mottó er meðal annars viðskiptahugmyndin eigi að auka lífsgæði fólks, hún eigi að uppfylla þörf og ennfremur að þörfin fyrir að koma skilaboðunum áleiðis til fólksins sé sterkari en skammtíma gróðasjónarmið. Þessu vinn ég eftir," segir Sif. Öllum er frjálst að senda inn upplýsingar um viðburði og myndir. Sif segir að henni finnist sérstaklega gaman að geta komið á framfæri grasrótarviðburðum sem höfða til allra, og eru án aðgangseyris.

Hefnt fyrir dauða Bin Ladens

Sjötíu og þrír létust þegar tvær sprengjur sprungu í herskóla í Norðvestur Pakistan í gærkvöldi. Tugir slösuðust að auki í sprengingunum en talíbanar hafa lýst ábyrgð ódæðisins á hendur sér. Þeir segjast hafa verið að hefna fyrir drápið á Osama bin Laden í byrjun mánaðarins. Sprengjurnar sprungu þegar hópur nýliða var að stíga upp í rútur á leið í frí eftir að hafa lokið fyrstu önn við skólann.

Keflavíkurflugvelli lokað í kvöld og fram á morgun

Keflavíkurflugvelli verður lokað klukkan átta í kvöld til klukkan sjö í fyrramálið vegna manneklu við flugumferðarstjórn. Veikindi hafa verið boðuð og þar sem yfirvinnubann er í gildi á flugumferðarstjórum er ekki hægt að kalla út mannskap í staðinn. Einhver röskun getur orðið á flugi Icelandair vegna þessa, en lokun vallarins hefur ekki áhrif á flug Iceland Express.

Brotist inn á þremur stöðum

Tilkynnt var um þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu undir morgun. Brotist var inn í skóla í Breiðholti og í Hafnarfirði, en ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið þar. Svo var brotist inn í verslun í vestuborginni og þaðan stolið tóbaki og ef til vill einhverju fleiru. Þjófarnir komust undan í öllum tilvikum og er þeira nú leitað.

Kjötframleiðsla gæti aukist um fimmtung

"Bændur segjast á næstu fimm árum treysta sér til að auka framleiðsluna um tíu til tuttugu prósent," segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Vegna horfa á auknum útflutningi segir hann möguleika til aukinnar framleiðslu hafa verið til umræðu á fundum með bændum.

Leif Magnús flytur til Íslands í sumar

"Þetta eru mjög góð tíðindi. Það er þungu fargi af okkur öllum létt,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi hins átta ára gamla Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland. Norskur dómstóll hefur samþykkt að veita Grétari, föður Leifs, fullt forræði yfir honum og er von á Leif til Íslands í byrjun júní þegar skólahaldi lýkur í bænum Mandal í Noregi.

Fólkið er ekki talið í lífshættu

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann og konu á bráðamóttöku Landspítalans eftir harðan árekstur á þjóðveginum við Skriðuland, nærri Búðardal, á fimmta tímanum í gær.

Gæti bætt lánshæfismatið

"Það er fylgni á milli þess þegar Seðlabankinn kaupir aftur erlend skuldabréf ríkissjóðs og þess að álagið lækkar,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur á greiningardeild Íslandsbanka.

Rannsaka vinnubrögð siðanefndar HÍ í máli Vantrúar

Háskólaráð Íslands hefur skipað þriggja manna sérfræðinganefnd til að rannsaka vinnubrögð siðanefndar skólans þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann. Formaður nefndarinnar er meðal annars sakaður um að leka trúnaðarupplýsingum um málið til formanns Vantrúar og eiga við hann náin samskipti.

Karlmanni dæmdar bætur í kjölfar mansalsmáls

Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða íslenskum karlmanni 600 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í um það bil tvo sólarhringa vegna rannsóknar lögreglu á mansalsmáli og hafði krafist sjö milljóna í bætur.

Hagstjórnarmistök gætu leitt til hruns

Röng skattastefna vinstristjórnarinnar í dýpsta samdráttarskeiði landsins í tæp hundrað ár án hagvaxtar gæti valdið því að ríkið yrði gjaldþrota eftir þrjú til fjögur ár. Þetta fullyrðir Ragnar Árnason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands.

Tilskipun kallaði á könnun

Hvorki er að finna salmonellu né E. coli sýkingu í nautgripabúum hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matvælastofnunar.

37 umsóknir hafa borist um sérfræðiaðstoð

Alls höfðu 37 umsóknir um sérfræðiaðstoð verið sendar stofnunum Evrópusambandsins (ESB) í lok mars, frá því að svokölluð TAIEX-aðstoð var gerð Íslendingum aðgengileg síðasta sumar. Umsóknirnar fela flestar í sér aðstoð við upplýsingaöflun og kynningu á regluverki ESB.

Var með 1.100 lítra af bruggi

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir landabrugg. Manninum er gefið að sök að hafa á heimili sínu í Skólagerði í Kópavogi framleitt í söluskyni 850 lítra af gambra.

Handriðin í Hörpu slysagildra

Handriðin á svölunum í Eldborgarsal Hörpunnar eru slysagildra og hafa tónleikagestir kvartað til tryggingafélaga. Tónlistarstjóri hússins ráðleggur lofthræddu fólki að kaupa sér ekki miða á svölunum.

Formaður Lögmannafélagsins segir ákæru óskýra

Formaður Lögmannafélagsins telur miklar líkur á að ákærunni gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði vísað frá Landsdómi. Hún uppfylli ekki nútímakröfur um skýrleika í ákæruskjölum. Hann segir pólitískt uppgjör ekki eiga heima í réttarsölum.

Gasleki í Hörpunni - húsið rýmt

Gasleki varð í veitingastaðnum Munnhörpunni tónlistarhúsinu Hörpunni. Að minnsta kosti tveir hafa fundið til óþæginda vegna lekans en lögregla og slökkvilið eru að rýma húsið.

Sjá næstu 50 fréttir