Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúar yfirgáfu gossvæðið Nokkrir íbúar Kirkjubæjarklausturs og þar úr grenndinni yfirgáfu svæðið í fylgd björgunarsveitarmanna í gærkvöldi og ætla að dvelja annarsstaðar fyrst um sinn. Vitað er nokkrar kindur og lömb hafa drepist, einkum í Landbroti, suður af eldstöðinni. 24.5.2011 06:56
Náðu að klára prófin fyrir helgi en lokapartíi aflýst "Sem betur fer vorum við með grímu,“ segir Svava Margrét Sigmarsdóttir, nýorðin sex ára leikskólamær á Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri, þegar hún lýsir því hvernig hún fór með móður sinni á milli húsa í bænum til að heimsækja "Laugu frænku“. Hún segist ekkert vera hrædd þó að myrkur sé um miðjan dag og blint í öskufjúkinu, enda hafi hún séð öskufall frá Eyjafjallajökli í fyrra. "En þá var ekki svona mikið myrkur eins og núna.“ 24.5.2011 06:30
Ísinn er eins og fljótandi grjót Það var enginn blámi yfir Jökulsárlóni í gær. Ísjakarnir þar eru svartir og það var ekkert að gera, að sögn Einars Björns Einarssonar sem rekur ferðaþjónustuna Glacier Lagoon. 24.5.2011 05:00
Aska yfir Reykjavík Grunnskólar og leikskólar á höfuðborgarsvæðinu héldu almennt börnum innandyra í gær vegna svifryksmengunar. Sama gilti um skóla fyrir austan fjall. 24.5.2011 04:00
Röskun á morgunflugi Flugi Icelandair til Lundúna og Manchester í fyrramálið hefur verið aflýst. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að staðan á flugi sé að öðru leyti nokkuð góð. Nokkrum flugferðum seinkar vegna öskufallsins. Þar á meðal má nefna morgunflug frá Ameríku sem er um tveimur tímum seinna en vanalega. 23.5.2011 22:17
Obama heimsótti Ölduselsskóla Sarah Obama, föðuramma Baraks Obama Bandaríkjaforseta, heimsótti nemendur í Ölduselsskóla í dag. Þar kynnti hún sér verk og listgreinar skólans. Hún fylgdist með leiklistaratriði hjá nemendum í sjötta bekk. Þá skellti hún sér í matreiðslutíma og þáði kakó og smákökur af nemendum. 23.5.2011 20:53
Fleiri ferðum aflýst í Skotlandi Breska flugfélagið British Airways hefur frestað öllum ferðum frá Englandi til Skotlands og verður í fyrsta lagi flogið klukkan eitt eftir hádegi á morgun. Ástæðan er öskuskýið úr Grímsvötnum sem nú stefnir á Bretlandseyjar. Hollenska félagið KLM hefur aflýst 16 ferðum á morgun til Skotlands og Englands og skoska félagið Loganair hefur aflýst 36 ferðum frá Skotlandi. 23.5.2011 20:41
Sótsvartir jakar á Jökulsárlóni Þessar fallegu myndir af Jökulsárlóni tók Elva Björg Elvarsdóttir, fjórtán ára gömul stelpa í dag. Hún er stödd hjá ættingum sínum á Hestgerði við Höfn í Hornafirði og fór að lóninu í dag til að virða fyrir sér jakana, sem eru orðnir svartir af ösku eins og sést á myndunum. Þetta er flott, en ekki samt út af góðum ástæðum,“ segir Elva. Hún er búsett í Hveragerði, en kemst ekki heim vegna þess að leiðin austur hefur verið lokuð vegna gossins. Hún vonast þó til að komast heim á morgun. 23.5.2011 20:15
Gosóróinn lítið breyst síðastliðinn sólarhring Gosórói í Grímsvötnum hefur lítið breyst síðasta sólarhringinn segir jarðeðlisfræðingur. Búast má þó áfram við umtalsverðu öskufalli næstu daga. Almannavarnir beina því til fólks að kynda vel heimili sín til að halda öskunni úti. 23.5.2011 19:09
Atvinnulausir og námsmenn fá vinnu á gossvæðunum Sveitarfélögum verður boðið að ráða atvinnuleitendur og námsmenn til þess að sinna ýmsum störfum til aðstoðar fólki á áhrifasvæði eldgossins í Grímsvötnum. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti tillögu þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í morgun. 23.5.2011 18:55
Ekki hundi út sigandi "Það er ekki hundi út sigandi,“ segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, í samtali við fréttastofu. Kristján Már Unnarsson ræddi við hana í heimabyggð, skammt frá gosinu, nú í kvöld. 23.5.2011 18:46
Allir flugvellir opnir Allir flugvellir á Íslandi hafa verið opnaðir. Þeir opnuðu rétt eftir klukkan sex í dag. Vélar eru á leið til Heathrow flugvallar í Lundúnum. Í kvöld er svo gert ráð fyrir að ein vél fari til Washington og að tvær vélar fari til Kaupmannahafnar. Allt millilandaflug hefur legið niðri frá því í gær vegna eldgossins. 23.5.2011 18:29
Obama flýr íslenskt öskuský Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun hraða brottför sinni frá Írlandi vegna eldgossins í Grímsvötnum. Þetta segir Sky fréttastofan. Obama fór í heimsókn til Írlands í dag, ásamt Michelle eiginkonu sinni. Þau hugðust vera þar í einn sólarhring en þau munu fara í kvöld vegna mögulegra truflana á flugsamgöngum. 23.5.2011 17:49
Birtir til á Kirkjubæjarklaustri Ástandið á Kirkjubæjarklaustri er mun skárra nú en fyrr í dag þegar menn sáu ekki handa sinna skil fyrir öskukófi. Fyrir um það bil klukkustund snérist vindáttin á svæðinu og hvessti töluvert. Þá birti fljótlega til og er öskufall ekki eins mikið og það var fyrr í dag. 23.5.2011 16:55
Andlát konu í austurborginni: Eiginmaðurinn laus úr haldi Karl á sjötugsaldri, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald 16. maí, er laus úr haldi lögreglu. 23.5.2011 16:27
Bandarískir njósnarar í Svíþjóð Svenska Dagbladet heldur því fram að Bandaríkjamenn hafi njósnað um grunaða hryðjuverkamenn í Svíþjóð, rétt eins og gert var áður en ráðist var til atlögu við Ósama bin Laden í Pakistan. 23.5.2011 16:09
Miklar sveiflur á mælingum loftgæða í Reykjavík Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast til borgarinnar í nótt þegar þau voru há. Reikna má með að mæligildi komi til með að sveiflast áfram. Öskufallið var samt ekkert í líkingu við það sem er fyrir austan fjall og á Suðurlandi. 23.5.2011 15:31
Valdabarátta í Kreml Vladimir Putin vill verða forseti Rússlands á nýjan leik og valdabarátta milli hans og Dmitrys Medvedev núverandi forseta er þegar hafin. 23.5.2011 14:33
Engar bilanir hjá Mílu - viðbúnaður enn á hættustigi Engar bilanir eða truflanir hafa orðið í fjarskiptakerfi Mílu á gossvæðinu í Grímsvötnum. Þetta á einnig við um örbylgjusambönd, en öskufall virðist ekki hafa áhrif á þau. Áfram verður fylgst með styrk þeirra. Í tilkynningu frá Mílu segir að lokið hefur verið við að þétta loftinntök og hurðaop í tækjahúsum á svæðinu. Verið er að yfirfara síur í tækjahúsum og verður það gert daglega. Mat neyðarstjórnar er að viðbúnaður Mílu sé enn á „Hættustigi" miðað við framvindu eldgoss Í Grímsvötnum. Neyðarstjórn fylgist með þróun mála og fundar eins oft þörf krefur 23.5.2011 14:15
Líklegt að flug á Bretlandseyjum fari úr skorðum á morgun Bresk flugmálayfirvöld búast við því að askan úr Grímsvötnum komi til með að raska flugumferð á Bretlandseyjum á morgun. Nýjustu spár bresku veðurstofunnar gera ráð fyrir að öskuskýið nái til Skotlands og Írlands snemma í fyrramálið. Evrópskir ferðalangar og flugfélög bíða nú í ofvæni eftir því hvaða áhrif gosið muni hafa á ferðaplön milljóna manna á næstu dögum. Mönnum er enn í fersku minni áhrifin sem gosið í Eyjafjallajökli hafði á flugumferð í Evrópu þegar um 10 milljónir manna voru strandaglópar um víða veröld í marga daga. 23.5.2011 14:12
Tekist á við öskufallið Svartamyrkur hefur verið í morgun vegna öskufalls á svæðinu milli Mýrdalssands og Skeiðar-ár-sands og er allt athafnalíf þar meira og minna lamað af þeim sökum. Kristján Már Unnarsson fréttamaður Stöðvar 2 er á Kirkjubæjarklaustri og hann ræddi við Eygló Kristjánsdóttur sveitarstjóra Skaftárhrepps og Adolf Árnason, lögregluvarðstjóra á Kirkjubæjarklaustri. 23.5.2011 13:57
Caribou tónleikar aftur á dagskrá Hljómleikum kanadísku sveitarinnar Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í gær hefur verið frestað til 28. júní. Eins og greint var frá í gær kom eldgosið í veg fyrir að liðsmenn kæmust til landsins. Miði á tónleikana í gær mun gilda á nýja dagsetningu en þeir miðakaupendur sem ekki geta notað miða sinn á tónleikana í júní fá endurgreiðslu með því að hafa samband við midi.is í síma 540-7800. Að sögn skipuleggjenda verða miðar endurgreiddir til og með mánudeginum 30. maí. 23.5.2011 13:37
Veginum lokað frá Höfn og til Djúpavogs Óveður er og ekkert ferðafæri á milli Hafnar og Djúpavogs. Að sögn lögreglunnar á Höfn hafa ökumenn verið missa framrúður úr bílum sínum í veðurhamnum og einn ökumaður missti allar rúður úr bíl sínum við Hvalnesskriður. Mikið sandfok er á þessu svæði og því er fólki ráðið frá því að vera þarna á ferðinni eins og er. 23.5.2011 13:28
Ráðherrar ætla á gossvæðið Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands ætla að fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. 23.5.2011 13:25
Kerin full af ösku - fleiri hundruð kíló af bleikju drapst Um tvö til þrjúhundruð kíló af bleikjum hafa drepist í fiskeldi nálægt gosstöðvunum. Starfsmenn sjá vart í kerin fyrir ösku, svo heildartjónið kemur ekki í ljós fyrr en rofa tekur til. 23.5.2011 13:07
Vestmannaeyjar: Fólki ráðlagt að halda sig inni Þar sem spáð er áframhaldandi Norð- og norðaustanlægum áttum næstu tvo daga eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Grímsvötnum samkvæmt tilkynningu frá Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja. 23.5.2011 11:45
Úps -hvað varð um heimsendi? Bandaríski klerkurinn sem spáði heimsendi síðastliðinn laugardag er steinhissa á því að heimurinn skuli vera hérna ennþá. Harold Camping hafði lesið út úr biblíunni að heimsendir myndi hefjast klukkan sex að staðartíma um heim allan. 23.5.2011 11:33
Flugstjóri Air France var aftur í vélinni Flugstjóri Air France vélarinnar sem fórst á leið frá Rio de Janeiro til Parísar fyrir tveim árum var ekki í stjórnklefanum þegar vélin flaug inn í óveður. Þýska tímaritið Der Spiegel hefur þetta eftir ónafngreindum sérfræðingi sem hefur heyrt hljóðupptökur úr stjórnklefanum. 228 manns voru um borð og fórust allir. 23.5.2011 11:28
Krafturinn í eldgosinu svipaður og í gær Hæð gosmakkarins úr eldgosinu í Grímsvötnum hefur rokkað frá 8 til 10 kílómetrum í morgun en í gær var hann 10 til 15 kílómetra hár. Á laugardagskvöld þegar gosið byrjaði náði gosmökkurinn 20 kílómetra upp í loftið. 23.5.2011 11:22
Skyggnið ekkert - aðstæður eru hrikalegar Skyggnið við og á Kirkjubæjarklaustri er nánast ekkert. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamönnum fréttastofunnar sést varla út fyrir vélarhlíf bílsins. 23.5.2011 11:17
Loftgæðamælir í borginni bilaður Unnið er að viðgerðum á svifriksmæli sem mælir loftgæði í borginni. Niðurstöður mælinga er almennt hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar en sem stendur koma þar aðeins upp villuboð. Þegar fréttastofa hafði samband við Reykjavíkurborg fengust þau svör að ekki væri vitað um ástæðu þessa en unnið væri að því að koma mælinum í lag. Fjöldi fólk notar mælinn til að fá upplýsingar um loftgæðin, meðal annars starfsfólk grunnskóla og leikskóla þegar mat er lagt á hvort börn séu látin út að sofa og hvort þau fara út að leika. 23.5.2011 11:17
Barinn í höfuðið með járnstöngum - fíkniefnatengd árás Þrír menn réðust inn á heimili við Presthúsabraut á Akranesi á föstudagskvöldið og börðu húsráðanda með járnstöngum, meðal annars í höfuðið. Ung kona sem einnig var á staðnum var sömuleiðis barin. Lögregla var kölluð á staðinn um klukkan hálf tíu á föstudagskvöldið. Húsráðandinn og konan voru flutt á sjúkrahús til skoðunar, og maðurinn lagður inn til frekari rannsóknar. Tveir menn voru fljótlega handteknir vegna málsins og sá þriðji um hádegi á laugardag. Þeir voru yfirheyrðir og játuðu verknaðinn. Allir höfðu þeir verið vopnaðir járnbareflum sem þeir notuð við að berja á húsráðandanum. Ástæða árásarinnar er á reiki, en mun vera tengd fíkniefnum. Árásarmennirnir voru allir látnir lausir á laugardagskvöld eftir skýrslutökur og er málið talið upplýst 23.5.2011 11:04
Úrslitaleikurinn sýndur í 3D í Smárabíó Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar sem fer fram á laugardaginn verður sýndur í hágæða þrívídd í Smárabíó. Þetta er í fyrsta skiptið á Íslandi sem slík útsending fer fram. Það er Smárabíó sem stendur yfir útsendingunni í samstarfi við Stöð 2 Sport. 23.5.2011 10:58
Enginn skóli á Kirkjubæjarklaustri alla vikuna „Ég er ekki mjög bjartsýnn á framhaldið, það er bara kolniðamyrkur hérna og ég sé varla ljósastaurana hérna fyrir utan skólann,“ segir Kjartan Kjartansson, skólastjóri í Kirkjubæjarskóla sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk á Kirkjubæjarklaustri. 23.5.2011 10:37
Öskufall í Grímsey Íbúar Grímseyjar á Norðurlandi hafa orðið varir við öskufall í bænum. Þar er jörðin hvít eftir kalt veður undanfarna daga en að sögn heimamanns, sem fréttastofa ræddi við, liggur grá slikja yfir snjónum sem er augljóslega afleiðingar öskufalls. 23.5.2011 10:26
Aukaflug til London og Kaupmannahafnar Iceland Express flýgur á alla áfangastaði sína eftir hádegi í dag um leið og Keflavíkurflugvöllur verður opnaður. Flognar verða aukaferðir til Kaupmannahafnar og London. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara. 23.5.2011 10:23
Kolniðamyrkur á Kirkjubæjarklaustri: Ótrúlega furðuleg tilfinning "Ég held að enginn geri sér grein fyrir því hvernig það er að lenda í þessu, þetta er rosaleg upplifun,“ segir Guðmundur Vignir Steinsson, sem rekur N1 og Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri. Kolniðamyrkur er nú á Kirkjubæjarklaustri en mikil aska hefur fallið til jarðar eftir að eldgosið hófst í Grímsvötnum á laugardagskvöld. 23.5.2011 10:03
Aukaflug til Norðurlandanna Icelandair hefur bætt við þremur aukaflugum við áður kynnta áætlun sína í kvöld. Flogið verður til Kaupmannahafnar og Osló kl. 20.45 og til Stokkhólms um miðnætti. Jafnframt verður flogið frá þessum borgum í nótt til Keflavíkur. Í tilkynningu frá Icelandair segir að þessi flug hafi verið sett upp til þess að koma til móts við þá farþega sem ekki komust leiðar sinnar vegna aflýstra fluga á síðasta sólarhringnum. Sérstök athygli er vakin á því að breytingar á tímasetningum og áætlun getur orðið með stuttum fyrirvara og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum og komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum. 23.5.2011 10:02
Barack Obama er líka Íri Það hefur nú komið í ljós ofan á allt annað að Barack Obama er Íri. Langa, langa, langa langafi hans Falmouth Kearney fluttist til Bandaríkjanna frá smábænum Moneygall í hungursneyðinni miklu sem varaði milli 1845 til 1852. 23.5.2011 09:46
16 drukknuðu í barnaafmæli 16 farþegar drukknuðu þegar skemmtibátur sökk nærri Hanoi borg í Víetnam í gær. Málið er hinn mesti harmleikur en farþegarnir voru að fagna þriggja ára afmæli lítils drengs. 23.5.2011 09:27
Fíkniefnamisferli á Eskifirði Lögreglan á Eskifirði handtók ungan mann í Fjarðabyggð í fyrrakvöld, grunaðan um fíkniefnamisferli. 23.5.2011 09:24
Strandaglópar í myrkrinu - nær ekki í Icelandair "Þetta er alveg ferlegt,“ segir Finnur Kristinsson, sem er strandaglópur í Bergen í Noregi en hann átti að fljúga heim til Íslands eftir hádegi í gær. Búið er að loka lofthelgi Íslands vegna eldgossins í Grímsvötnum. Finnur er hinsvegar afar óánægður með Icelandair sem virðist ekki sinna strandaglópunum í Noregi. 23.5.2011 09:11
Keflavíkurflugvöllur opnar síðdegis - Icelandair flýgur Icelandair mun hefja flug samkvæmt áætlun síðdegis í dag eftir að hafa þurft að aflýsa öllu flugi í rúman sólarhring, og bætir við aukaflugum. Gert er ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði opnaður fyrir flugumferð síðdegis og að áætlað flug Icelandair frá Evrópuborgum til landsins í dag verði í nokkurri seinkun og sömuleiðis flug frá landinu til Norður Ameríku. 23.5.2011 09:06
Talibanar náðu pakistanskri herstöð á sitt vald Byssumenn á vegum Talibana réðust inn í herstöð Í Pakistan í gærkvöldi og sprengdu upp herþotur. Mennirnir eiga nú í skotbardögum við pakistanska herinn. 23.5.2011 08:42
Minnsta kosti 30 fórust í óveðri Um 30 Bandaríkjamenn fórust Þegar skýstrókur gekk yfir bæinn Joplin í Missouri fylki í Bandaríkjunum í gær. 23.5.2011 08:37