Fleiri fréttir

Ellefu fengu orðu á Bessastöðum

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 16. júní 2011, sæmdi forseti Íslands ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Venjan er að orðuveitingin fari fram á 17. júní en í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar verður forsetinn staddur á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns, á morgun.

Stærsta innköllun frá upphafi - 60 þúsund flöskur með bláberjabragði

"Þetta kemur stundum fyrir, en þetta er það stærsta sem við höfum lent í frá upphafi," segir Friðjón Hólmbertsson framkvæmdastjóri sölusviðs Egils hjá Ölgerðinni, en fyrirtækið hefur kallað inn allt Pepsi Max í hálfs lítra flöskum framleitt 25. maí síðastliðinn. Ástæðan er sú að komið hefur í ljós að bláberjabragðefni blandaðist fyrir mistök í drykkinn.

Gríman haldin í níunda sinn - bein útsending á Stöð 2 og Vísi

Undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin en hátíðin fer fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þetta er í níunda sinn sem verðlaunin eru veitt og verður bein útsending frá athöfninni í opinni dagskrá á Stöð 2 og einnig á Vísi og hefst hún klukkan 20:10.

Hvatt til að leggja löglega á 17. júní

Talsvert hefur verið um ólöglegar bifreiðastöður nærri hátíðarsvæðum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á 17. júní. Fjöldi ökumanna hefur því fengið stöðubrotsgjald eða mátt þola að ökutækin hafi verið fjarlægð vegna hættu sem af þeim stafaði. Ökumenn eru því hvattir til að leggja löglega á þessum degi sem öðrum svo komast megi hjá aðgerðum lögreglu og Bílastæðasjóðs.

Kettirnir fá nú nóg að borða

Köttunum í Kattholti er tryggður nægur matur, þökk sé skjótum viðbrögðum kattavina og fyrirtækja eftir að allt stefndi í að kettirnir yrðu matarlausir. Fyrirtækið Dýrheimar gaf Kattholti 300 kíló af mat til að koma í veg fyrir að kettirnir svelti, Ölgerðin gaf heilt bretti af mat og Dýrabær lét ekki sitt eftir liggja. Þá lagði fjöldi fólks inn á styrktarreikning Kattholts. „Þessi matur kemur til með að duga okkur fram á haust,“ segir Anna Kristine Magnúsdóttir, formaður Kattavinafélags Íslands. Hún sendi út neyðarkall á þriðjudag þar sem varla var til fóður fyrir kettina, en sem stendur dvelja um 60 óskilakettir í Kattholti. Hún er virkilega þakklát og er fegin að kettirnir hafa nú nægan mat.

Dregur úr glæpum

Þjófnaðarbrotum hefur fækkað verulega á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sambærilegar tölur síðustu tveggja ára, samkvæmt afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra.

Eigandi Rottweilertíkarinnar verður ákærður

"Við vitum ekki hvar tíkin er, hún er ófundin," segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi. Eigandi Rottweilertíkarinnar Chrystel, sem var stolið úr vörslu lögreglunnar í byrjun maí, á yfir höfði sér ákæru fyrir að vera ekki með tíkina skráða.

Frestun Drekaútboðs lýsir ömurlegri verkstjórn

Það er til háborinnar skammar fyrir stjórnvöld að Drekaútboðið skuli frestast, segir Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi. Hann segir þetta klúður, sem lýsi ömurlegri verkstjórn í ríkisstjórn og á Alþingi.

Reykjavíkurborg heiðrar Bríeti

Forseti borgarstjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á Kvenréttindadaginn þann 19. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem borgin heiðrar Bríeti á þennan hátt og er það gert í samræmi við tillögu sem Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, lagði fram á síðasta ári. Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og var í hópi fyrstu kvenna sem tóku sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1908. Athöfnin hefst klukkan 14:30. Að lokinni athöfn verður gengið fylktu liði á Hallveigarstaði þar sem Kvenfélagasamband Íslands og fleiri kvennasamtök verða með hátíðardagskrá og kaffiveitingar í tilefni dagsins.

Ljúka hlaupinu klukkan þrjú við Valsheimilið

Fjögurra manna hópurinn sem hlaupið hefur hringinn í kringum landið til styrktar krabbameinsveikum börnum, kemur í mark í Reykjavík klukkan þrjú í dag. Allir eru velkomnir til að fylgja hlaupurunum síðasta spölinn.

Prófessorsstaða í nafni Jóns forseta lýsir gamaldags hugsunarhætti

Einn þingmaður sat hjá þegar Alþingi samþykkti í gær að stofna skyldi sérstaka prófessorsstöðu við Háskóla Íslands tengda nafni Jóns Sigurðssonar. "Gamaldags hugsunarháttur," segir þingmaðurinn og bætir við að erfitt sé að vera gulrót í bananabúnti.

Stúlkan komin fram

Stúlkan sem lögregla lýsti eftir í gær er komin í leitirnar. Hennar hafði verið saknað frá því á sunnudag þegar hún fór frá Landspítalanum við Hringbraut.

Íbúar sveitarfélaga geti kallað eftir atkvæðagreiðslu

Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar meðal annars um málefni sveitarfélaga leggur til nýmæli um rétt íbúa sveitarfélags til að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni þess. Stjórnlagaráð kom saman til síns 13. fundar klukkan 10 í dag.

Telur fótunum varla kippt undan útgerðinni

Umsögn Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands, á hagrænum áhrifum stóra kvótafrumvarps ríkisstjórnarinar hefur verið gerð opinber. Umsögnina vann hann að beiðni ríkisstjórnarinnar.

Breytingar á akstri Strætó 17. júní

Akstur allra leiða Strætó á morgun þjóðhátíðardag verður samkvæmt laugardagsáætlun og þá verður á ákveðnum leiðum ekið lengur fram á kvöld. Að auki verður á sömu leiðum tíðari akstur eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði.

Fálkaorðan afhent síðdegis

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun í dag, sæma nokkra Íslendinga hinni íslensku fálkaorðu. Athöfnin hefst klukkan þrjú síðdegis og má því vænta fregna á fjórða tímanum um hverjir fengu fálkaorðu. Einnig munu forsetahjónin taka á móti erlendum sendiherrum sem staddir eru hér á landi í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Vegna hátíðarhalda 17. júní á Austurvelli og á Hrafnseyri eru fyrrgreindir atburðir í dag 16. júní.

Yfir 400 heimildir til símhlerana á þremur árum

Embætti sérstaks saksóknara hefur fengið 106 heimildir til að hlera síma undanfarin þrjú ár. Á umræddu tímabili veittu dómstólar 418 heimildir til símhlerana þar af veitti Héraðsdómur Reykjaness flestar heimildir. Símar fyrirtæja voru hleraðir í tveimur tilvikum. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónssonar, innanríkisráðherra, við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, og lagt var fram á Alþingi í gær.

Druslugöngur líka á Ísafirði og í Reykjanesbæ

Ákveðið hefur verið að halda Druslugöngur á Ísafirði og í Reykjanesbæ þann 23. júlí, sama dag og Druslugangan verður farin í Reykjavík. Líklegt þykir að fleiri Druslugöngur verði farnar á landinu þennan dag. Á Ísafirði ætla þátttakendur að ganga frá gamla sjúkrahúsinu að Silfurtorgi. Þá verður stoppað við kirkjuna, héraðsdóm, lögreglustöðina og sýslumannsembættið. Við lok göngunnar tekir við stutt athöfn á Silfurtorgi. Gangan hefst klukkan tvö. Á sama tíma hefst Drusluganga í Reykjanesbæ. Þar er ætlunin að hittast hjá Nettó, ganga niður Hafnargötuna og enda í skrúðgarðinum. Nánari dagskrá hefur ekki verið útfærð. Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur. Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglumanns í Toronto í Kanada sem sagði að konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki nauðgað.

Látnir fái sína eigin heimasíðu

Fyrirtæki sem ætlar að opna minningarvef um látna Íslendingar fær engar athugasemdir frá Persónuvernd við þá fyrirætlan að nota upplýsingar úr Þjóðskrá um fæðingardag, dánardag og fæðingarstað látinna einstaklinga.

Þingkonan sem var skotin í höfuðið útskrifuð af spítala

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona í janúar var útskrifuð af spítala í gær. Hún hefur dvalið á sjúkrastofnun í Houston sað undanförnu og náð merkilega miklum framförum þó enn sé nokkuð í að hún nái fullum bata. Giffords var að tala á útifundi þegar 22 ára gamall karlmaður skaut hana í höfuðið af stuttu færi. Ódæðismaðurinn myrti sex, þar af 9 ára gamla stúlku, og særði 12. Hann situr í fangelsi og bíður dóms.

Sjónvarpsútsendingum á Íslandi umbylt

Miklar breytingar verða á fyrirkomulagi sjónvarpsútsendinga á Íslandi á næstu misserum. Stefnt er að því að hliðrænum sjónvarpsútsendingum verði hætt í lok næsta árs.

Sigmar plankar í flugvél til Spánar

„Ástæðan fyrir því að ég er að þessu er sú að þetta er ákaflega heimskulegt og algjörlega tilgangslaust. Og það er stundum fyndið að taka þátt í slíku þótt sumum finnist það ekki," segir Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóssins og nýjasta planka-stjarnan á Íslandi.

Klámmyndaleikkona segir þingmann ljúga

Bandarískur þingmaður sem viðurkennt hefur að hafa sent myndir af sér fáklæddum til nokkurra kvenna á ekki sjö dagana sæla - því klámyndaleikkona hefur nú stigið fram og blandað sér í málið.

Reyndi að stinga lögguna af ölvaður

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga lögregluna af þegar hún gaf honum stöðvunarmerki skammt frá Hveragerði í gærkvöldi. Hann beygði út af þjóðveginum inn á vegslóða og gaf þar í, eða þartil slóðinn endaði skyndilega og við tóku þúfur og aðrar ófærur. Lauk þar ökuferðinni og að líkindum ökuferli mannsins líka í eitt ár.

Ráðist á höfuðstöðvar Gaddafi

Harðar loftárásir voru gerðar á Trípólí, höfuðborg Líbíu, í nótt og kváðu öflugar sprengingar við í miðborginni. Þá sést reykur á allnokkrum stöðum í borginni, þar á meðal höfuðstöðvum Muammar Gaddafís. Þetta er ekki í fyrsta sem eftir að hernaður Atlantshafsbandalagsins í Líbíu hófst sem ráðist er á byggingarnar. Ekki er vitað hvort Gaddafi var staddur í höfuðstöðvunum þegar árásirnar voru gerðar. Þá sækja uppreisnarmenn í átt að höfuðborginni.

Húshjálpin stal peningum af eldri konu

Myndband sem sýnir húshjálp stela peningum af eldri konu hefur vakið hörð viðbrögð í Danmörku. Á myndbandinu sem sýnt var í dönskum fjölmiðlum í gær sést starfsmaðurinn taka peninga úr verski konunnar sem býr í þjónustuíbúð í suðvestur af Kaupmannahöfn.

Nauðgari fékk hjartaáfall og dó

Rúmlega fimmtugur bandarískur karlmaður dó á sama tíma og hann nauðgaði 77 ára konu á dögunum. Maðurinn braust inn til konunnar, ógnaði henni með eggvopni og þröngvað henni til samræðis. Það var þá sem hann lognaðist út af en konan hélt að maðurinn hefði dáið áfengisdauða. Hún komst undan og náði að kalla eftir hjálp. Þegar að var komið var maðurinn látinn. Talið er að hann hafi fengið hjartáfall. Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot.

Bretaprins á leið til Afganistan

Harry Bretaprins er á leið til Afganistan á vegum breska hersins, að því er fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Breska varnarmálaráðuneytið hefur ekki staðfest þetta. Harry er þyrluflugmaður og var síðast í Afganistan fyrir þremur árum. Þá tók hinn 26 ára gamli prins þátt í aðgerðum hersins í 10 vikur. Við heimkomuna sagðist hann gjarnan vilja fara aftur til Afganistan.

Þjóðþing ríkja taka meiri þátt

Þjóðþing aðildarríkjanna 27, sem mynda ESB, hafa aldrei látið jafn mikið til sín taka við stefnumótun sambandsins og árið 2010. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB.

Útrunnir samningar upp á 33 milljarða

Meira en helmingur þjónustusamninga mennta- og menningarmálaráðuneytisins eru útrunnir, eða 26 af 44. Tæp 30 prósent allra þjónustusamninga ríkisins eru útrunnir.

Tölvuþrjótar brutust inn á síðu CIA

Hópur tölvuhakkara, sem kallar sig Lulz Security, réðst í gærkvöld á vefsíðu bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Talið er að sami hópur hafi hakkað sig í fyrradag inn á vef EVE Online sem íslenska fyrirtækið CCP á og rekur.

Rafmagnslaust í Norðurárdal og á Bifröst

Rafmagnslaust hefur verið frá Varmalandi í Borgarfirði, upp Norðurárdalinn og í Bifröst síðan bilun varð í háspennukerfi á þessum slóðum klukkan fimm í morgun. Viðgerðarflokkur er að leita að biluninni og má búast við rafmagnsleysi á þessu svæði í nokkurn tíma enn.

Slapp nær ómeiddur eftir bílveltu

Ökumaður slapp nær ómeiddur eftir að bíll hans fór út af þjóðveginum í Hörgárdal í gærkvöldi og fór heila veltu. Ökumaðurinn missti bílinn fyrst út í lausamöl í vegöxlinni, en ætlaði að beygja honum inn á bundna slitlagið aftur. Við það snérist bíllinn þversum og valt út af veginum öfugu megin miðað við akstursstefnu bílsins, en sem betur fer var engin að koma á móti þegar þetta gerðist. Bíllinn er mikið skemmdur.

Fær að sjá hann á þriðjudögum

Borghildur Antonsdóttir, móðir Brynjars Mettinissonar, sem situr í gæsluvarðhaldi í Taílandi, þarf að bíða í viku í Bangkok þar til hún fær að hitta son sinn. Brynjar var úrskurðaður í þriggja mánaða gæsluvarðhald um mánaðamótin vegna gruns um aðild að fíkniefnasmygli.

Tveir fluttir á slysadeild eftir eldsvoða

Tveir voru fluttir á slysadeild Landsspítalans vegna gruns um reykeitrun og tveir stigagangar voru rýmdir, eftir að mikill eldur kom upp í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi að Skúlagötu 72 í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt. Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á vettvang og stóðu eldtungur og reykjarmökkur út um glugga íbúðarinnar þegar að var komið. Eldurinn komst auk þess upp í risíbúð, en greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Frítt kort með útvistarskógum

Korti með upplýsingum um fimmtíu áhugaverða útivistarskóga um land allt er nú dreift endurgjaldslaust í útibúum Arion banka, upplýsingamiðstöðvum ferðamála, garðplöntusölum og víðar. Það er Skógræktarfélag Íslands og Arion banki sem gefa út kortið í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið 2011. „Skógarnir eru af öllum stærðum og gerðum, langflestir í alfaraleið og margir í næsta nágrenni við helstu þéttbýlisstaði. Þeir eru því upplagðir áningarstaðir fólks sem á leið um landið,“ segir í tilkynningu um kortið sem nefnt er „Rjóður í kynnum“.- gar

Ljósmyndin ræður ríkjum

Ljósmyndasýningin World Press Photo verður opnuð í Kringlunni í dag. Þar verða til sýnis verðlaunamyndir í þessari viðamestu fréttaljósmyndakeppni heims.

Hátíðarsamkoma á Hrafnseyri við Arnarfjörð

Umfangsmiklum endurbótum á Hrafnseyri við Arnarfjörð er nú að ljúka, en í þær var ráðist í tilefni af 200 ára afmælisári Jóns Sigurðssonar, sem fæddist á Hrafnseyri 17. júní 1811. Af því tilefni verður blásið til hátíðarsamkomu þar vestra á morgun og opnuð sýning um Jón.

Sjá næstu 50 fréttir