Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðstoðarmenn formanna eru með 1.350 þúsund krónur í laun á mánuði Að sögn Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra Alþingis er það svo að ef varaþingmenn sem jafnframt eru aðstoðarmenn eða starfsfólk þingflokka taka sæti á þingi þá eru þau í launalausu leyfi frá aðstoðarmennsku sinni þann tíma sem þingseta tekur til. Aðstoðarmenn formanna eru með 1.350 þúsund krónur á mánuði í laun. 5.4.2022 11:18
Rúmlega helmingur hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta Rúmlega helmingur Íslendinga er hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem framkvæmd var af Prósent þar sem svarendur voru spurðir „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)(t) ert þú afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi?“ 5.4.2022 10:53
Sigurður Ingi fór undan í flæmingi og fann ekki bílinn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vildi ekkert ræða við fjölmiðla að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í morgun. Sigurður Ingi vísaði einfaldlega til yfirlýsingar sinnar á Facebook og sagðist vera búinn að segja það sem hann ætlaði að segja. 5.4.2022 10:41
Sjúklingum með Covid-19 fækkar áfram og enginn er á gjörgæslu Alls er nú 31 sjúklingur inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 en enginn þeirra er á gjörgæslu að því er kemur fram í tilkynningu á vef spítalans. Kona á sjötugsaldri með Covid-19 lést á Landspítalanum í gær og kona á áttræðisaldri lést um helgina, þann 2. apríl. 5.4.2022 10:37
Álfhildur leiðir lista VG og óháðra í Skagafirði Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari mun leiða lista Vinstri grænna og óháðra í Skagafirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí næstkomandi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í félagsheimilinu í Hegranesi í gærkvöldi. 5.4.2022 10:25
Aldrei fleiri aðfluttir Íslendingar umfram brottflutta Fleiri fluttust til Íslands en frá landinu á árinu 2021 eða 4.920. Flutningsjöfnuður eykst nokkuð frá árinu 2020 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 2.435. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara aldrei verið hærri en alls fluttu 828 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því á seinasta ári. Talan var 557 árið 2020. 5.4.2022 10:21
Fyrsta tilfelli mænusóttar í rúma þrjá áratugi greinist í Ísrael Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að ráðast í bólusetningarátak eftir að fyrsta tilfelli mænusóttar í rúma þrjá áratugi greindist í síðasta mánuði. Framkvæmdastjóri heilbirgðisráðuneytisins óttast að það reynist erfitt að fá fólk til að mæta í bólusetningu eftir kórónuveirufaraldurinn. 5.4.2022 09:59
Fimm látnir eftir að sendiferðabíll rakst á lest í Ungverjalandi Að minnsta kosti fimm eru látnir og rúmlega tíu slösuðust eftir að sendiferðabíll rakst á lest í suðurhluta Ungverjalands í morgun. Talsmaður yfirvalda segir að ökumaður sendiferðabílsins hafi hunsað rautt ljós. 5.4.2022 09:43
„Greinilega persónulegur pirringur“ Sérstök og breytt umræðuhefð á Alþingi var til umræðu í Íslandi í dag í gær. Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður sagði þar að hluti deilanna sem sést hafi á Alþingisrásinni nýlega séu augljóslega persónulegar. 5.4.2022 09:15
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. 5.4.2022 09:04
Ungir jafnaðarmenn krefjast afsagnar Sigurðar Inga Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa krafist afsagnar Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra vegna rasískra ummæla sem beindust að Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, og hann lét falla í boði Framsóknarflokksins í tengslum við Búnaðarþing síðastliðið fimmtudagskvöld. Framkoma aðstoðarmanns ráðherra er jafnframt fordæmd. 5.4.2022 08:27
Ever Forward hefur enn ekkert haggast Gámaflutningaskipið Ever Forward hefur enn ekkert haggast eftir að hafa strandað í Chesapeake-flóa á austurströnd Bandaríkjanna fyrir þremur vikum síðan. 5.4.2022 07:53
Kalt heimskautaloft berst yfir landið úr norðri Eftir milda og rólega tíð í síðustu viku hefur kalt heimskautaloft nú borist yfir landið úr norðri. Búast má við köldu veðri út vikuna. 5.4.2022 07:18
Ítrekuð slagsmál og hópslagsmál í miðborginni Ítrekað kom til slagsmála og hópslagsmála í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir lokun veitingastaða í gærkvöldi. 5.4.2022 07:08
Áhyggjur meðal starfsmanna eftir ráðningu Leifs Starfsfólki Stapaskóla í Reykjanesbæ var tilkynnt fyrir helgi að búið væri að ráða Leif Sigfinn Garðarsson sem nýjan deildarstjóra á unglingasviði skólans. Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla, segir í samtali við Vísi að ráðningin hafi vakið áhyggjur meðal starfsmanna. 5.4.2022 07:00
Hótar að bregðast við minnstu árás með kjarnorkuvopnum Geri Suður-Kórea nokkurs konar árás á Norður-Kóreu, verður henni svarað með kjarnorkuvopnum. Þetta sagði Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, samkvæmt ríkismiðli Norður-Kóreu. 4.4.2022 23:43
Zmiany w rozkładzie jazdy autobusów Strætó W niedzielę firma Strætó ogłosiła zmiany w rozkładzie jazdy, które ograniczają liczbę autobusów kursujących na niektórych trasach. 4.4.2022 23:02
Grammy dla Islandki Díselli Lárusdóttir W tym roku nagroda Grammy za najlepsze nagranie operowe przypadła operze Akhnaten, Phillipa Glassa. 4.4.2022 22:53
Innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar Innviðaráðuneytið hefur vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði tilkynnt borgarstjóra að hverskyns aðgerðir af hálfu borgarinnar sem skerða rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar séu í andstöðu við tveggja ára gamalt flugvallarsamkomulag samgönguráðherra og borgarstjóra vegna Hvassahrauns. 4.4.2022 22:44
Einn handtekinn vegna skotárásarinnar í Sacramento Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn og ákærður í tengslum við skotárás í Sacramento í gær. Sex létust í árásinni og tólf til viðbótar særðust. 4.4.2022 22:37
Raunhæft að svæðið við Smáralind verði gjörbreytt eftir tíu ár Bæjarstjórinn í Kópavogi telur raunhæft að hefja framkvæmdir á þessu ári við nýjan miðbæ sem gjörbreyti ásýnd bæjarins. Rúmlega níu þúsund íbúar gætu verið fluttir í hverfið eftir fimmtán ár. 4.4.2022 22:01
Heimurinn þarf að breyta um lífsstíl því tíminn er að renna út Sameinuðu þjóðirnar segja að brátt verði of seint að ná þeim markmiðum í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og takmarka hækkandi hitastig jarðar. Í nýrri skýrslu sem gerð var af helstu vísindamönnum heimsins á þessu sviði segir að einungis umfangsmiklar og hnattrænar aðgerðir geti nú komið í veg fyrir gífurlegar hamfarir. 4.4.2022 21:34
Fær 21 milljón frá Sjóvá eftir bílslys Sjóvá hefur verið dæmt að greiða konu, sem lenti í árekstri árið 2017, 21 milljón króna í bætur. Konan varð fyrir töluverðu líkamstjóni, varanlegur miski hennar metinn 20 stig og varanleg örorka hennar 15 prósent. 4.4.2022 21:01
Fundu fimm fóstur á heimili andstæðings þungunarrofa Lögreglan í Washington DC hefur til rannsóknar konu, sem kallar sjálfa sig aðgerðarsinna gegn þungunarrofum, eftir að fimm fóstur fundust á heimili hennar. 4.4.2022 20:52
Á heimleið eftir súrrealískt gærkvöld Endalaust þakklæti er eftst í huga sópransöngkonunnar Dísellu Lárusdóttur, sem vann Grammy-verðlaun í gærkvöldi. Hún er fimmti Íslendingurinn til að vinna til verðlaunanna. 4.4.2022 20:46
Stærsta herskip sem sést hefur á Íslandi við bryggju í Reykjavík Stærsta herskip sem komið hefur til Íslands og flaggskip breska sjóhersins, flugmóðurskipið Prince of Wales, verður í Reykjavík fram á föstudag. Koma skipsins tengist þó ekki varnaræfingunni Norður-Víkingi heldur er liður í reynslusiglingum skipsins um Norður-Atlantshaf. 4.4.2022 20:42
Klúðurslegt hjá Sigurði Inga Sigurður Ingi Jóhannsson baðst fyrr í dag afsökunar á því sem hann lýsti sem „óviðurkvæmilegum ummælum“ sínum í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Ummælin tengdust kynþætti hennar og er hann sagður hafa vísað til hennar sem „þeirrar svörtu.“ 4.4.2022 20:24
Hundrað kílómetrar af skjölum útistandandi Þjóðskjalasafnið sér fram á mikla tæknivæðingu á næstu árum og segir öld pappírsins lokið. Fyrst verður þó að innheimta fjölda skjala sem hafa ekki skilað sér til safnsins og gæti safnkosturinn tvöfaldast við það. 4.4.2022 20:08
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað. 4.4.2022 19:58
Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa. 4.4.2022 19:30
„Í öllum öðrum lýðræðisríkjum stæði ráðherra hér og segði af sér“ Þingmaður Pírata segir ekki nóg að ráðherra biðjist afsökunar á rasískum ummælum. Í öllum öðrum lýðræðisríkjum segði hann af sér tafarlaust fyrir brot á eigin lögum. 4.4.2022 19:10
Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni. 4.4.2022 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra lét rasísk ummæli falla um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í gleðskap á Búnaðarþingi og baðst afsökunar á þeim í dag. Aðstoðarmaður ráðherra þrætti fyrir orð Sigurðar um helgina. Við ræðum við þingmenn sem hafa ýmislegt við atburðarásina um helgina að athuga. 4.4.2022 18:01
Fær bætur eftir að hafa runnið til í bleytu með grautarpott Tryggingafélaginu Sjóvá hefur verið dæmt að greiða konu þrjár milljónir króna í bætur eftir að hún slasaðist á vinnustað sínum árið 2016. Konan hafði verið að reiða fram pott af hafragraut þegar hún rann til á eldhúsgólfi vinnustaðarins með þeim afleiðingum að hún olnbogabrotnaði. 4.4.2022 17:22
„Verðum að geta tekið því þegar fólk biðst afsökunar með mjög skýrum hætti“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki draga í efa heilindi Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra. Sigurður Ingi kallaði framkvæmdastjóra Búnaðarþings „þá svörtu“ á gleðskap í tengslum við Búnaðarþing í síðustu viku. 4.4.2022 15:50
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. 4.4.2022 15:47
Sigurjón nýr aðstoðarmaður Willums Þórs Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. 4.4.2022 15:14
Biðst innilegrar afsökunar á orðum sínum um Vigdísi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra biðst innilegrar afsökunar á orðum sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, aðfaranótt föstudags í gleðskap í tengslum við Búnaðarþing. Þetta kemur fram í stuttri færslu Sigurðar Inga á Facebook. 4.4.2022 14:55
Vucic og flokkur hans með örugga sigra í Serbíu Útgönguspár benda til að Aleksandar Vucic Serbíuforseti og Framfaraflokkur hans hafi unnið örugga sigra í forseta- og þingkosningum sem fram fóru í Serbíu um helgina. 4.4.2022 14:51
Þingmenn bregðast við frásögn Vigdísar af fordómum Þingmenn úr nokkrum flokkum hafa brugðist við færslu Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, sem segir Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra hafa viðhaft særandi ummæli um aðfaranótt föstudagsins síðastliðins á samkomu í tengslum við Búnaðarþing. 4.4.2022 14:26
Fallið frá skerðingum á stórnotendur og fjarvarmaveitur Landsvirkjun hefur fallið frá skerðingum á afhendingu raforku til stórnotenda og fjarvarmaveitna, í ljósi batnandi vatnsbúskapar síðustu daga. Fyrir helgi var fallið frá áformum um endurkaup raforku. Eftir stendur þó, að skerðingar til fiskimjölsverksmiðja munu vera óbreyttar enn um sinn. 4.4.2022 14:05
Ný ríkisstjórn mynduð á Grænlandi Flokkurinn Naleraq á ekki lengur aðild að ríkisstjórn Grænlands. Hans Enoksen, formaður flokksins, segir í samtali við KNR að Inuit Ataqatigiit (IA), flokkur Múte B. Egede, formanns landsstjórnarinnar, hafi ákveðið að binda enda á samstarfið og mynda þess í stað stjórn með flokknum Siumut. 4.4.2022 13:59
Hvetja atvinnurekendur til að sleppa kröfu um vottorð Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu biður atvinnurekendur um að sleppa því að óska eftir vottorði frá starfsfólki sem hefur náð sér eftir Covid-19. Ástæðan er mikið álag á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 4.4.2022 13:42
Sveinn Óskar leiðir lista Miðflokksins í Mosfellsbæ Sveinn Óskar Sigurðsson bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ, mun leiða lista Miðflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí. 4.4.2022 13:05
Rússneska sendiráðið á Íslandi tekur undir með Moskvu en hvað er rétt? Talsmenn sendiráðs Rússlands á Íslandi hafa tjáð sig um hroðaverkin í Bucha og endurtaka þá línu frá Moskvu að um sé að ræða „ögrun“ af hálfu Úkraínustjórnar. 4.4.2022 12:59