Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu blóð við leitina að breska blaðamanninum Lögreglan í Brasilíu hefur fundið leifar af blóði í bát veiðimanns sem handtekinn hefur verið í tengslum við leitina að breska blaðamanninum Dom Phillips og ferðafélaga hans. 10.6.2022 13:46
Anulowano poziom niepewności na półwyspie Reykjanes Krajowy Komisarz Policji, w porozumieniu z Komisarzem Policji w Suðurnes, anulowali poziom niepewności ogłoszony wcześniej przez Agencję Obrony Cywilnej z powodu rosnącej aktywności sejsmicznej, która występuje na półwyspie Reykjanes. 10.6.2022 13:10
Húmbúkk að lögreglan þurfi heimildir til að halda fólki lengur í gæsluvarðhaldi Hæstaréttarlögmaður segir það stórt skref afturábak ef menn ætla að taka undir orð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um þörf á auknum heimildum lögreglu til að halda fólki lengur en í tólf vikur í gæsluvarðhaldi. Lögmaðurinn segir Evrópuráðið og stofnanir þess hafa þrýst á íslensk stjórnvöld að herða skilyrði um gæsluvarðhald. 10.6.2022 13:01
Féllu ofan í fullan tank af súkkulaði Tveir einstaklingar féllu í tank fullan af súkkulaði í verksmiðju M&M og Mars í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum í gær. Mönnunum var bjargað af slökkviliðsmönnum og fluttir á sjúkrahús. 10.6.2022 12:58
Tvö umferðarslys á Miklubraut í morgun Tilkynnt var um tvö umferðarslys á Miklubraut í Reykjavík í morgun, annað til móts við Skeifuna og hinn við Stakkahlíð á leið vestur. 10.6.2022 12:42
Rekordowa liczba wylotów w maju Islandzka Izba Turystyczna informuje o rekordowej liczbie Islandczyków podróżujących w maju. 10.6.2022 12:17
Upplýst um aðhalds- og tekjuaðgerðir ríkisstjórnar í dag eða á morgun Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda koma fram í nefndaráliti fjárlaganefndar síðar í dag eða á morgun. Samkomulag tókst milli allra þingflokka nema Miðflokksins á Alþingi í gærkvöldi um hvaða mál fá afgreiðslu fyrir þinghlé í næstu viku. 10.6.2022 12:14
Óvissustigi aflýst á Reykjanesskaga Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefu raflýst óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. 10.6.2022 12:11
Apabóla nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur Apabóla er nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur eftir að heilbrigðisráðherra gerði breytingu á reglugerð um skýrslugerð vegna sóttvarna. 10.6.2022 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við lögfræðing sem er ekki sammála lögreglustjóra um að gæsluvarðhaldsúrræði hér á landi þurfi að auka. 10.6.2022 11:36
Fundu steingervinga úr einu stærsta rándýri sögunnar Fornleifafræðingar á Wight-eyju í Ermarsundi fundu á dögunum steingervinga sem þeir telja vera úr þorneðlu. Þorneðlan var eitt stærsta rándýr jarðar á krítartímabilinu. 10.6.2022 11:18
Um 150 til 200 nú að greinast með Covid-19 daglega Undanfarna daga hefur tilfellum þeirra sem hafa greinst með Covid-19 verið að fjölga og greinast nú á milli 150 og tvö hundruð einstaklingar daglega hér á landi. Sömuleiðis hefur inniliggjandi með Covid-19 fjölgað á Landspítalanum síðustu daga en þar eru nú átta manns með sjúkdóminn og þar af einn á gjörgæslu. 10.6.2022 11:04
Sigþrúður ráðin framkvæmdastjóri Siðmenntar Sigþrúður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Siðmenntar. Hún tekur við starfinu af Siggeiri Fannari Ævarssyni sem var sagt upp störfum í lok apríl. 10.6.2022 10:28
Sandfok frá Suðurlandi leikur höfuðborgarbúa grátt Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu hefur mælst hár á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöld. Rykið kemur frá söndunum á Suðurlandi. 10.6.2022 10:25
Fjöldi brottfara í maí aldrei verið meiri Brottfarir Íslendinga í maí voru um 65 þúsund talsins og hafa ekki mælst svo margar í maí síðan mælingar hófust. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu. Þá voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um 112 þúsund talsins sem er fimmti fjölmennasti maímánuður frá því að mælingar hófust. 10.6.2022 10:04
Enginn undir 18 ára afplánað í hefðbundnu fangelsi í fimm ár Enginn einstaklingur undir 18 ára aldri hefur þurft að afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu í hefðbundnu fangelsi síðastliðin fimm ár. Frá 1. janúar 2017 hefur einungis einn dómur varðandi einstakling undir 18 ára aldri borist Fangelsismálastofnun. 10.6.2022 10:02
Hæstiréttur fellst á að taka fyrir mál Jóns Ársæls Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Jóns Ársæls Þórðarsonar sem dæmdur var í Landsrétti til að greiða konu, sem hann tók viðtal við í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt og sýndir voru í Ríkissjónvarpinu, 800 þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir króna í málskostnað. 10.6.2022 08:09
Vaktin: Segir Rússa hvorki hafa vilja né getu til að ráðast gegn Finnum og Svíum Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir rússnesk stjórnvöld ekki munu láta það gerast að „járntjald“ falli á efnahagslíf landsins líkt og þegar Sovétríkin voru og hétu. Þau mistök verða ekki endurtekin, segir hann. 10.6.2022 07:59
Ferðamönnum í pakkaferðum nú hleypt inn í landið Stjórnvöld í Japan hafa nú létt á takmörkunum fyrir erlenda ferðamenn og byrjað að staðfesta vegabréfsáritanir á nýjan leik. Það á þó einungis við ferðamenn í pakkaferðum og sem samþykkja að fylgja stífum reglum landsins um grímuskyldu og aðrar sóttvarnaaðgerðir. 10.6.2022 07:45
Leifar af hvassviðri gærdagsins enn með suðurströnd landsins Leifar af hvassviðri gærdagsins eru enn með suðurströnd landsins og eru gular viðvaranir í gildi þar fram á eftirmiðdag, til klukkan 14 á Suðurlandi og klukkan 16 á Suðausturlandi. 10.6.2022 07:15
Segja náttúruundur í hættu og kæra Hnútuvirkjun Fimm náttúruverndarsamtök ásamt hópi landeigenda í grennd við Hverfisfljót í Skaftárhreppi hafa kært ákvörðun sveitarstjórnar Skaftárhrepps um að gefa út framkvæmdaleyfi vegna virkjunar við Hnútu í Hverfisfljóti. 10.6.2022 07:08
Sagði Pence ef til vill verðskulda að verða hengdur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fór með lykilhlutverk í valdaránstilraun 6. janúar 2021, þegar stuðningsmenn hans réðust inn í þinghúsið í Washington og freistuðu þess að koma í veg fyrir staðfestingu kjörs Joe Biden sem forseta. 10.6.2022 06:50
Sigurjón ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar Sigurjón Andrésson, ráðgjafi hjá Góðum samskiptum og verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar. 9.6.2022 23:36
Samþykktu að sameinað sveitarfélag fái nafnið Húnabyggð Ný bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps samþykkti á fyrsta fundi sínum í dag að sveitarfélagið fengi nafnið Húnabyggð. 9.6.2022 22:57
Ráðherra segir tryggt að borgin byggi ekki í Skerjafirði án samþykkis Isavia Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir sáttmála nýs borgarstjórnarmeirihluta tryggja að ekki verði byggt í Skerjafirði án samþykkis flugmálayfirvalda. 9.6.2022 22:55
Þór tekinn við völdum á Seltjarnarnesi Ráðning Þórs Sigurgeirssonar sem bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar var staðfest á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar bæjarins. Hann tekur við störfum af af Ásgerði Halldórsdóttur sem látið hefur af störfum eftir tuttugu ára starf í bæjarstjórn, þar af í þrettán ár sem bæjarstjóri. 9.6.2022 21:57
Lækkun afsláttar í fríhöfn liður í aðgerðum gegn þenslu Fjármála- og efnahagsráðherra lagði tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir fjárlaganefnd í dag, sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Meðal tillagðra breytinga á tekjuhlið ríkissjóðs er lækkun á afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi í fríhöfninni. 9.6.2022 21:09
Nýtt lyf heftir vöxt krabbameinsæxla Nýtt lyf við brjóstakrabbameini eykur líftíma sjúklinga um 23,9 mánuði á meðan hefðbundin lyfjameðferð gefur sjúklingum 16,8 mánuði. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times um rannsókn sem kynnt var á dögunum á aðalfundi Félags klínískra krabbameinslækna í Bandaríkjunum. 9.6.2022 21:00
Ódæðið í Berlín sagt viljaverk án tengsla við hryðjuverkasamtök Lögregla telur að maður sem keyrði inn í mannfjölda í Berlín í Þýskalandi í gær með þeim afleiðingum að kona lést og 31 slasaðist hafi gert það af ásetningi. Ekki leikur grunur á því að sakborningurinn hafi tengsl við hryðjuverkasamtök. 9.6.2022 20:33
Tengsl eru milli mannanna tveggja sem greindust með apabólu í gær Tengsl eru á milli mannana tveggja sem greindust með apabólu í gær. Annar þeirra er nýkominn frá Evrópu en sóttvarnalæknir segir uppsprettu veirunnar vera ákveðnir staðir í Evrópu þar sem kynlíf er frjálslegt. 9.6.2022 20:22
Jón dregur útlendingafrumvarp til baka en Ramminn út úr nefnd Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að sem betur fer verði ekkert af skerðingum réttinda útlendinga að sinni eftir að dómsmálaráðherra dró útlendingafrumvarp sitt til baka á Alþingi í dag. Stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um um fyrstu breytingar á rammaáætlun í sjö ár. 9.6.2022 19:20
Fólu bæjarstjóra að hefja samtal um jarðgöng til Vestmannaeyja Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar samþykkti bæjarstjórn tillögu þess efnis að bæjarstjóra og bæjarstjórn yrði falið að hefja samtal við stjórnvöld um að kanna fýsileika á gerð jarðgangna milli lands og Eyja. 9.6.2022 19:14
Vill vægari kröfur um gæsluvarðhald Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kallar eftir auknum heimildum lögreglu til að takast á við skipulagða brotastarfsemi, líkt og þá sem greint var frá í dag en lögregla lagði nýlega hald á mesta magn fíkniefna sem hún hefur gert á Íslandi í einu og sama máli. 9.6.2022 19:06
Danir og Færeyingar semja um sjö milljarða ratsjárstöð NATO Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, og Morten Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um uppsetningu nýrrar ratsjárstöðvar á Sornfelli í Færeyjum. Yfirlýsingin var undirrituð í Þórshöfn í tengslum við ríkisfund Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með þeim Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, og Muté B. Egede, forsætisráðherra Grænlands, sem undirrituðu samstarfsyfirlýsingu þjóðanna um öryggis- og varnarmál. 9.6.2022 18:59
Útskrifaði sig sjálfur með svæsna kálbögglaeitrun Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, greinir frá því á Facebook í dag að bið hans eftir heilbrigðisþjónustu á bráðamóttökunni í Fossvogi hafi verið svo löng að hann hafi endað með því að útskrifa sig sjálfur. 9.6.2022 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á mesta magn fíkniefna sem fundist hefur á Íslandi í einu og sama máli. Tíu hafa verið handteknir og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna tveggja rannsókna á umfangsmikilli skipulagðri brotastarfsemi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við ítarlega um málið og sjáum það gríðarlega magn fíkniefna sem lögregla hefur lagt hald á. 9.6.2022 18:01
Innbrotsþjófur stal stórri múffu úr kynlífstækjaversluninni Blush Brotist var inn í kynlífstækjaverslunina Blush á Dalvegi klukkan sjö í morgun og greip innbrotsþjófurinn með sér múffu af stærri gerðinni. Þessu greinir Gerður Arinbjarnar, eigandi verslunarinnar frá. 9.6.2022 17:01
Stuðningsfulltrúi tognaði á öxl og fær átta milljónir í bætur Borgarbyggð hefur verið gert að greiða stuðningsfulltrúa sveitarfélagsins tæpar átta milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð við umönnun hans á þroskaskertum einstaklingi. 9.6.2022 16:01
Útlendingafrumvarpi Jóns frestað fram á haust Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur frestað afgreiðslu útlendingafrumvarps síns fram á haust. Jón segir þetta gert til að liðka fyrir þinglokum. Það er því ljóst að málamiðlanir ríkisstjórnarinnar báru ekki árangur. 9.6.2022 15:50
Krabbameinið hvarf: Nýtt lyf vekur athygli og von Niðurstöður nýrrar lyfjarannsóknar hafa vakið gríðarlega athygli og von meðal lækna og krabbameinssjúklinga en allir þátttakendur rannsóknarinnar virðast hafa læknast af krabbameini eftir stutta lyfjameðferð. 9.6.2022 15:29
Eitt mesta magn fíkniefna sem lögregla hafi lagt hald á Lögreglan hefur lagt hald á gríðarlegt magn fíkniefna og handtekið tíu manns í tengslum við tvær umfangsmiklar rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi. 9.6.2022 14:25
Gefa í leitina að breska blaðamanninum Brasilísk yfirvöld hafa eflt til muna leitina að breska blaðamanninum Dom Phillips og samferðarmanni hans. Þeir hafa verið týndir í Amason-regnskóginum frá því á sunnudag. 9.6.2022 13:15
Klassískir söngvarar vilja að fjárveitingar til Íslensku óperunnar verði stöðvaðar Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, hefur skorað á Lilju Dögg Alfreðsdóttur, ráðherra menningarmála, að stöðva fjárveitingar til Íslensku óperunnar og ítreka vantraust sitt á stjórn og óperustjóranum Steinunni Birnu Ragnarsdóttur. 9.6.2022 13:05
Małpia ospa na Islandii W najbliższych dniach można spodziewać się większej liczby przypadków małpiej ospy na Islandii, mówi epidemiolog. 9.6.2022 12:50
Þingmaður segir lífeyrissjóðina hlunnfara yngri kynslóðirnar Þingmaður Viðreisnar segir lífeyrissjóðina ætla að mismuna yngri og eldri kynslóðum í lífeyrisréttindum með nýlegri breytingu á reglum sínum. Tugir milljarða verði færðir frá yngri kynslóðum til hinna eldri og þar með væri brotið gegn grunngildum samtryggingarinnar sem lífeyrissjóðirnir ættu að byggja starfsemi sína á. 9.6.2022 12:29